Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 2 . mál.


Ed.

640. Nefndarálit



um frv. til l. um eignarleigustarfsemi.

Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur athugað frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem á því voru gerðar í meðförum neðri deildar og þeirri breytingartillögu sem birt er á sérstöku þingskjali. Sú breytingartillaga miðar að því að færa orðalag frumvarpsins til samræmis við orðalag í frumvarpi til laga um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
    Þrír nefndarmanna, Eyjólfur Konráð Jónsson, Halldór Blöndal og Júlíus Sólnes, áskilja sér þó rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.
    Eyjólfur Konráð Jónsson og Ragnar Óskarsson voru fjarverandi við lokaafgreiðslu frumvarpsins.

Alþingi, 17. mars 1989.



Eiður Guðnason,

Valgerður Sverrisdóttir,

Júlíus Sólnes.


form.

fundaskr., frsm.



Halldór Blöndal.

Jóhann Einvarðsson.