Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 302 . mál.


Sþ.

556. Tillaga til þingsályktunar



um menningarráðgjafa í landshlutum.

Flm.: Valgerður Sverrisdóttir, Óli Þ. Guðbjartsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir,


Matthías Bjarnason, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Margrét Frímannsdóttir.



    Alþingi ályktar að kjósa nefnd fulltrúa allra þingflokka til að undirbúa og koma á fót starfi menningarráðgjafa í öllum landshlutum. Nefndin ljúki störfum eigi síðar en 1. september 1989.

Greinargerð.


     Menning, þetta lítt höndlaða fyrirbæri sem fæstir voga sér að reyna að skilgreina en allir vita hvað er.
     Félagslíf, það sem allir hafa þörf fyrir en hafa oftlega ekki þor til að koma af stað.
     Listir, það sem allir þrá að njóta eða vera með í að skapa, hver að sínum smekk, en fæstir leggja til atlögu við hvatningar- og leiðbeiningarlaust.
    Samfélag án eigin menningar- og listalífs er dæmt til þess að líða undir lok. Flóttinn af landsbyggðinni á sér að stórum hluta skýringu í því að þessa þætti skortir.
    Þjóð þolir illa ofurvald fárra yfir menningu, félagslífi og listum. Líf þegnanna verður fábreytt og iðulega innantómt. Íslensk menning þarfnast mótvægis við ofurþunga þeirra áhrifa sem stafa frá Reykjavíkursvæðinu. Það mótvægi er unnt að skapa í hinum dreifðari byggðum með aðstoð menningarráðgjafa.
    Eftir að fjölmiðlar komu til sögunnar og eftir því sem þeir hafa orðið öflugri hefur æ meira borið á þeirri skoðun að það eitt sé menning sem flutt sé af þar til lærðu fólki á hverju sviði. Menntun er að sjálfsögðu aðferðin til að þroska og efla hæfileikana og próf að loknu námi er lykill að starfi listamannsins, en hitt er engu að síður nauðsynlegt þjóðlegu og góðu mannlífi að allur almenningur taki þátt í menningarstarfi. Flest bendir til þess að þegar í grunnskólanum mótist viðhorf til lífsins. Því er mikilvægt að börnin séu þá þegar þjálfuð í því að skapa eitthvað sjálf og að koma fram fyrir hóp og flytja mál sitt.
    Samkvæmt grunnskólalögum er ekki kveðið sérstaklega á um þess háttar uppfræðslu. Þó munu margir skólar hafa tekið upp þann sið að halda skemmtun einu sinni á ári þar sem nemendur semja eða velja efni til flutnings. Í minni skólum er jafnvel hægt að koma því svo fyrir að allir nemendur skólans fái eitthvert hlutverk við þetta tækifæri.
    Sums staðar hafa verið fengnir listamenn til að vinna með börnum í vikutíma og þeirri vinnu lýkur með sýningu í skólanum, sannkallaðri listahátíð. Enginn vafi er á að tilbreyting sem þessi opnar hug barnanna í menningarlegu tilliti auk þess sem það sannfærir mörg þeirra um að þau geti eitthvað.
    Í öllum sveitarfélögum á Íslandi á sér stað menningarstarfsemi á einhverju sviði. Virkust er þátttaka almennings í kórum og leikfélögum. Á allra síðustu árum hefur þó þróunin verið í þá átt að æ fleiri gerast sinnulausir og viðhorf til lista og menningar hefur verið að breytast með auknum áhuga á veraldlegum gæðum. Sveitarstjórnarmenn viðurkenna að þegar gengið er frá fjárhags- og framkvæmdaáætlunum lendi menning og listir aftast á listanum og sama hefur oft gilt um afgreiðslu fjárlaga á Alþingi.
    „Eftir höfðinu dansa limirnir“, segir í gömlu og drjúgsönnu orðtaki. Forráðamenn byggðarlaga og forustumenn þjóðarinnar verða að gera sér grein fyrir mikilvægi félagslegra þátta í mannlífi byggða sinna. Tómlæti og aðstöðuleysi hefur kæft margan þann gróður sem með aðhlynningu og við réttar aðstæður hefði getað sprottið og náð góðum þroska.
    Það starf, sem hér er lagt til að hafið verði, gæti orðið mikilvægur þáttur í að virkja einstaklinga á sviði menningar og lista, miðla efni á milli héraða, skipuleggja menningarstarfsemina í samráði við heimamenn á hverjum stað og vera skólastjórum til aðstoðar við listviðburði í skólum. Þá er einnig hugsanlegt að aðstoða við örnefnasöfnun og það starf safna að leita uppi fróðleik af menningarstarfi fyrri tíma og fleira mætti upp telja.
    Það þarf því enginn að velkjast í vafa um að verkefnin eru ærin og starfssviðið breitt. En þá er komið að spurningunni sem alltaf þarf að svara áður en ákvörðun er tekin: Hver á að borga starfsmanninum kaup? Í huga flutningsmanns er það ríkissjóður sem á að borga. Í því sambandi má nefna að með breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga er gert ráð fyrir að félagsheimilasjóður falli niður og þar með hlutdeild hans í skemmtanaskatti. Frumvarpið, eins og það liggur nú fyrir þinginu, gerir ráð fyrir að menningarsjóður félagsheimila fái 10% tekna af skemmtanaskatti og Sinfóníuhljómsveit Íslands jafnstóran hlut. Eftirstöðvum skal í samráði við fjármálaráðherra m.a. varið til menningarstarfsemi. Vel mætti hugsa sér að eyrnamerkja hluta skemmtanaskattsins til þeirrar starfsemi sem hér er fjallað um. Fjármálahlið málsins yrði að sjálfsögðu til umfjöllunar hjá þeirri nefnd sem kosin yrði á Alþingi til þess að annast skipulagningu starfs þessa.
    Skórinn kreppir víða á landsbyggðinni, sérstaklega hvað snertir atvinnulífið. Fullyrða má að einmitt þegar þannig háttar til er áríðandi að hlúa að félagslegum þáttum og manneskjunni sem einstaklingi. Að öðrum kosti er hætta á reiðuleysi og uppgjöf.



