Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 203 . mál.
Ed.
764. Breytingartillögur
við frv. til 1. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Frá félagsmálanefnd.
1. Við 1. gr. Greinin orðist svo:
26. gr. laganna orðist svo:
Ríkið greíðir að fullu stofnkostnað stofnana skv. 2.-13. tölul. 7. gr.
Um stofnkostnað við rými fyrir fötluð börn á almennum deildum dagvistarstofnana og skóladagheimilum fer í samræmi við ákvæði laga nr. 112/1976, með síðari breytingum.
Tryggja skal fötluðum ókeypis vist á þeim stofnunum, sem um getur í 7. gr., sbr. þó 28. gr. Kostnaður skv. 9. og 10. gr. greiðist úr ríkissjóði.
2. Við 2. gr. 3. efnismgr. orðist svo:
Sérstaka flutningsþjónustu fyrir fatlaða, sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki til og frá stofnunum skv. 9. og 10. gr., skal greiða úr ríkissjóði.
3. Við 4. gr. Greinin orðist svo:
1. tölul. 18. gr. laganna orðist svo:
Kostnaður við byggingu og búnað heilsugæslustöðva, svo og við aðstöðu til móttöku sjúklinga utan stöðva, greiðist 85% úr ríkissjóði en 15% af hlutaðeigandi sveitarfélögum. Sveitarfélög láta þó í té lóðir undir slíkar byggingar ríkissjóði að kostnaðarlausu og án greiðslu gatnagerðargjalda.
4. Við 5. gr. Greinin orðist svo:
l. tölul. 20. gr. laganna orðist svo:
Rekstrarkostnaður heilsugæslustöðva greiðist úr ríkissjóði. Viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður.
5. Við 6. gr. Greinin orðist svo:
1. tölul. 21. gr. laganna orðist svo:
Ráðherra skipar stjórnir heilsugæslustöðva, einn eftir tilnefningu starfsliðs stöðvarinnar, þrjá er skulu kosnir af hlutaðeigandi sveitarstjórnum og einn án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður og búsettur á starfssvæði stöðvarinnar. Kjörtímabil stjórna heilsugæslustöðva er hið sama og sveitarstjórna.
6. Við 7. gr. Greinin falli brott.
7. Við 8. gr. Greinin orðist svo:
3. og 4. tölul. 34. gr. laganna orðist svo:
Framlög ríkissjóðs til sjúkrahúsbygginga, sem til er stofnað skv. 2. tölul. 34. gr. , skal vera 85% af kostnaði við byggingu og búnað en framlag hlutaðeigandi sveitarfélaga 15%. Sveitarfélög láta þó í té lóðir undir slíkar byggingar ríkissjóði að kostnaðarlausu og án greiðslu gatnagerðargjalda.
Ríkissjóður og sveitarfélög eru eignaraðilar í hlutfalli við framlag til sjúkrahúsbygginga. Viðhaldskostnaður fasteigna og tækja greiðist sem rekstrarkostnaður.
8. Við 35. gr.
a. Niðurlag 1. efnismgr. frá orðinu „skólanefnd “ , falli brott.
b. 4. efnismgr.falli brott.
9. Við 41. gr. Orðin „með uppeldismenntun“ í síðari málslið 1. efnismgr. falli brott.
10. Við 47. gr. Í stað orðsins „ oddvitar “ í 2. málsl. 3. efnismgr. komi: sveitarstjórnir.
11. Við 49. gr. Greinin orðist svo:
Við lögin bætist ný grein er verði 83. gr. og orðist svo:
Sveitarfélög greiða stofnkostnað grunnskóla, sbr. 23. gr. Jafnframt falla úr gildi ákvæði laga nr. 49/1967, um skólakostnað. Þó skulu haldast ákvæði þeirra laga um verðtryggingu stofnkostnaðarframlaga ríkissjóðs að því er tekur til framkvæmda sem fullgerðar voru eða hafnar í árslok 1989. Menntamálaráðuneytið setur reglur um lágmarksstærð grunnskólahúsnæðis og búnað þess.
12. Við 50. gr. 2. efnismgr. orðist svo:
Sveitarstjórn veitir byggingarstyrki til íþróttafélaga og íþróttasambands eftir því sem ákveðið er í fjárhagsáætlun sveitarfélags.
13. Við 60. gr. Fyrri efnismálsgrein orðist svo:
Bygging og rekstur dagvistarheimila er í verkahring sveitarfélaga. Menntamálaráðuneytið skal vera sveitarstjórnum til ráðuneytis um þessi mál.
14. Við 75. gr. Greinin orðist svo:
Ríkissjóður greiðir sveitarfélögum og félagasamtökum framlög vegna áfallinna skuldbindinga ríkissjóðs við byggingu dagvistarheimila, grunnskóla, íþróttamannvirkja og félagsheimila miðað við stöðu framkvæmda í árslok 1989. Við mat á þessum skuldbindingum ríkissjóðs skal miða við núgildandi lagaákvæði um hlutdeild ríkissjóðs í byggingarkostnaði fyrrgreindra mannvirkja svo og sérsamninga sem gerðir hafa verið við einstök sveitarfélög um skólamannvirki.
Þátttaka ríkissjóðs í framkvæmdum, sem unnar eru á árinu 1989, skal þó aðeins nema þeim framlögum sem eru á fjárlögum 1989.
Náist ekki samkomulag milli ríkissjóðs annars vegar og sveitarfélaga eða félagasamtaka hins vegar um kostnaðaruppgjör skv. 1. og 2. mgr. geta aðilar fyrir 1. janúar 1992 lagt málið til endanlegs úrskurðar nefndar sem starfa skal meðan unnið er að kostnaðaruppgjöri samkvæmt ákvæðum þessa kafla. Nefndin skal skipuð þremur mönnum, einum tilnefndum af menntamálaráðherra, einum tilnefndum af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og oddamanni tilnefndum af Hæstarétti Íslands. Meiri hluti ræður úrslitum mála, en fáist ekki meiri hluti skal oddamaður skera úr.
Um skiptingu fjár samkvæmt þessari grein skal fara eins og og mælt verður fyrir um í fjárlögum fyrir árin 1990-1993, enda verði greiðslu lokið að fullu á því árabili.
Menntamálaráðherra setur reglugerð í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um framkvæmd þessarar greinar.