Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 305 . mál.
Sþ.
559. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um verndun hrygningarstöðva botnfiska á Hornafjarðargrunni.
Frá Júlíusi Sólnes og Inga Birni Albertssyni.
1. Eru í undirbúningi einhverjar aðgerðir til að vernda hrygningar- og uppeldisstöðvar botnfiska og sumargotssíldar á Hornafjarðargrunni í svokölluðu „sláturhúsi“?
2. Kemur til greina að loka þessu svæði fyrir öllum togveiðum?