Ferill 182. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 182 . mál.


Ed.

709. Breytingartillögur



við frv. til l. um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði.

Frá allsherjarnefnd.



1.     Við 4. gr. Síðasti málsliður 4. mgr. orðist svo: Nú verður sæti dómstjóra laust um stundarsakir eða hann forfallast og fer þá sá dómari með dómstjórn sem elstur er að embættisaldri við dóminn.
2.     Við 13. gr. 2. og 3. mgr. falli brott.
3.     Við 14. gr. Lokamálsliður fyrri málsgreinar falli brott.
4.     Við 16. gr. Í stað „1990“ komi: 1992.
5.     Við 18. gr. Aftan við lokamálslið 2. mgr. bætist: en meðan þessi skipan helst skal sá dómari, sem eldri er að embættisaldri, fara með dómstjórn.