Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 369 . mál.


Nd.

692. Frumvarp til laga



um breyting á lögum um vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga, nr. 18 22. apríl 1959.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    1. málsl. 3. gr. orðast svo:
    Heimild þessi gildir til ársloka 1999.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 13 16. mars 1949 var Sambandi íslenskra berklasjúklinga heimilað að stofnsetja og reka vöruhappdrætti og gilti heimildin í 10 ár. Sú heimild var framlengd með lögum nr. 18 22. apríl 1959 til ársloka 1969 og síðar til ársloka 1979 með lögum nr. 32 5. maí 1969. Enn var sú heimild framlengd með lögum nr. 78 10. maí 1978 til ársloka 1989.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að heimild Sambands íslenskra berklasjúklinga til rekstrar vöruhappdrættis verði á ný framlengd um 10 ár, þ.e. til ársloka 1999.
    Ágóða af happdrættinu skal samkvæmt lögunum varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands íslenskra berklasjúklinga sem viðurkennd er af ríkisstjórninni.