Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 441 . mál.
Nd.
801. Frumvarp til laga
um verslunaratvinnu.
(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)
I. KAFLI
ALmenn ákvæði.
1. gr.
Lög þessi taka til verslunar í atvinnuskyni hvort sem hún er gerð fyrir eigin reikning eða reikning annars manns eða í eigin nafni eða í nafni annars manns.Með orðinu verslun er átt við hvers kyns milligöngu um yfirfærslu á beinum eignarrétti að lausafé.
Lög þessi taka þó ekki til:
1. Sölu einstaklings, eða skylduliðs hans, á búsafurðum, fiskfangi eða öðrum náttúruafurðum er einstaklingur hefur sjálfur aflað, svo og framleiðsluvörur hvers konar iðju og iðnaðar sem einstaklingur sjálfur stundar.
2. Torgsölu, svo sem á dagblöðum, vikublöðum og tímaritum að því leyti sem slík sala fer ekki fram á fastri starfsstöð og samrýmst getur reglum sveitarstjórna.
3. Sérákvæði annarra laga sem setja sérstök skilyrði varðandi tilteknar vörur eða tilteknar atvinnugreinar.
Verði ágreiningur um hvort verslunarleyfi þurfi samkvæmt lögum þessum til tiltekinnar tegundar verslunar sker ráðherra úr.
2. gr.
Verslun skv. 1. gr. er óheimilt að reka á Íslandi eða í íslenskri landhelgi, nema uppfyllt séu skilyrði laga þessara og til komi útgáfa firmaskrár á verslunarleyfi eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.Verslun, sem leyfð er samkvæmt lögum þessum, skal rekin í samræmi við góða viðskiptahætti sem tíðkaðir eru í slíkri starfsemi.
3. gr.
Með fastri starfsstöð er í lögum þessum átt við húsnæði eða aðstöðu þar sem rekin er, staðbundið og reglulega, verslun í atvinnuskyni, þar með taldir sjálfsalar.II. KAFLI
Almenn skilyrði verslunaratvinnuréttinda.
4. gr.
Verslunarleyfi skal ávallt skráð á nafn þess einstaklings eða félags sem verslunaratvinnu stundar. Skylt er að skrá firmanafn verslunaratvinnu er verslunarleyfi einstaklings skal taka til.Verslunarleyfi eru háð eftirfarandi almennum skilyrðum:
1. Skráð einstaklingsfyrirtæki ef eigandinn er:
. a. lögráða eða hefur rétt til þess að reka atvinnu samkvæmt lögræðislögum,
. b. ekki undir gjaldþrotaskiptum og ekki félagsmaður í félagi með ótakmarkaðri ábyrgð sem er undir gjaldþrotaskiptum. Þó er unnt að öðlast rétt til þess að reka verslun ef lengri tími en tvö ár er liðinn frá uppkvaðningu gjaldþrotaúrskurðar,
. c. búsettur í ríkinu og verið þar búsettur undanfarin tvö ár. Krafan um búsetu í tvö ár tekur ekki til ríkisborgara annars staðar á Norðurlöndum. Þegar sérstaklega stendur á getur ráðuneytið veitt undanþágu frá kröfunum um búsetu og búsetutíma.
2. Skráð félag, stofnun eða önnur samtök, ef:
. a. allir stjórnarmenn í hlutafélagi eða öðrum samtökum með takmarkaða ábyrgð fullnægja skilyrði a-liðar 1. tölul. og allir félagsmenn er bera ótakmarkaða ábyrgð í félagi fullnægja skilyrðum a- og b-liða 1. tölul.,
. b. minnst helmingur stjórnarmanna í félagi eða félagsmanna er bera ótakmarkaða ábyrgð í félagi fullnægja skilyrðum skv. c-lið 1. tölul.
. Réttur félags með ótakmarkaðri ábyrgð til verslunar fellur ekki niður enda þótt bú einhvers félagsmanna sé tekið til gjaldþrotaskipta.
3. Framkvæmdastjóri:
. Hafi fyrirtæki sem 1. og 2. tölul. taka til framkvæmdastjóra er
annast daglegan rekstur verður hann einnig að fullnægja skilyrðum a- og c-liða 1. tölul.
