Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 1 . mál.


Nd.

501. Nefndarálit



um frv. til l. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frumvarpið á þrettán fundum en varð ekki einhuga í afstöðu sinni til málsins og skilar álitum meiri og minni hl.
    Umsagnir bárust um frumvarpið frá bankaeftirliti Seðlabanka Íslands, Fjárfestingarfélaginu, Kaupþingi hf., Árna Vilhjálmssyni prófessor, auk sameiginlegrar álitsgerðar frá Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands. Þá komu á fund nefndarinnar Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabankans, Eiríkur Guðnason, aðstoðarbankastjóri við Seðlabankann, Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins, Tryggvi Axelsson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, Björn Líndal, aðstoðarbankastjóri við Landsbanka Íslands, og frá Sambandi verðbréfasjóða komu Gunnar H. Hálfdanarson, Pétur Blöndal, Gunnar Óskarsson, Dagný Leifsdóttir og Sigurður B. Stefánsson.
    Meiri hl. nefndarinnar flytur 18 breytingartillögur við frumvarpið sem birtar eru á þskj. 502. Þó að nefndin standi ekki sem heild að þessu nefndaráliti þá ríkir samkomulag um meiri hluta þeirra breytingartillagna sem nefndin flytur. Langflestar breytingartillögurnar byggjast á athugasemdum sem bankaeftirlit Seðlabankans gerði við frumvarpið og miða þær að verulegu leyti að því að gera frumvarpið skýrara og eyða hugsanlegum vafaatriðum. Þá er einnig um að ræða nokkrar breytingar er byggjast á ábendingum og breytingartillögum frá Kaupþingi hf., Fjárfestingarfélaginu, Stefáni Valgeirssyni alþingismanni og sameiginlegum tillögum Landsbanka og Búnaðarbanka Íslands. Þær meginbreytingar, sem felast í tillögum meiri hl. nefndarinnar, eru eftirfarandi:
1.     Í fyrstu breytingartillögu, sem er við 2. gr. frumvarpsins, er kveðið skýrar á um skráningarskyldu verðbréfafyrirtækja og verðbréfasjóða varðandi gögn tengd verðbréfaviðskiptum.
2.     Í fimmtu breytingartillögu, sem er við 11. gr. frumvarpsins, eru hert nokkuð skilyrði fyrir leyfi til rekstrar verðbréfafyrirtækis. Breytingin er við a-lið 3. mgr. þar sem innborgað hlutafé er hækkað auk þess sem kveðið er á um upphæð eigin fjár fyrirtækisins.
3.     Í sjöttu breytingartillögu, sem er við 12. gr. frumvarpsins, er gert ráð fyrir að hækka úr 1% í 2% upphæð eigin fjár verðbréfafyrirtækis af höfuðstól verðbréfasjóðs eða verðbréfasjóða sem fyrirtækið rekur. Breytingin er gerð í tengslum við tölulegar breytingar við 11. gr.
4.     Í tólftu breytingartillögu, sem er við 29. gr., er gert ráð fyrir að ráðherra sé heimilt að gera auknar kröfur um laust fé verðbréfafyrirtækja. Í frumvarpinu er miðað við 2% af innlausnarverðmæti, en í breytingartillögunni er gert ráð fyrir að þetta geti farið upp í allt að 5%. Hækkun þessi er gerð til að tryggja að sjóðirnir séu betur í stakk búnir til að mæta skyndilegri aukningu innlausna.
5.     Í þrettándu breytingartillögu, sem er við 30. gr., er kveðið á um bindiskyldu verðbréfasjóða og heimild til að setja hámark á vexti verðbréfasjóða.

Alþingi, 16. febr. 1989.



Páll Pétursson,

Kristín Halldórsdóttir,

Ragnar Arnalds,


form., frsm.

með fyrirvara.

með fyrirvara.



Sigríður Hjartar.

Árni Gunnarsson.