Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 296 . mál.
Sþ.
536. Tillaga til þingsályktunar
um dagvistarmál fatlaðra barna.
Flm.: Valgerður Sverrisdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Kristín Einarsdóttir,
Ólafur Þ. Þórðarson, Karl Steinar Guðnason, Guðmundur Ágústsson,
Auður Eiríksdóttir, Margrét Frímannsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera könnun á þörfum fatlaðra barna fyrir dagvistun og hvaða úrræða og úrbóta er þörf í þeim málaflokki. Sérstaklega skal að því hugað hver eigi að bera ábyrgð á og kosta uppbyggingu þjónustunnar og rekstur hennar. Jafnframt skal leita leiða til að tengja sérdeildir dagvistarstofnana svo sem framast er unnt við almennar deildir þeirra sem og stuðla að því að fötluð börn geti flust af sérdeildum yfir á almennar deildir.
Greinargerð.
Tillaga þessi var flutt á síðasta ári en náði ekki fram að ganga.
Eins og kunnugt er er kveðið á um það í lögum um málefni fatlaðra að dagvistarstofnanir og deildir tengdar þeim séu stofnanir fyrir fatlaða.
Það er viðurkennt að eðlilegasti vettvangur þjónustu við fötluð börn eru dagvistarstofnanir. Þar fá ófötluð og fötluð börn að kynnast og blandast í leik og starfi og jafnframt er unnt að veita hinum fötluðu börnum þá sérhæfðu meðferð sem þau þarfnast vegna fötlunar sinnar.
Í seinni tíð hefur þeim börnum fjölgað mjög sem beðið er um dagvist fyrir í þjónustu- og meðferðarskyni. Þetta stafar m.a. af því að með tilkomu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins greinist fötlun fyrr og talið er nauðsynlegt að hefja meðferðarvinnu með fötluðum börnum sem allra fyrst.
Skortur á dagvistarrými kemur af framangreindum orsökum hvað harðast niður á fötluðum börnum. Þessi hópur, sem alla jafna ætti að vera forgangshópur, þarf nú að bíða úrlausnar svo mánuðum og jafnvel árum skiptir. Það ber því brýna nauðsyn til að taka á þessu máli og leysa það á einhvern þann hátt að viðunandi sé. Núgildandi löggjöf er ekki nógu skilvirk og taka þarf af skarið
um hver beri ábyrgð á uppbyggingu þessarar þjónustu svo og hver skuli greiða kostnaðinn við hana.
Í samræmi við meginsjónarmið laga um málefni fatlaðra og þá stefnu um samskipun, sem ríkjandi er í þessum málaflokki, verður að mati flutningsmanna að leggja mikla áherslu á að tryggja að unnið sé markvisst að því að gera fötluðum börnum, sem vistast á sérdeildum, kleift að flytjast á almennar deildir þegar og ef aðstæður leyfa.
Vegna þeirrar þróunar og þeirra breytinga, sem átt hafa sér stað í þessum málaflokki, er mjög brýnt að tekið sé nú þegar á þessum málum, könnuð hver þörfin er og tekið af skarið um á hvern hátt þau verði leyst svo að viðunandi sé. Þrátt fyrir góðan anda og fögur fyrirheit í núverandi löggjöf heldur vandinn áfram að hlaðast upp og því er tillaga þessi til þingsályktunar nú endurflutt.