4. Skráð erlend fyrirtæki:
. a. Hafi erlent fyrirtæki skráð útibú í landinu skal útibúið hafa framkvæmdastjóra sem fullnægir skilyrðum a- og c-liða 1. tölul. Ef útibúið í landinu hefur eigin stjórn skulu allir stjórnarmennirnir fullnægja skilyrðum a-liðar 1. tölul. og minnst helmingur stjórnarmanna skilyrði c-liðar 1. tölul.
. b. Erlent fyrirtæki, sem safnar einungis kauptilboðum hér á landi frá aðilum sem skráðir eru í verslunarréttindaskrána, þarf ekki að hafa framkvæmdastjóra sem fullnægir skilyrðum c-liðar 1. tölul. Firmaskrá skal útbúa sérstök eyðublöð til skráningar þeirra aðila er þessi töluliður tekur til.
5. Bú er undir umsjón skiptaréttar:
Dánarbú eða gjaldþrotabú hefur rétt til að stunda áfram verslunaratvinnu uns henta þykir með tilliti til skipta eða yfirtöku nýs eiganda, eða nýrra eigenda, þó ekki lengur en eitt ár án sérstaks leyfis ráðherra.
Ráðherra getur þegar sérstaklega stendur á í tengslum við gjaldþrot gert undantekningu varðandi þær sérstöku reglur er um getur í liðum nr. 1, 2, 3 og 4.
III. KAFLI
Útgáfa verslunarleyfa og skráning.
5. gr.
Firmaskrárritari annast útgáfu verslunarleyfa samkvæmt lögum þessum og útbýr nauðsynleg skráningargögn fyrir umsækjendur um verslunarleyfi. Verslunarleyfi skal firmaskrárritari veita ef fullnægt er skilyrðum sem sett eru um skráninguna.Hverjum þeim, sem hefur leyfi til að stunda verslunaratvinnu, ber að hafa fasta starfsstöð eða starfsstöðvar sem ávallt skal getið í firmaskrá, sbr. þó ákvæði 6. gr. og 10. gr. laga þessara.
Til að öðlast verslunarleyfi samkvæmt lögum þessum ber umsækjanda um verslunarleyfi að skrá verslunaratvinnuna í firmaskrá í samræmi við ákvæði laga nr. 42/1903, um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, eða í hlutafélagaskrá í samræmi við ákvæði laga nr. 32/1978, svo og breytingar á áður tilkynntum atriðum.
Á hinni föstu starfsstöð skal vera nafnspjald með tilkynntu vistfangi (nafni og heimilisfangi aðalskrifstofu) rétthafa verslunarleyfis, sbr. 3. mgr. laga þessara til hagsbóta fyrir viðsemjendur rétthafa verslunarleyfis. Sjálfsalar skulu einnig merktir með vistfangi hins skráða leyfishafa.
Firmaskrárritari skal innan árs frá því að krafa kemur fram afmá verslunarleyfi ef skilyrði 3. mgr. þessarar greinar er ekki uppfyllt, upplýsingar er þar er byggt á varðandi aðalskrifstofu eða fyrirsvarsmenn verslunaratvinnunar reynast rangar, eða skilyrðum laga þessara fyrir útgáfu verslunarleyfis eru að öðru leyti ekki uppfyllt. Rétt er firmaskrárritara að tilkynna leyfishafa um slíka beiðni um afmáningu leyfisins, ef unnt er, svo og að geta þess í verslunarréttindaskránni að slík beiðni hafi komið fram.
Verslun án fastrar starfsstöðvar er þó heimil skv. 1. gr., 1. og 2. tölul. eða samkvæmt nánari reglum er sveitarfélög setja að fenginni umsögn firmaskrárritara, sbr. ákvæði IV. kafla laga þessara.
6. gr.
Verslunarleyfi er bundið við nafn, persónu eða firma.Dánarbúi, eftirlifandi maki sem situr í óskiptu búi, gjaldþrotabúi eða fjárhaldsmanni ófjárráða manns, er heimilt að halda áfram starfseminni þar til að skiptum er lokið, sala eða afhending starfseminnar hefur farið fram. Heimild samkvæmt þessari málsgrein gildir þó aðeins í eitt ár frá andláti maka, uppkvaðningu gjaldþrotaúrskurðar eða sviptingu lögræðis. Í sérstökum tilfellum getur þó skiptaréttur framlengt þennan frest.
7. gr.
