Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 1 . mál.
Nd.
510. Breytingartillögur
við frv. til l. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
Frá Matthíasi Bjarnasyni, Inga Birni Albertssyni og Ragnari Arnalds.
1. Við 11. gr. 2. mgr. orðist svo:
. Verðbréfafyrirtæki má ásamt verðbréfamiðlara annast verðbréfamiðlun gegn þóknun og því skal einnig heimilt að veita sölutryggingu á markaðsverðbréfum, annast fjárvörslu fyrir einstaklinga og lögaðila, reka verðbréfasjóði og skylda starfsemi. Að bönkum og sparisjóðum undanskildum er öðrum aðilum en verðbréfafyrirtækjum með fullgildu rekstrarleyfi óheimilt að annast framangreinda starfsemi og einkenna sig sem verðbréfafyrirtæki.
2. Við 15. gr. 1. málsl. 1. mgr. orðist svo: Almennt útboð markaðsverðbréfa annarra en ríkisskuldabréfa, skuldabréfa með ríkisábyrgð og ríkisvíxla skal ætíð fara fram með milligöngu verðbréfafyrirtækja, banka eða sparisjóða.