Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 406 . mál.


Ed.

762. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 37/1961, um ríkisábyrgðir, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    1. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 65/1988, orðist svo:
    Bankar, lánasjóðir, lánastofnanir, fyrirtæki og aðrir þeir aðilar, sem lögum samkvæmt njóta ábyrgðar ríkissjóðs, hvort sem hún byggist á eignaraðild ríkissjóðs eða öðru, skulu greiða ábyrgðargjald til ríkissjóðs af skuldbindingum sínum sem hér segir, sbr. þó 9. gr.:
a.     af skuldbindingum sínum gangvart erlendum aðilum, þar með talið af ábyrgðum,
b.     af skuldbindingum sínum gangvart innlendum aðilum sem eru í formi framseljanlegra verðbréfa, þ.e. skuldabréfa, vaxtabréfa, bankabréfa o.þ.h. verðbréfa, sem boðin eru einstaklingum og lögaðilum til kaups hvort sem þau eru talin markaðsbréf eða ekki og hvort sem þeir eru skuldarar eða ábyrgjast greiðslu slíkra verðbréfa.

2. gr.

    4. mgr. 9. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 65/1988, orðist svo:
    Seðlabanki Íslands skal undanþeginn ábyrgðargjaldi skv. 8. gr. Byggingarsjóður ríkisins, Byggingarsjóður verkamanna og Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina skulu undanþegnir ábyrgðargjaldi samkvæmt b-lið fyrri mgr. 8. gr.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Ábyrgðargjald af skuldbindingum, sem um ræðir í b-lið 1. gr., skal greiða í fyrsta sinn vegna annars ársfjórðungs 1989.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í ákvæðum VI. kafla bráðabirgðalaga nr. 68/1987, um ráðstafanir í
ríkisfjármálum, var kveðið á um að þeir, sem njóta ríkisábyrgðar er byggist á eignaraðild ríkissjóðs eða öðrum atriðum, skuli greiða ríkisábyrgðargjald af skuldbindingum sínum gangvart erlendum aðilum. Þessi ákvæði voru felld inn í lög nr. 37/1961, um ríkisábyrgðir, með lögum nr. 65/1988. Ábyrgðargjaldið er greitt ársfjórðungslega og nemur það 0,0625% af höfuðstól gjaldskyldra skuldbindinga eins og hann er að meðaltali á hverju tímabili.
    Í þessu frumvarpi er lagt til að skuldbindingar umræddra aðila í formi innlendra verðbréfa myndi gjaldstofn til ábyrgðargjalds með sama hætti og skuldbindingar þeirra gangvart erlendum aðilum. Með þessu móti er stefnt að því að samræma gjaldtöku vegna ríkisábyrgða, m.a. í því skyni að koma í veg fyrir mismunun. Í þessu sambandi má benda á að skv. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 86/1985, um viðskiptabanka, ber ríkissjóður ábyrgð á öllum skuldbindingum ríkisviðskiptabanka. Bankarnir bjóða verðbréf til sölu á innlendum lánsfjármarkaði, m.a. í samkeppni við ríkisskuldabréf og verðbréf lánastofnana sem ekki njóta ríkisábyrgðar. Þessar skuldbindingar ríkisbankanna njóta í raun ríkisábyrgðar án þess að nokkurt gjald sé innt af hendi í ríkissjóð af þeim sökum. Aðrir þurfa hins vegar að greiða sérstakt áhættugjald gangi ríkið í ábyrgð fyrir þá, sbr. 4. gr. laganna um ríkisábyrgðir. Óeðlilegt er að þau fyrirtæki og stofnanir, sem hér um ræðir, geti í skjóli eignaraðildar ríkissjóðs skapað sér betri stöðu á innlendum lánsfjármarkaði en samkeppnisaðilar þeirra sem ekki eru í ríkiseign. Frumvarpi þessu er með öðrum orðum ætlað að girða fyrir þá mismunun sem nú á sér stað í þessum efnum.
    Gjaldskylda samkvæmt frumvarpi þessu nær m.a. til ríkisviðskiptabankanna tveggja, Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands, og þeirra fjárfestingarlánasjóða sem eru með ríkisábyrgð, að undanskyldum Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Hér er einkum um að ræða Byggðastofnun, Fiskveiðasjóð, Framkvæmdasjóð, Iðnlánasjóð, Iðnþróunarsjóð og Stofnlánadeild landbúnaðarins.
