Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 293 . mál.
Sþ.
525. Tillaga til þingsályktunar
um afnám vínveitinga á vegum ríkisins.
Flm.: Jón Helgason, Hreggviður Jónsson, Skúli Alexandersson,
Birna K. Lárusdóttir, Karvel Pálmason, Margrét Frímannsdóttir,
Óli Þ. Guðbjartsson, Auður Eiríksdóttir, Sigríður Hjartar,
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Alþingi samþykkir að dregið verði úr vínveitingum á vegum ríkisins og allra stofnana þess hérlendis með það að markmiði að þær verði afnumdar að liðnum þremur árum.
Greinargerð.
Áfengisneysla er eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál allra þjóða. Af þeim sökum hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin samþykkt að þjóðirnar setji sér það markmið að draga úr áfengisneyslu um 25% á næsta áratug, eða til ársins 2000.
Í íslensku þjóðfélagi blasa líka við alvarlegar afleiðingar áfengisneyslunnar hvert sem litið er. Mörg hundruð unglingar, jafnvel niður í 15 ára að aldri, þarfnast nú bráðrar meðferðar á stofnunum vegna neyslu áfengis eða annarra vímuefna þar sem áfengisneyslan er nær undantekningarlaust undanfari. Hættan á að þessum unglingum fjölgi og að aldurinn lækki eykst að sjálfsögðu þegar sala á áfengu öli hefst, enda sögðu sumir meðmælendur hennar að heppilegt væri fyrir börn að byrja sína áfengisneyslu á áfengu öli. Fyrir þá unglinga, sem svo illa er komið fyrir, duga ekki þau 400 sjúkrarúm sem nú eru til fyrir áfengissjúklinga hérlendis þar sem þau eru þegar meira en fullnýtt og unglingarnir þurfa á sérhæfðari meðferð að halda en þar er unnt að veita.
Leið þessara áfengisneytenda liggur ekki aðeins inn í sjúkrahúsin. Allt of margir enda fyrr eða síðar í fangelsum sem einnig eru þegar ofsetin. Ástæðurnar fyrir því að þannig fer eru margvíslegar. Þar má nefna innbrot og þjófnaði til þess að ná í fjármuni fyrir vímuefnum og æ tíðari ölvunarakstur
þar sem börn og fullorðnir verða fyrir limlestingum, örkumlun og jafnvel dauða. Beinum ofbeldisárásum fjölgar einnig mjög þó að sjálfsagt fréttist fyrst og fremst af þeim sem hafa svo alvarlegar afleiðingar í för með sér að fjörtjón hlýst af. Hjónabönd leysast upp og þá er togast á um börnin eftir allar þær þjáningar sem þau hafa mátt líða áður en til slíks kemur. Þannig væri lengi hægt að telja lagaleg og siðferðisleg brot, en á því er ekki þörf þar sem staðreyndirnar tala skýrast sínu máli.
Rætt hefur verið um að þessu þurfi að verjast með því að auka löggæslu og eftirlit og fjölga sjúkrarúmum og meðferðarstofnunum. Sama gildir um þetta og vatnsflóð, það stoðar lítt að byggja varnargarða ef stöðugt er bætt í strauminn fyrir ofan. Þannig fer einnig ef áfengisneyslan eykst sífellt. Þá verða björgunarúrræðin haldlítil. Eina ráðið er því að fara að áskorun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og draga úr heildaráfengisneyslunni.
Æskan í landinu ber að sjálfsögðu ekki ábyrgð á því umhverfi sem hún elst upp í, það gera foreldrarnir og þjóðfélagið í heild og að sjálfsögðu ber ríkisvaldið ábyrgð á þessu sviði eins og öðrum með því að stuðla að heilbrigðu og góðu mannlífi. Allir alþingismenn hljóta að viðurkenna að meira en lítið er að í okkar þjóðfélagi fyrst þau örlög, sem hér er getið, bíða þúsunda æskufólks. Þá verða þeir líka að svara þeirri spurningu hvort þeir vilja sýna í verki áhuga sinn á að bæta það. Vegna þeirra áhrifa sem fordæmið hefur, skiptir tvímælalaust mestu máli að hægt sé að halda samkomur á vegum ríkisvaldsins án vínveitinga. Það væri áhrifaríkast til að breyta þeirri skoðun, sem nú virðist ríkja almennt í þjóðfélaginu, að ekki sé hægt að koma saman án þess að áfengi sé á boðstólum og helst að allir neyti þess. Það er þessi gífurlegi þrýstingur frá samfélaginu sem tvímælalaust er æskumanninum hættulegastur.
Eftir miklar umræður síðustu mánuði um áfengisúthlutun ríkisvaldsins og sökum þess mikla hnekkis sem hún hefur haft í för með sér fyrir einstaklinga og stofnanir þá hefur ríkisstjórnin samþykkt að breyta lítils háttar þeim úthlutunarreglum. Ekki er líklegt að sá kattarþvottur hafi nein áhrif á ástandið í áfengismálum þjóðarinnar fyrst þar var ekki stigið stærra skref. Þess vegna er þessi tillaga flutt.
Stefnumörkunin um að draga úr áfengisneyslu fram að árinu 2000 er að sjálfsögðu sett fram vegna þess tjóns sem sú neysla veldur. Samþykkt ríkisvaldsins á þeirri stefnu er marklaus ef það gerir ekki eitthvað sjálft til að vinna að henni í verki. Eina leiðin til að gera það og hamla jafnframt eitthvað gegn ölflóðinu, sem nú er að skella yfir þjóðina, er að samþykkja þá tillögu sem hér er flutt.