Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 244 . mál.


Ed.

452. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 87/1985, um sparisjóði.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    Orðið „sýslufélög“ í 2. mgr. 5. gr. laganna falli brott.

2. gr.

    2., 3. og 4. málsl. 1. mgr. 21. gr. laganna orðist svo:
    Þar sem þrír menn sitja í stjórn kjósa sparisjóðsaðilar tvo stjórnarmenn en hlutaðeigandi sveitarstjórnir eða héraðsnefndir tilnefna einn mann samkvæmt nánari ákvæðum í samþykktum sparisjóðsins. Sitji fimm í stjórn sparisjóðs kjósa hlutaðeigandi sveitarstjórnir eða héraðsnefndir tvo stjórnarmenn. Séu sveitarstjórnir einu sparisjóðsaðilarnir kjósa hlutaðeigandi sveitarstjórnir alla stjórnina.
    B-liður 3. mgr. 21. gr. laganna orðist svo:
    b. að 2/5 hlutum af hlutaðeigandi sveitarstjórnum eða héraðsnefndum enda hafi sveitarstjórnir eða sýslunefndir áður kosið til stjórnar sparisjóða.

3. gr.

    Við 1. mgr. 28. gr. bætist:
    Hlutafjáreign í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut, sem ekki ræður úrslitum um stjórnun þess og sem fyrst og fremst telst ávöxtun sparifjár. Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands sker úr um í einstökum tilvikum, hvort hlutafjáreign brjóti í bága við grein þessa. Getur það veitt viðkomandi aðila frest í allt að 3 mánuði til þess að uppfylla skilyrði þessarar málsgreinar, þegar sérstaklega stendur á.

4. gr.

    3. mgr. 24. gr. hljóði svo:
    Sparisjóðsstjórn ákvarðar vexti sparisjóðsins og gjaldskrá þjónustugjalda
fyrir einstaka þætti starfseminnar að fengnum tillögum sparisjóðsstjóra. Sparisjóðsstjórn fjallar einnig um vexti af skuldabréfum, sem sparisjóðurinn gefur út og þá vexti sem sparisjóðurinn áskilur sér við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum. Við umfjöllun um vexti eða kaupgengi viðskiptavíxla og viðskiptaskuldabréfa skal sparisjóðsstjórn gæta þess, að ávöxtunarkrafa sparisjóðsins sé sambærileg við ávöxtun almennra útlána sparisjóðsins í hliðstæðum áhættuflokkum.
    4. mgr. 24. gr. hljóði svo:
    Sparisjóðsstjórn setur og að fenginni umsögn sparisjóðsstjóra almennar reglur um lánveitingar og ábyrgðir sparisjóðsins þar með um hámark lána til einstakra lántakenda og tryggingar fyrir lánum. Reglur þessar skal endurskoða eigi sjaldnar en árlega og skulu þær sendar bankaeftirlitinu, sem láta skal í té álit á þeim hverju sinni.
    Núverandi 4. mgr. færist aftur og verði 5. mgr.

5. gr.

    3. mgr. 38. gr. hljóði svo:
    Stjórnarmenn sparisjóðs og varamenn þeirra skulu ekki taka þátt í meðferð máls er varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í, sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í. Sama gildir um þátttöku stjórnarmanna í meðferð máls er varðar aðila sem eru þeim tengdir, persónulega eða fjárhagslega.
    Núverandi 3. mgr. 38. gr. færist aftur og verði 4. mgr.

6. gr.

    Við 1. mgr. 71. gr. bætist svohljóðandi málsliður:
    Sé bókfært virði fasteigna og búnaðar, sem sparisjóður notar til starfsemi sinnar hærra en sem nemur 65% af eigin fé sparisjóðsins skal hlutfallið fara stöðugt lækkandi á þessu tímabili þar til 65% markinu er náð nema ráðherra veiti að fengnum tillögum bankaeftirlitsins undanþágu til hækkunar á hlutfallinu á tímabilinu.

7. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er lagt fram um leið og frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 86 4. júlí 1985, um viðskiptabanka, og geymir svipuð ákvæði.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1.–2. gr.


    Breyting sú, er hér er lögð til, er gerð í kjölfar þess að sýslunefndir hafa nú verið lagðar niður en sveitarsjórnir og héraðsnefndir hafa tekið við hlutverki þeirra, sbr. lög nr. 8/1986.
    Af þeim ástæðum er nauðsynlegt að breyta ákvæðum 5. og 21. gr. laga nr. 87/1985, um sparisjóði, eins og lagt er til í 1. og 2. gr. þessa frumvarps.
    Að öðru leyti þarfnast greinar þessar ekki skýringa.

