Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 203 . mál.


Ed.

763. Nefndarálit


um frv. til 1. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Frá félagsmálanefnd.



     Nefndin hefur fjallað vandlega um frumvarpið á mörgum fundum og leggur til að það verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Nefndin fagnar þeirri samstöðu sem náðst hefur um afgreiðslu þessa mikilvæga máls, jafnt meðal stjórnmálaflokkanna og sveitarfélaganna í landinu, sem sést meðal annars á þeim eindregna stuðningi sem kom fram við frumvarpið á fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri 30. og 31. mars sl.
     Nefndinni bárust umsagnir um frumvarpið frá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Fjórðungssambandi Norðlendinga, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, hreppsnefnd Miðneshrepps, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, Fóstrufélagi Íslands, fulltrúaráði sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, bæjarstjórn Neskaupstaðar, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, bæjarráði Keflavíkur, bæjarstjórn Grindavíkur og hreppsnefnd Gerðahrepps. Þá komu á fund nefndarinnar Sigurgeir Sigurðsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Áskell Einarsson og Hjörtur Þórarinsson frá landshlutasamtökum sveitarfélaga. Jafnframt héldu félagsmálanefndir beggja deilda fund með stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með nefndinni störfuðu Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri.
    Nefndin flytur 14 breytingartillögur við frumvarpið og eru langflestar þeirra fluttar að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Verður hér gerð grein fyrir þessum breytingum í sömu röð og þær eru á þingskjalinu.
    1. Brtt. við 1. gr. felur ekki í sér efnisbreytingu, heldur er verið að gera orðalag greinarinnar skýrara. Í fyrsta lagi er verið að kveða skýrar á um að ríkið greiði að fullu stofnkostnað stofnana fyrir fatlaða. Í öðru lagi er einnig verið að kveða skýrar á um að sveitarfélög greiði stofnkostnað sérdeilda fyrir fatlaða á dagvistarstofnunum fyrir börn.
    2. Brtt. við 2. gr. felur í sér að sérstök flutningaþjónusta fyrir fatlaða skuli greidd úr ríkissjóði en ekki af rekstrarfé viðkomandi stofnunar eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
    3. Brtt. við 4. gr. felur í sér, í fyrsta lagi að 85% kostnaðar við byinggingu og búnað heilsugæslustöðva skuli greidd úr ríkissjóði en 16% af hlutaðeigandi sveitarfélögum. Í frumvarpinu voru hlutföllin 60% og 40%. Meginástæðan fyrir þessari breytingu er að sveitarfélögin eru misjafnlega á vegi stödd í uppbyggingu heilsugæslustöðva og því er talið rétt að halda óbreyttri kostnaðarskiptingu enn um sinn. Í öðru lagi er kveðið á um að sveitarfélögin láti í té lóðir undir heilsugæslustöðvar ríkissjóði að kostnaðarlausu og án greiðslu gatnagerðargjalda. Er það í samræmi við þá aðferð sem viðhöfð hefur verið undanfarin ár en á síðasta ári komu upp efasemdir um að það styddist við nógu traustar lagaheimildir og er því talið rétt að setja ákvæði í lög er tekur af öll tvímæli í þessum efnum.
    4. Brtt. við 5. gr. felur í sér að viðhaldskostnaður fasteigna og tækja heilsugæslustöðva er greiddur sem rekstrarkostnaður en ekki stofnkostnaður. Er þessi breyting í samræmi við viðtekna venju. Nefndin taldi hins vegar ekki rétt að endurnýjunarkostnaður fasteigna og tækja skyldi greiddur sem rekstarkostnaður því að oft er hér um svo viðamiklar breytingar að ræða að þær jafnast á við stofnkostnað.
    5. Brtt. við 6. gr. varðar stjórnir heilsugæslustöðva. Lagt er til að sveitarstjórnir tilnefni þrjá stjórnarmenn í stað tveggja samkvæmt frumvarpinu og að starfslið tilnefni einn stjórnarmann í stað tveggja samkvæmt frumvarpinu. Talið er rétt að sveitarstjórnir hafi áfram meiri hluta í stjórnum heilsugæslustöðva þó að ríkið taki alveg yfir rekstur þeirra, enda skipar ráðherra einn stjórnarmann sem jafnframt skal vera formaður. Þá er og rétt að hafa í huga að oft sitja sérstakir áheyrnarfulltrúar starfsfólks stjórnarfundi.
