Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 341 . mál.
Sþ.
618. Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um beitarþolsmat og beitarþolsrannsóknir Rannsóknastofnunar landbúnaðarins.
Frá Guðna Ágústssyni.
1. Mun landbúnaðarráðherra beita sér fyrir því að unnið verði beitarþolsmat byggt á traustum vísindalegum grundvelli á öllum afréttum landsins?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir könnun óháðra aðila á starfsemi Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og annarra stofnana á þessu sviði þar sem m.a. verði leitað umsagna um rannsóknaraðferðir og hagnýtt gildi niðurstaðna?