Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 378 . mál.


Sþ.

715. Tillaga til þingsályktunar



um nám og námsefni fyrir fatlað fólk í heimavistarskóla.

Flm.: Guðni Ágústsson, Benedikt Bogason, Karl Steinar Guðnason,


Auður Eiríksdóttir, Kristín Einarsdóttir, Friðjón Þórðarson,


Skúli Alexandersson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna hvort ekki sé hægt að nýta aðstöðu í héraðs- eða heimavistarskólum landsins svo að fötluðu fólki gefist kostur á að stunda fjölbreytt nám í einhverjum þessara skóla að loknu grunnskólanámi.

Greinargerð.


    Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í málefnum fatlaðs fólks á síðustu árum er ljóst að betur má svo hægt sé að segja að þjóðfélag okkar gefi öllum kost á námi og vinnu við sitt hæfi. Öskjuhlíðarskólinn í Reykjavík og Löngumýrarskólinn á Akureyri hafa með starfi sínu skilað fötluðum mikilli þekkingu og verkkunnáttu. Og víða er nú í sérdeildum skóla unnið mikið og gott starf.
    Hér er lagt til að kannað verði hvort unnt sé að skapa einhverjum héraðs- eða heimavistarskólanum (einum eða fleirum) þau skilyrði og nýta þær aðstæður, sem þar eru fyrir hendi, til að koma með einhverjum hætti inn í félags- og skólastarf fatlaðra — uppeldisstarf í víðasta skilningi.
    Húsnæði þessara gömlu menntastofnana er nú að einhverju leyti vannýtt og því sjálfsagt að huga að vænlegri og happasælli nýtingu þess.
    Oft hefur verið á það minnst í umræðum um nýtt hlutverk þessara gömlu mennta- og menningarstofnana að hver þessara skóla fengi sérverkefni með venjulegu grunnskóla- eða framhaldsnámi. Hér er varpað fram hugmynd um slíkt hlutverk.
    Helstu markmið með kennslu í heimavistarskóla fyrir fatlaða væru eftirfarandi:
1.     Veita kennslu og þjálfun í starfsnámi og almennri umgengni varðandi athafnir daglegs lífs.
. a.     Efla sjálfstæði, sjálfsöryggi og sjálfsmynd nemanda til að skapa betri líðan hans úti í þjóðfélaginu jafnt sem heima fyrir og auka þannig færni til starfa á almennum vinnumarkaði.
. b.     Auka færni til þátttöku í þjóðfélaginu með þjálfun í athöfnum daglegs lífs og þátttöku í félagslífi og starfi við hæfi með reglubundnum samskiptum við vinnustaði, athafnalíf og félagslíf. Veita þjálfun í ýmiss konar hagnýtum störfum, svo sem ýmsum iðngreinum, bústörfum, fiskvinnslu og skrifstofutækni. Gera nemendur hæfa til búsetu á eigin vegum eða til sjálfstæðs heimilishalds og ákvarðana um eigið líf og starf.
2.     Auka færni í undirstöðuatriðum í lestri, stærðfræði og skrift.
. a.     Kennsla og þjálfun fari fram við fjölbreyttar og eðlilegar aðstæður og tengist sem mest daglegu lífi í því umhverfi þar sem skólinn er.
. b.     Með þátttöku í fjölbreyttu daglegu lífi og starfi í heimavistarskóla verði stefnt að því að nemendur nái færni við að lesa og tjá sig sér til gagns og komist um á eigin vegum og kunni helstu skil á peningalegu verðmæti, t.d. varðandi laun, launagreiðslur og framfærslu einstaklinga.
    Kennsla fari fram í samfelldu starfi, þ.e. skólahald og daglegt líf utan skólatíma haldist í hendur þannig að það sem verið er að gera á öðrum staðnum verði einnig hagnýtt á hinum. Stundaskrá verði ekki bundin við hefðbundnar 40 mínútna kennslustundir heldur verði við skipulagningu námsins tekið mið af verkefnum og þörfum nemenda.
    Kennslan fari fram við þegar starfandi heimavistarskóla og sé hluti af starfsemi hans þannig að fatlaðir nemendur hafi tækifæri til að blandast öðrum nemendum bæði í félagslífi, kennslu og starfi. Kennsla, þjálfun og félagslíf utan skólatíma verði fléttað sem best og nánast saman. Þess vegna þarf að vera unnt að hafa viðveru tengda skóla frá kl. 8 (9) til 15 (16). Tími utan þess verði einnig undirbúinn og skipulagður til að reyna að tryggja það að nemendur verði ekki utanveltu í félagslegum samskiptum. Því þarf að vera unnt að nýta heimavistarskóla með fleiri nemendum og gjarnan þar sem eru fleiri skólar eða öflugt atvinnulíf.
    Tillaga þessi er sett fram sem hugsanlegt framlag í réttindabaráttu fatlaðra, vænlegur kostur til frekari könnunar á viðbótarverkefni þeirra skóla sem eiga svo mjög merka sögu að baki.