Verslunarleyfi skal gefið út fyrir landið allt í lögsagnarumdæmi aðalskrifstofu hins skráða firma eða þar sem hlutafélag hefur sitt varnarþing. Leyfið veitir rétt til smásöluverslunar innan þess lögsagnarumdæmis svo og til umboðs- og heildverslunarréttinda fyrir landið allt.Verslunarleyfishafa er þó heimilt að stunda smásölu utan hins skráða lögsagnarumdæmis skv. 1. mgr. þessarar greinar enda er þá skylt að tilkynna firmaskrárritara, þar sem verslunarleyfið er skráð, um fastar starfsstöðvar þar sem verslun fer fram, svo og heimilisfang. Firmaskrá skal útbúa sérstök eyðublöð í þessu skyni.
8. gr.
Firmaskrá heldur verslunarréttindasskrá um þá aðila sem á hverjum tíma hafa leyfi til verslunarrekstrar innan viðkomandi lögsagnarumdæmis. Firmaskráningar landsins, ásamt hlutafélagaskrá samkvæmt nánari ákvörðun firmaskrár, sbr. 2. mgr. 9. gr., skulu samtengdar í því skyni að veita almenningi upplýsingar um rétthafa verslunarleyfis hverju sinni samkvæmt lögum þessum.Opinberum aðilum er heimill aðgangur að verslunarréttindaskránni eftir því sem nauðsynlegt getur talist.
9. gr.
Firmaskrárritari, í Reykjavík borgarfógetaembættið, eða sýslumaður í umdæmi, þar sem aðili hefur skráð firma, hlutafélagaskrá eftir ákvörðun firmaskrárritara, lætur í té staðfestingu fyrir verslunarleyfi samkvæmt lögum þessum og skráir það í verslunarréttindaskrána.Hlutafélagaskrá skal annast, í samráði við firmaskrárritara á varnarþingi hins skráða hlutafélags, skráningu á verslunarleyfum vegna hlutafélaga og útibúa sem þar eru skráð og sem eiga sitt varnarþing innan lögsagnarumdæmis viðkomandi firmaskrár. Hlutafélagaskráin skal tilkynna til viðkomandi firmaskrár um þau félög er leyfi hafa á hverjum tíma, sbr. 8. gr. laga þessara.
IV. KAFLI
Smásöluverslun utan fastrar starfsstöðvar — farandsala.
10. gr.
Þeir sem óska eftir að starfrækja smásöluverslun án eða utan fastrar starfsstöðvar (farandsölu) skulu tilkynna um það til firmaskrárritara í því umdæmi er þeir hafa skráð verslunarleyfi. Að því leyti sem ekki eru sett ákvæði í lögum þessum skulu ákvæði staðbundinna sveitarstjórna, er sett kunna að verða, gilda um réttindi og skyldur farandsölumanna.Í aukatilkynningu skv. 1. mgr. skal greina þær vörutegundir sem selja á.
Breytingar á áður tilkynntum atriðum skulu tilkynntar firmaskrárritara. Firmaskrárritari skal gefa út staðfestingu sína um tilkynntar upplýsingar.
Hverjum þeim, er stundar farandsölu samkvæmt ákvæðum laga þessara og reglna settra samkvæmt þeim, ber að afhenda kaupanda nafnspjald með vistfangi rétthafa verslunarleyfisins og fer afhendingin fram er kaup eru gerð eða kauptilboð er gert.
11. gr.
Smásöluverslun utan fastrar starfsstöðvar með matvæli er bönnuð, sbr. þó 1. tölul. 1. gr. laga þessara.Í hverju sveitarfélagi er þó heimilt, með sérstakri samþykkt sem staðfest skal af viðskiptaráðherra, að leyfa slíka verslun sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar, að öllu leyti eða að hluta, enda sé það að öðru leyti í samræmi við lög.
Sveitarstjórnir geta einnig með samþykktum sínum bannað farandsölu með aðrar vörur en um getur í 1. mgr. þessarar greinar, ef sérstakar ástæður er varða hina staðbundnu verslun mæla með því.
Sveitarstjórnir geta einnig sett samþykktir um smásöluverslun utan fastrar starfsstöðvar sem fram á að fara á markaði, félagsheimilum, á torgum og strætum, eða sambærilegum stöðum. Slíkar reglur geta einnig tekið til sölu úr farartækjum, inngöngum til húsa eða öðrum þess háttar stöðum.
Samþykktir sveitarfélaga öðlast gildi við staðfestingu viðskiptaráðherra.
V. KAFLI
Frjáls uppboð.
12. gr.
