Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 8 . mál.
Nd.
472. Framhaldsnefndarálit
um frv. til l. um efnahagsaðgerðir.
Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Við lausn þess vanda, sem við er að fást í atvinnulífinu, er hvað mikilvægast að gera fyrirtækjum kleift að bæta rekstrarstöðu sína með aukningu eigin fjár. Lán á lán ofan leysa engan vanda til frambúðar. Því lögðu fulltrúar Kvennalista og Sjálfstæðisflokks fram breytingartillögu við þetta frumvarp sem gerði ráð fyrir stofnun hlutafjársjóðs við Byggðastofnun sem kaupa skyldi hlutabréf í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, sbr. þskj. 209 og 298. Með því skyldi opnuð leið fyrir þá sem vildu efla eigið fé fyrirtækja með hlutafjárkaupum, án þess þó að taka mikla áhættu. Forsenda þess að sjóðurinn næði tilgangi sínum var að hann yrði rekinn á faglegum grunni, en ekki eftir pólitískum geðþótta.
Nú hefur meiri hl. gert þessa tillögu að sinni, en gjörbreytt formi hennar og tilgangi svo að alls ekki er um sömu tillögu að ræða þótt ráðamenn hafi ítrekað látið liggja að því. Af breytingartillögum forsætisráðherra á þskj. 449 og yfirlýsingum í umræðum á Alþingi er bersýnilegt að sjóðnum er ætlað að taka við þeim fyrirtækjum sem Atvinnutryggingarsjóður hefur úrskurðað óhæf til lánafyrirgreiðslu vegna vonlausra rekstrarskilyrða. Það er fjarri hinni upprunalegu hugmynd. Nauðsynlegt er að taka á vanda verst stöddu fyrirtækjanna með viðeigandi ráðstöfunum, en 1. minni hl. harmar að ríkisstjórnin skuli ætla að misnota hugmyndina um hlutafjársjóðinn í því skyni.
Í öðru lagi vekur athygli að ríkisstjórnin hefur viðurkennt sjónarmið forsvarsmanna lífeyrissjóðanna og látið undan kröfum þeirra um ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum Atvinnutryggingarsjóðs, sbr. 2. lið breytingartillagna forsætisráðherra á þskj. 449.
Alþingi, 9. febr. 1989.
Kristín Halldórsdóttir,
Friðrik Sophusson.
frsm.