Ferill 379. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 379 . mál.


Nd.

717. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um lyfjadreifingu, nr. 76/1982.

Flm.: Guðni Ágústsson.



1. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
    Lyfsöluleyfi má veita einstaklingum, samvinnufélögum, bæjar- og sveitarfélögum, sem standa að rekstri heilsugæslustöðvar, og Háskóla Íslands samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með þessu frumvarpi er lagt til að réttur samvinnufélaga til að reka lyfjabúðir verði efldur. Enn fremur er lagt til að bæjar- og sveitarfélög öðlist rétt til að reka lyfjabúðir. Með þessari breytingu flyst lyfjasala úr höndum lækna og hlýtur það að vera æskilegt eigi fullkominn trúnaður að ríkja.
    Lyfjasala er yfirleitt hagkvæm rekstrareining. Smásöluálagning á lyfjum er há og rekstur lyfjabúða einfaldari í sniðum en áður var þar sem lyfjagerð fer þar ekki fram nema í mjög litlum mæli, aðeins 2% af heildarsölu lyfjabúða eru nú framleidd í lyfjabúðinni. Stærstur hluti lyfja er nú keyptur í lyfjabúðirnar frá heildsölu í stöðluðum formum og umbúðum sem ekki má rjúfa.
    Ólafur Ólafsson landlæknir segir í grein í tímaritinu Sveitarstjórnarmálum sem út kom í okt. sl., 5. tbl. 1988:
    „Lyfin eru orðin það dýr að fæstir hafa efni á að greiða að fullu fyrir lyfjameðferð við smávægilegum kvillum, enda greiðir ríkið langt yfir 90% af lyfjakostnaði einstaklinga.
    Með hliðsjón af þessari þróun, þ.e. að ríkið greiðir þetta hátt hlutfall og hærra á einstökum lyfjum, liggur beinast við að opinberir aðlar eigi og reki lyfjabúðirnar. Þar eð hagnaður af lyfsölu er góður ýtir það á að lyfsalan
verði hluti af heilsugæslunni. Í héraði með 1000 manna byggð, þar sem lyfsalan er rekin af sveitarstjórn eða heilsugæslu, dugar hagnaður af sölunni til þess að greiða hlut sveitarfélagsins í rekstri heilsugæslunnar, þ.e. laun ritara, afgreiðslustúlku í lyfjabúð, hreingerningu og allar rekstrarvörur.“
    Það er sannfæring flutningsmanns að það sé mikilvægt, bæði fyrir lyfjabúðirnar og byggðarlögin, að hagnaðurinn, sem af rekstri lyfjabúðanna kemur, komi byggðarlaginu til góða.
    Það er eigi að síður mikilvægt, og ber að tryggja, að lyfsalan verði undir faglegri stjórn lyfjafræðinga, að t.d. við minni lyfjabúðir sé ráðinn lyfjafræðingur sem ráðgefandi eftirlitsaðili. En lyfjagerð verði aðeins leyfð í þeim lyfjabúðum og útibúum sem lyfjafræðingar stjórna. Sala vandmeðfarinna lyfja verði einungis heimil í lyfjabúðum þar sem fastráðnir lyfjafræðingar starfa.