Rétt til þess að stunda frjáls uppboð á lausafjármunum, sbr. 1. gr. laga þessara, hafa skráðir rétthafar að verslunarleyfi samkvæmt lögum þessum, nema aðrar takmarkanir séu gerðar í lögum eða reglum settum samkvæmt þeim.Frjáls uppboð eru háð leyfi lögreglustjóra í umdæmi því er uppboð skal haldið hverju sinni. Rétt er lögreglustjóra að synja um leyfi ef almannahagsmunir krefjast eða hann telur að skipulagi uppboðsins sé verulega áfátt.
Ráðherra ákveður upphæð leyfisgjalds samkvæmt þessari grein. Heimilt er sveitarstjórn að setja nánari reglur um frjálst uppboðshald á grundvelli laga þessara með sérstakri samþykkt er ráðherra staðfestir.
13. gr.
Leyfishafi til frjálsra uppboðshalda skv. 9. gr. er í kafla þessum nefndur uppboðsstjóri.14. gr.
Uppboðsstjórar mega hvorki gera sjálfir boð á uppboði né láta aðra gera það fyrir sína hönd.15. gr.
Uppboðsstjóri skal kynna uppboðsskilmála skriflega og skulu þeir lesnir í upphafi uppboðs.Í uppboðsskilmálum skal gera grein fyrir gjöldum, er leggist ofan á söluverð, greiðsluskilmálum, ef ekki er um staðgreiðslu að ræða, ásamt öðrum skilmálum er uppboðshaldara er skylt að geta, og því hvenær ábyrgð á hinu selda flyst úr hendi seljanda til kaupanda.
Kaupandi uppboðsmunar getur ekki borið fyrir sig galla á seldum mun, nema hann svari ekki til þess heitis er hann var auðkenndur með við söluna, seljandi hafi haft svik í frammi eða almennt sé talið óheiðarlegt að skjóta sér undan ábyrgð.
Þegar uppboð er opið almenningi skulu munir vera til sýnis og skoðunar í hæfilegan tíma fyrir uppboðið.
VI. KAFLI
Viðurlög við brotum.
16. gr.
Verslunarleyfishafi samkvæmt lögum þessum fyrirgerir leyfi sínu ef hann fullnægir ekki lengur einhverjum þeirra skilyrða sem lögin setja fyrir verslunarleyfi, sbr. þó ákvæði 5. gr., eða ef réttur til verslunar er af honum dæmdur. Sé hæfismissir einstaklings, sem í hlut á, þannig vaxinn að úr honum verði bætt eða stjórnandi eða framkvæmdastjóri félags eða stofnunar eigi íhlut eða slíkt félag fullnægir ekki lengur þeim skilyrðum, sem sett eru í 4. gr., skal aðili hafa komið þessum atriðum í löglegt horf innan þriggja mánaða frá því að breytingin varð. Að þeim fresti liðnum skal verslunarréttindskrá afmá verslunarleyfi af sjálfsdáðum ef upplýsingar um það berast ella eftir kröfu þar um.
Rétt er firmaskrá að gefa leyfishafa stuttan frest til úrbóta samkvæmt þessari grein áður en afmáning fer fram.
17. gr.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara og gjaldtöku vegna útgefinna verslunarleyfa.18. gr.
Með brot gegn lögum þessum skal farið að hætti opinberra mála og varða brot sektum.VII. KAFLI
Gildistaka o.fl.
19. gr.
Með lögum þessum falla úr gildi lög nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, ásamt lögum nr. 7/1970, lögum nr. 27/1972, lögum nr. 50/1980, um breytingu á þeim lögum, svo og lög nr. 61/1979, um sölu notaðra lausafjármuna.20. gr.
2. málsl. 1. gr. tilskipunar 19. desember 1693, um uppboðsþing í Danmörku og Noregi, falli brott.5. gr. tilskipunar 19. desember 1693, um uppboðsþing í Danmörku og Noregi, falli brott.
21. gr.
Lög þessi öðlist gildi hinn 1. janúar 1990.Ákvæði til bráðabirgða.
Fimm árum frá gildistöku laga þessara eru öll verslunarleyfi úr gildi fallin sem veitt voru til fimm ára á grundvelli eldri laga um verslunaratvinnu.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Nefnd sú er unnið hefur frumvarp þetta var skipuð af þáverandi viðskiptaráðherra Matthíasi Bjarnasyni með bréfi dags. 27. apríl 1987 þar sem óskað var eftir því að nefndin tæki til endurskoðunar lög nr. 41/1968 um verslunaratvinnu ásamt síðari breytingum.