    6. Lagt er til að 7. gr., er varðar skipan stjórna sjúkrahúsa, falli brott. Ástæðan er m.a. sú að ekki náðist fullkomin samstaða um fyrirhugaðar breytingar, einkum er varðaði skipan stjórna einkasjúkrahúsa eða sjálfseignarstofnana. Eðlilegra er talið að ef gera á breytingar á skipan stjórna sjúkrahúsanna þá verði þær gerðar í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu sem nú eru í undirbúningi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
    7. Brtt. við 8. gr. varðar sjúkrahúsbyggingar og felur í sér sams konar breytingu og gerð var við 4. og 5. gr. varðandi heilsugæslustöðvar.
    8. Brtt. við 35. gr. felur í sér tvær breytingar. Í 1. mgr. er gerð breyting er þýðir að ekki þurfi að koma til samþykki menntamálaráðuneytis fyrir gerð skólamannvirkja. Telja verður að þar sem sveitarfélög greiða kostnað við byggingu grunnskóla (sbr. 49. gr. frv.) þá sé ekki ástæða til að slíkar byggingar þurfi samþykki menntamálaráðuneytisins. Þá er 4. mgr. felld niður en ákvæði hennar fól í sér að nafngift skóla væri háð samþykki menntamálaráðuneytisins. Telja verður að heimamenn séu fullfærir um að ákveða slíka hluti sjálfir.
    9. Brtt. við 1. mgr. 41. gr. felur í sér að fellt er brott ákvæði þess efnis að daglegt eftirlit og umsjón með nemendum í heimavistarskólum skuli vera í höndum starfsmanna með uppeldismenntun. Stundum getur verið erfitt að fá slíkt sérmenntað fólk til starfa og því ekki eðlilegt að binda starfið að öllu leyti við slíkar starfsstéttir.
    10. Brtt. við 3. mgr. 47. gr. felur í sér að þar sem fleiri sveitarfélög en eitt standa að rekstri grunnskóla skuli hlutaðeigandi sveitarstjórnir, í stað oddvita, tilnefna fulltrúa sameiginlega til að endurskoða reikninga skólans. Þykir eðlilegra að þetta sé í höndum sveitarstjórna en oddvita.
    11. Brtt. við 49. gr. felur ekki í sér beinar efnisbreytingar heldur er verið að gera orðalag greinarinnar skýrara.
    12. Brtt. við 50. gr. felur ekki í sér beinar efnisbreytingar. Orðalag greinarinnar hefur verið gert ákveðnara og greinin stytt enda var hún óþarflega löng.
    13. Brtt. við 60. gr. felur í sér að fellt er brott að menntamálaráðuneytið skuli hafa með höndum umsjón og eftirlit með dagvistarstofnunum. Þar sem dagvistarstofnanir verða nú verkefni sveitarfélaga þykir það fela í sér óþarfa afskipti af hálfu menntamálaráðuneytisins að það skuli hafa sérstakt eftirlit með þessari starfsemi. Hins vegar stendur óbreytt ákvæði greinarinnar að ráðuneytið sé sveitarstjórnum til ráðuneytis um þessi mál. Þrátt fyrir þessa breytingu mun menntamálaráðuneytið (sbr. 11. gr. laga um dagvistarstofnanir) áfram setja reglugerð um húsakost og búnað dagvistarstofnana.
    14. Við 75. gr., er fjallar um kostnaðaruppgjör milli ríkissjóðs og sveitarfélaga, eru fjórar breytingar. Í fyrsta lagi kemur í 1. mgr. viðbótarákvæði sem felur í sér að við mat á skuldbindingum ríkissjóðs vegna byggingar dagvistarheimila, grunnskóla, íþróttamannvirkja og félagsheimila skuli ekkí aðeins miða við núgildandi lagaákvæði um hlutdeild ríkissjóðs í byggingarkostnaði heldur einnig sérsamninga sem gerðir hafa verið við einstök sveitarfélög um skólamannvirki.
    Í öðru lagi er sú breyting gerð í 2. mgr. að framlög ríkissjóðs á fjárlögum 1989 ganga ekki til greiðslu á skuldum vegna framkvæmda sem unnar voru fyrir árslok 1988, heldur eingöngu til framkvæmda á árinu 1989.
    Í þriðja lagi er í 3. mgr. sett ákvæði um sérstaka úrskurðarnefnd sem skjóta má til málum í þeim tilvikum þar sem ekki næst samkomulag milli ríkissjóðs og sveitarfélaga um kostnaðaruppgjör skv. 1. og 2. mgr. Ekki er ólíklegt að einhver ágreiningur verði um kostnaðaruppgjör og því eðlilegt að hægt sé að skjóta slíkum málum til einhvers úrskurðaraðila.
    Í fjórða lagi eru í 4. mgr. tekin af öll tvímæli um að greiðslu ríkissjóðs vegna áðurgreindra framkvæmda skuli lokið á því fjögurra ára tímabili sem tilgreint er í frumvarpinu.
    Júlíus Sólnes áskilur sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma.

Alþingi, 5. apríl 1989.



Margrét Frímannsdóttir,


form., frsm.


Karl Steinar Guðnason,


fundarskr.


Júlíus Sólnes.



Jóhann Einvarðsson.


Salome Þorkelsdóttir.


Guðmundur H. Garðarsson.



Valgerður Sverrisdóttir.