    Spariskírteini ríkissjóðs hafa að undanförnu átt í vaxandi samkeppni við verðbréfaútgáfu þessara aðila. Það hefur skekkt samkeppnisstöðu spariskírteina ríkissjóðs í þessu sambandi að vextir bankabréfa ríkisviðskiptabankanna hafa verið um 1% hærri en vextir ríkisskuldabréfa þar sem bankabréfin eru eignarskattskyld, en spariskírteinin ekki. Lífeyrissjóðir eru undanþegnir tekjuskatti og eignarskatti og hafa því geta nýtt sér að fullu þennan vaxtamun. Lífeyrissjóðir hafa því keypt mun meira af bankabréfum en ríkisskuldabréfum.
    Samkeppnin, sem spariskírteini ríkissjóðs hafa sætt frá bankabréfum, er að því leyti ósanngjarnari en samkeppnin frá verðbréfaútgáfum
fjárfestingarlánasjóðanna að gerð er grein fyrir þeim síðarnefndu fyrir fram í lánsfjáráætlun á sama hátt og ríkissjóður kynnir áform sín um sölu spariskírteina á hverju ári. Útgáfa bankabréfa hefur hins vegar að undanförnu verið hömlulítil. Á síðasta ári jókst bankabréfaskuld ríkisviðskiptabankanna um 2,8 milljarða kr., en bankabréfaskuld viðskiptabanka í heild jókst um 3,4 milljarða kr. Verðbréfaskuld veðdeilda bankanna jókst á síðasta ári um 2 milljarða kr. Til samanburðar má geta þess að sala spariskírteina á almennum markaði nam 3 milljörðum kr. á síðasta ári. Frá áramótum til loka febrúar jókst bankabréfskuld bankanna um 880 milljónir kr., en þar af nam aukningin hjá ríkisviðskiptabönkunum um 630 milljónir kr. Meðfylgjandi fylgiskjal sýnir nánar þróunina á undanförnum árum varðandi bankabréf og önnur markaðshæf verðbréf.
    Samkeppnisstaða spariskírteina ríkissjóðs gagnvart bankabréfum hlutafélagabankanna ætti ekki að vera áhyggjuefni, þrátt fyrir lægri vexti á ríkisskuldabréfum, einmitt vegna þess að bankabréf hlutafélagabankanna eru ekki jafntryggar eignir og spariskírteini ríkissjóðs. Skuldir hlutafélagabankanna eru ekki tryggðar með ábyrgð ríkissjóðs. Innlán hlutafélagabankanna eru hins vegar tryggð, a.m.k. að hluta, af Tryggingarsjóði viðskiptabanka, skv. IX. kafla laga um viðskiptabanka. Engar slíkar tryggingar eru að baki bankabréfanna.
    Álagning ríkisábyrgðargjalds á innlendar skuldbindingar banka- og lánastofnana, sem njóta ábyrgðar ríkissjóðs, mun ekki ein út af fyrir sig lagfæra þá röskun á samkeppnisstöðu spariskírteina sem felst í ótakmarkaðri útgáfu bankabréfa með ríkisábyrgð. Hins vegar mun gjaldtakan hjálpa til í því efni þar sem ætla má að hún hvetji banka og lánastofnanir til aðgæslu í skuldabréfaútgáfu sinni. Full þörf sýnist vera á slíku aðhaldi.
    Miðað við stöðu bankabréfa í lok febrúar og innlendar skuldbindingar fjárfestingarlánasjóða með ríkisábyrgð í lok síðasta árs má gróflega áætla að gjald þetta geti skilað ríkissjóði um 20–25 m.kr. á ársfjórðungi. Þannig gætu tekjur af gjaldinu numið um 80–100 m.kr. á einu ári, þar af 40–50 m.kr. í ár.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. gildandi laga tekur gjaldskyldan aðeins til skuldbindinga gagnvart erlendum aðilum. Í þessari grein er lagt til að gjaldskyldan taki á sama hátt til þeirra skuldbindinga þeirra stofnana, sem nefndar eru í greininni, gagnvart innlendum aðilum sem eru í formi
framseljanlegra verðbréfa. Með því er átt við hvers konar skuldabréf, vaxtabréf, bankabréf og sambærileg verðbréf sem boðin eru einstaklingum og lögaðilum til kaups og gildir einu hvort um er að ræða markaðsverðbréf eða ekki. Gjaldskylda tekur ekki aðeins til þessara aðila sem skuldara slíkra verðbréfa heldur einnig á sama hátt til þeirra verðbréfa sem þeir ábyrgjast greiðslu á.

Um 2. gr.


    Samkvæmt 4. mgr. 9. gr. gildandi laga er Seðlabanki Íslands einn undanþeginn ábyrgðargjaldi skv. 8. gr. laganna. Eðlilegt þykir með tilliti til hlutverks og eðlis Byggingarsjóðs ríkisins, Byggingarsjóðs verkamanna og Atvinnutryggingarsjóðs að undanþiggja þessa sjóði gjaldskyldu á innlendum skuldbindingum. Í þessari grein er gerð tillaga þar að lútandi. Af þessu leiðir að húsbréf Byggingarsjóðs ríkisins mundu verða undanþegin gjaldinu verði húsbréfakerfi lögleitt hér á landi.

Um 3. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.


    Sjá töflu í prentuðu þingskjali.