Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 370 . mál.


Ed.

693. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)


1. gr.

    Ríkisborgararétt skulu öðlast:
1.     Bjarni Geir Ársælsson, nemandi í Reykjavík, f. 28. desember 1968 í Reykjavík.
2.     Copeland, Katarzyna Maria Krystyna Kasprzyk, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 23. nóvember 1951 í Póllandi.
3.     Dowrch, Jassin, barn í Reykjavík, f. 21. október 1977 í Danmörku.
4.     Driscoll, Matthew James, kennari í Reykjavík, f. 15. maí 1954 í Bandaríkjunum.
5.     Lovísa Guðmundsdóttir, meinatæknir í Reykjavík, f. 10. desember 1953 í Danmörku.
6.     Mahaney, Stella Marie, nemandi í Reykjavík, f. 22. febrúar 1962 í Bandaríkjunum.
7.     Pedersen, Birthe Annelise, húsmóðir í Reykjavík, f. 23. júlí 1936 í Danmörku.
8.     Rubner, Miriam, starfsstúlka í Reykjavík, f. 4. júlí 1949 í Ísrael.
9.     Spencer, Farzaneh Jafari, húsmóðir í Keflavík, f. 25. desember 1944 í Íran.
10.     Stross, Þórdís, fiðluleikari í Reykjavík, f. 13. desember 1963 í Reykjavík.
11.     Strupler, Margrit, bóndakona í Rangárvallasýslu, f. 24. júní 1947 í Sviss.
12.     Thayer, Elín María, kennari í Reykjavík, f. 8. september 1964 í Reykjvík.
13.     Tosti, Luciano, framreiðslumaður í Reykjavík, f. 7. febrúar 1955 á Ítalíu.
14.     Zapanta, Mayeth Sta. Ana, starfsstúlka í Reykjavík, f. 14. febrúar 1965 á Filippseyjum.

2. gr.

    Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni íslenskt ríkisfang með lögum, og skulu þá börn hans, fædd síðan, heita íslenskum nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn, en hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn — ásamt því sem hann ber fyrir — er börn hans taka sem kenningarnafn. Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Umsækjendur þeir, sem teknir hafa verið á lagafrumvarp þetta, fullnægja skilyrðum, sem sett hafa verið af allsherjarnefndum beggja þingdeilda.
    Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á yfirstandandi 111. löggjafarþingi. Fyrra frumvarpið hlaut afgreiðslu fyrir miðsvetrarhlé.
    Á síðasta þingi var þessi háttur viðhafður að tillögu þáverandi dómsmálaráðherra að afgreiða slíkt frumvarp bæði miðsvetrar og vors. Reynsla ráðuneytisins af þessu fyrirkomulagi er mjög góð og til þæginda fyrir umsækjendur.