Um 3. gr.


    Komið hefur upp það álitamál hvort hlutafjáreign teljist þátttaka í atvinnurekstri. Meirihlutaeign í hlutafélagi telst tvímælalaust þátttaka í atvinnurekstri og í mörgum tilvikum á það einnig við um eignarhald á minni hluta hlutabréfa í félagi. Svo er t.d. þegar hlutafjáreignin er þess eðlis að hún sé til þess fallin að hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækis, t.d. með hliðsjón af stærð eignarhlutarins, tengslum við stjórn fyrirtækisins, áhrifamætti hlutar miðað við valdahlutföll á hluthafafundum o.fl. Í öðrum tilvikum getur eignarhald smáhluta t.d. í almenningshlutafélagi, sem til er komið vegna arftöku eða ávöxtunar sparifjár, fallið utan þátttöku í atvinnurekstri í skilningi greinarinnar. Hér er lagt til að bankaeftirlit Seðlabanka Íslands úrskurði í einstökum tilvikum, þar sem vafi þykir leika á, hvort skilyrði greinarinnar séu uppfyllt og að það geti gefið viðkomandi aðila frest til þess að fullnægja settum skilyrðum.
    Ákvæði þetta er samhljóða ákvæði sem gerð hefur verið tillaga um í frv. til laga um breytingu á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka.

Um 4. gr.


    Í lögum nr. 87 4. júlí 1985, um sparisjóði, er kveðið á um það í 3. mgr. 24. gr. að sparisjóðsstjórn setji að fenginni umsögn sparisjóðsstjóra almennar reglur um lánveitingar sparisjóðsins og skuli reglurnar sendar bankaeftirliti Seðlabanka Íslands. Jafnframt segir þar að sparisjóðsstjórnin móti með sama hætti meginreglur um tryggingar vegna lánveitinga og ábyrgða sem sparisjóðurinn veitir viðskiptaaðilum sínum. Í greinargerð með frumvarpi til laganna var vikið að því að í reglum um lánveitingar sparisjóða mætti m.a.
kveða á um skyldu sparisjóðsstjóra til að tilkynna sparisjóðsstjórn fyrir fram sérstaklega stórar lánveitingar til einstakra viðskiptaaðila, tilkynningarskyldu sparisjóðsstjóra varðandi þær tryggingar sem teknar væru vegna slíkra lánveitinga, bann við lánum til einstakra viðskiptaaðila umfram tiltekið hlutfall af eigin fé sparisjóðs o.s.frv.
    Talið er til bóta að kveða á um það að í hinum almennu reglum, sem settar eru um lánveitingarnar, skuli vera ákvæði um hámark lána til einstakra lántakenda, svo og að reglurnar sæti endurskoðun eigi sjaldnar en árlega. Gert er ráð fyrir að sama málsmeðferð gildi um ábyrgðir og tryggingar. M.a. á þennan hátt má freista þess að draga úr líkum á stórum áföllum í rekstri sparisjóða og tryggja betur hag þeirra og sparifjáreigenda. Í þessu sambandi má benda á að bankasérfræðingar telja óeðlilegt að innlánsstofnanir bindi fé sitt um of hjá einum eða fáum viðskiptaaðilum, enda hafa fjárhagsörðugleikar innlánsstofnana oft stafað af því að ekki hefur verið gætt nægilegrar varfærni í þeim efnum.

Um 5. gr.


    Í íslenskum stjórnarfarsrétti hafa ekki almennt verið lögfestar reglur til að girða fyrir hagsmunaárekstra handhafa framkvæmdarvalds við töku ákvarðana, gagnstætt því sem er um handhafa dómsvalds hér á landi. Rétt þykir að gera í lögum strangar kröfur um svo mikilvægar stofnanir sem sparisjóði þar sem hagsmunaárekstrar geta haft meiri afleiðingar en oft endranær.

Um 6. gr.


    Með ákvæði þessu er stefnt að samræmi við lögin um viðskiptabanka, en í frumvarpi til laga um breytingu á þeim lögum er leitast við að eyða ágreiningi um það hvernig skilja beri samsvarandi grein í lögunum.

Um 7. gr.


    Grein þessi þarfnast ekki skýringar.