Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 253 . mál.


Sþ.

464. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur og Guðrúnu Agnarsdóttur.



1.     Hver er ástæðan fyrir þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra gerði á reglugerð nr. 432/1987, um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga, 5. janúar sl.?
2.     Á hvaða forsendum telur heilbrigðisráðherra unnt að leggja nám matarfræðinga og matvælafræðinga að jöfnu og veita þeim sömu starfsréttindi?
3.     Hefur heilbrigðisráðherra í hyggju að nýta sér þessa heimild? Ef svo er, um hve marga aðila gæti verið að ræða og hvaða menntun hafa þeir?