Fylgiskjal.


LÖG MENOR


(Samþykkt á stofnfundi 18. júní 1982.)



     1. gr .
    Samtökin heita Menningarsamtök Norðlendinga. Félagssvæði þess er hið sama og Fjórðungssambands Norðlendinga.

     2. gr.
    Samtökin eru frjáls samtök áhugafélaga og áhugamanna um listir á Norðurlandi. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri. Reikningsárið er almanaksárið.

     3. gr.
    Markmið samtakanna er að efla menningarlíf og menningarsamskipti á Norðurlandi í samstarfi við Fjórðungssamband Norðlendinga.

     4. gr.
    Þessu markmiði hyggjast samtökin ná með því að:
    a.     safna og miðla upplýsingum um listastarfsemi og menningarlíf í Norðlendingafjórðungi svo og annars staðar,
    b.     liðsinna við ráðningu leiðbeinenda til námskeiða- og fyrirlestrahalds svo og sérstakra verkefna í hinum ýmsu listgreinum,
    c.     stuðla að bættri umfjöllun um listir í fjölmiðlum,
    d.     efla samstarf áhugafólks um listir og menningarlíf í fjórðungnum og við hliðstæð félög og samtök annars staðar,
    e.     beita sér fyrir bættri aðstöðu og skipulagi listkynningar,
    f.     halda árlega ráðstefnu um lista- og menningarlíf í fjórðungnum í tengslum við aðalfund samtakanna.

     5. gr.
    Aðalfund samtakanna skal halda aðra helgi í júní ár hvert. Aðalfund skal boða félagsmönnum með dagskrá með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur telst löglegur ef boðað er til hans á réttan hátt.

     6. gr.
    Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfundur kýs stjórn samtakanna, endurskoðendur og enn fremur starfsnefndir, ef þurfa þykir. Stjórnina skipa fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega, en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Aðalfundur úrskurðar ársreikninga að fenginni umsögn endurskoðenda. Aðalfundur setur samtökunum fjárhagsáætlun fyrir næsta fjárhagsár að fengnum tillögum stjórnar.

     7. gr.
    Rétt til setu á aðalfundi með atkvæðisrétti eiga allir einstaklingar sem aðild eiga að samtökunum og fulltrúar aðilarfélaga, þannig að einn fulltrúi sé fyrir hverja tíu félaga. Þó skal hámarksfjöldi fulltrúa frá hverju aðildarfélagi á aðalfundi vera fimm. Aðalfundur er öllum opinn með málfrelsi og tillögurétti.

     8. gr.
    Árgjald til samtakanna skal vera með tvennum hætti, sérstakt árgjald fyrir einstaklinga og annað fyrir aðildarfélög.

     9. gr.
    Stjórn samtakanna fer með málefni þeirra milli aðalfunda. Stjórnin getur boðað til almenns félagsfundar ef henni þykir ástæða til. Skylt er að boða til félagsfundar ef fimmtungur fulltrúa óskar þess.

     10. gr.
    Breytingar á lögum þessum eru löglegar, séu þær samþykktar af 2/3 hlutum fulltrúa á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn samtakanna fjórum vikum fyrir aðalfund.

     11. gr.
    Leggist starfsemi samtakanna niður skal aðalfundur ákvarða um slit þeirra og ráðstöfun eigna þeirra.




Prentað upp.