Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 273 . mál.


Sþ.

490. Tillaga til þingsályktunar



um tónmenntakennslu í grunnskólum.

Flm.: Þórhildur Þorleifsdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Árni Gunnarsson,


Jón Helgason, Margrét Frímannsdóttir, Salome Þorkelsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd til að athuga og koma með tillögur að samvinnu og samþættingu tónmenntakennslu í grunnskólum og tónlistarskólum landsins, með það fyrir augum
–     að efla og auka tónmenntakennslu í grunnskólum,
–     að koma á samvinnu milli grunnskóla og tónlistarskóla,
–     að það nám í tónlist, sem nemendur stunda utan lögboðins grunnskólanáms, geti í auknum mæli flust inn í húsnæði grunnskólanna,
–     að samnýta húsnæði og kennara til að draga úr kostnaði og gera tónlistarnám aðgengilegra fyrir nemendur.
    Nefndin ljúki störfum fyrir upphaf næsta þings.

Greinargerð.


    Í landinu starfa hátt í 70 tónlistarskólar. Nemendafjöldi er u.þ.b. 8 þúsund, þar af eru u.þ.b. 250–300 sem stunda nám á því stigi sem ætlað er að búa nemendur undir atvinnumennsku. Þessar staðreyndir tala sínu máli um það hve tónlistarnám er snar þáttur í menntun íslenskra barna og unglinga. Það er órjúfanlegt samhengi milli þessa og hins blómlega tónlistarlífs í landinu, bæði á sviði atvinnu- og áhugamennsku.
    Því er löngu orðið tímabært að taka skipan tónlistarmála til endurskoðunar með það fyrir augum að auka tónmenntakennslu í grunnskólum og gera þeim börnum og unglingum sem vilja stunda tónlistarnám utan lögboðins grunnskólanáms auðveldara fyrir.
    Skólagjöld í tónlistarskólum eru nokkuð mismunandi en lætur nærri að þau séu að meðaltali 20 þús. kr. á ári fyrir hvern nemanda. Þetta er nokkuð há upphæð og hlýtur að hindra marga sem annars hefðu hug á þessari menntun, því ber að leita leiða til sparnaðar. Stór liður í þessu gæti verið samnýting
húsnæðis og kennara. Einnig ber að nefna að því betur sem tómstundastarf barna og unglinga tengist grunnskólanum, þeim mun aðgengilegra verður það fyrir nemendur, þ.e. eðlilegra framhald af þeirra hefðbundna vinnudegi. Í því sambandi má minna á hve stórlega drægi úr slysahættu ef ferðum barna milli heimilis og skóla fækkaði.
    Það líður að því að skóladagur íslenskra barna lengist þess vegna þarf að huga að því til hvers aukinn kennslustundafjöldi verður nýttur. Virðist einhlítt að list- og verkmenntagreinar komi til með að skipa hærri sess en þær gera nú. Í ljósi ofangreindra staðreynda um fjölda nemenda í tónlistarnámi er kjörið að byrja á að endurskipuleggja það innan og utan grunnskóla. Þar að auki stendur fyrir dyrum breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga og í kjölfar þess breytingar á högum tónlistarskóla. Nýrrar löggjafar er því þörf.
    Síðast en ekki síst ber að nefna að fyrir utan að leggja grunn að öllu tónlistarlífi landsins, sem fjöldi fólks er þátttakandi í, ýmist sem atvinnu- eða áhugafólk, njótendur eða flytjendur, er tónlistarmenntun mikilvæg til varðveislu menningar og tungu. Fáum blandast lengur hugur um að íslensk menning er í hættu vegna síaukins ágangs og neyslu erlendrar menningar. Stór liður þar í er það flóð erlendrar popptónlistar, aðallega engilsaxneskrar, sem glymur í eyrum fólks alla daga. Stærsti hlustendahópurinn er þó vafalaust börn og unglingar. Góð tónlistarmenntun er því mikilvægt mótvægi.