Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 346 . mál.


Sþ.

630. Tillaga til þingsályktunar



um íslenskan gjaldmiðil.

Flm.: Kristinn Pétursson.



    Alþingi ályktar að skora á viðskiptaráðherra að skipa nefnd til þess að kanna með hvaða hætti helst kæmi til greina að treysta íslenskan gjaldmiðil þannig að hann njóti alþjóðlegrar viðurkenningar. Ráðherra skal skipa fimm menn í nefndina, einn tilnefndan af ASÍ, einn af VSÍ, einn frá Seðlabanka Íslands, einn frá Þjóðhagsstofnun og einn tilnefndan af viðskiptadeild Háskóla Íslands og sé hann formaður nefndarinnar. Nefndin skili áliti sínu til Alþingis fyrir árslok 1989.
    Nefndin skal einkum kanna þrjár leiðir í þessu sambandi:
1.     Gera Seðlabanka Íslands að sjálfstæðri stofnun, óháða framkvæmdarvaldinu.
2.     Láta framboð og eftirspurn ráða verði gjaldmiðilsins.
3.     Tengja gjaldmiðilinn við stærra myntkerfi.
    Nefndin skal leita álits hjá erlendum seðlabanka um málefni þetta.

Greinargerð.


    Mikill óstöðugleiki hefur einkennt íslenska efnahagsstjórn. Markmiðið með tillöguflutningi þessum er að sérstök nefnd reyni að finna leiðir til þess að auka stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífinu svo unnt verði að bæta starfsaðstöðu íslensks atvinnulífs, auka þar með verðmætasköpun og bæta lífskjör hér á landi. Ljóst má vera að Íslendingar hafa glatað miklum auðæfum og að kaupmáttur hér á landi er verulega lakari en þyrfti að vera vegna mikils óstöðugleika, verðbólgu og erlendrar skuldasöfnunar. Það er því afar brýnt að leitað verði nýrra leiða til að auka stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífinu.
    Spákaupmennska af ýmsum toga er óhjákvæmilegur fylgifiskur núverandi fyrirkomulags í peningamálum þar sem hún endurspeglar vantrú á núverandi
gjaldmiðli. Skulu hér nefnd nokkur dæmi:
1.     Tiltrú Íslendinga á gjaldmiðlinum er ekki mikil.
2.     Tiltrú erlendra aðila á gjaldmiðli okkar er enn minni.
3.     Verðlag hækkar sífellt.
4.     Framkvæmdaraðilar hraða verkum sínum áður en allt hækkar aftur.
5.     Verkalýðsforustan krefst ríflegra kauphækkana.
6.     Liðir 1–5 valda vaxtahækkunum.
    Spákaupmennsku og vantrú á gjaldmiðli þjóðarinnar verður ekki eytt nema íslenski gjaldmiðillinn njóti alþjóðlegrar viðurkenningar. Enda er ekkert sem bendir til annars en þetta eigi að vera framkvæmanlegt þar sem íslenska þjóðin á gjöfular auðlindir og mun gjöfulli en margar aðrar þjóðir af svipaðri stærð sem hafa þó hagstjórn og peningamál sín í viðunandi ástandi.
    Aldrei áður hefur verið jafnþýðingarmikið og nú að ná til langframa stöðugleika og jafnvægi í efnahagsmálum hér á landi því að samkeppni fer sífellt harðnandi á innlendum og erlendum mörkuðum. Flutningar, upplýsingar og samskipti milli einstakra markaðssvæða og landa verða sífellt auðveldari vegna örra framfara á öllum sviðum. Gera má ráð fyrir enn harðari samkeppni við ríki Evrópubandalagsins við opnun innri markaðar þess 1992.
    Þjóðin öll hefur glatað miklum verðmætum vegna óðagots í fjárfestingum, verðbólgu og spákaupmennsku. Ljóst er að útflutningsframleiðsla, samkeppnisiðnaður og önnur verðmætaframleiðsla hefur orðið verst úti hin síðari ár. Eiginfjárstaða atvinnuvega þjóðarinnar hefur farið ört rýrnandi og er þar um að ræða mjög alvarlegt mál. Höfuðstól aðalatvinnuvega þjóðarinnar má líkja við stofnstærð fiskstofna: að skerða höfuðstólinn er að lifa á kostnað framtíðarinnar og ávísun á rýrnandi kaupmátt.
    Forsenda aukins kaupmáttar og verndun þess velferðarkerfis, sem Íslendingar búa nú við, er að vænleg leið finnist til að auka stöðugleika í íslensku efnahagslífi og ná verðbólgu niður á svipað stig og í helstu samkeppnislöndum. Til að svo geti orðið er nauðsynlegt að íslenska myntkerfið njóti alþjóðlegrar viðurkenningar.