Nefndina skipuðu: Tryggvi Axelsson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, hann var jafnframt skipaður formaður nefndarinnar, Árni Reynisson framkvæmdastjóri, af hálfu Félags íslenskra stórkaupmanna, Ásdís Rafnar hdl., af hálfu Neytendasamtakanna, Magnús E. Finnsson framkvæmdastjóri, af hálfu Kaupmannasamtaka Íslands, og Sigurður Jónsson verslunarráðgjafi, af hálfu Sambands ísl. samvinnufélaga.
Frumvarp það er hér liggur fyrir er árangur starfs nefndarinnar. Viðskiptaráðuneytið hefur aðeins lagt til þá breytingu sem kveðið er á um í 20. gr. þessa frumvarps og er það gert vegna þeirra ákvæða sem nefndin hefur lagt til að gilda skuli um frjáls uppboð, sbr. V. kafla frumvarpsins.
Meginmarkmið nefndarinnar með frumvarpi þessu er að færa löggjöf um verslunaratvinnu til nútímalegra horfs. Jafnframt er reynt að mæta þeim auknu kröfum sem viðskiptalífið gerir um skráningu og upplýsingar varðandi þá er verslunaratvinnu stunda hverju sinni. Skilyrði einstaklinga og félaga til að mega stunda verslunaratvinnu eru verulega rýmkuð án þess að skertir séu hinu opinberu hagsmunir er skilyrði þessi snerta. Rýmkun sú er hér um ræðir hefur þó í reynd þegar átt sér stað við veitingu undanþáguheimildar frá ákvæðum gildandi laga og frjálslegri framkvæmd við beitingu þeirrar heimildar. Segja má að frumvarp það er hér liggur nú fyrir staðfesti í orðanna hljóðan þá réttarframkvæmd sem ríkt hefur við útgáfu verslunarleyfa um allangt skeið og þá stefnu að rétturinn til að stunda verslun verði ekki gerður að eins konar sérréttindum. Rétt er að einstaklingar og fyrirtæki séu eins frjáls að stunda verslun um landið allt eins og frekast er kostur, enda séu ákvæði frumvarpsins uppfyllt varðandi lágmarks skilyrði til að mega reka verslunaratvinnu eins og hér er gert ráð fyrir.
Meginatriði er að verslunarleyfishafar uppfylli þau grundvallar hæfisskilyrði sem hér er gerð tillaga um en ævinlega hlýtur þó margvísleg menntun og starfsreynslu þeirra er verslun vilja stunda að ráða nokkru um getu verslunarinnar til að standast í slíkri samkeppni sem nú viðgengst innan verslunaratvinnugeirans. Nefndin telur það þó ekki vera á verksviði löggjafans að setja nánari skilyrði hvað þetta varðar en hér er gerð tillaga um, enda væri erfitt að meta hvaða nám yrði að setja sem skilyrði eða starfsreynslu.
Auk þess verður framhaldsskólamenntun æ algengari og eru því öll skilyrði um tiltekna menntun óþörf og fljót að úreldast.
Loks verður að geta þess að nefnd sú er unnið hefur frumvarp þetta var á einu máli að þau grundvallar markmið sem stefna bæri að við setningu laga um verslunaratvinnu væru nú sem fyrr:
– að borgararnir eigi völ á sem bestri verslunarþjónustu á hverjum stað og tíma,
– að leitast sé við að skapa með frumvarpi þessu nokkurn ramma fyrir verslunaratvinnu sem atvinnugrein, þannig að ekki kreppi um of að henni, en atvinnugreininni sé gefið gott svigrúm til að þróast í samræmi við þær kröfur sem borgarnir gera á hendur henni á hverjum tíma.
Verslunarleyfi verður samkvæmt frumvarpinu aðeins eitt og veitir rétt til smásölu-, jafnt sem heild- og umboðssöluleyfis, um landið allt samkvæmt nánari skilyrðum laganna.
Frumvarpið tekur einnig mið af því að skráning verslunarleyfishafa fari fram á tölvum þannig að skráin verði aðgengileg og hagnýt. Þess háttar uppbygging skrárinnar veitir einnig aukna möguleika til að unnt verði að framfylgja þeim ákvæðum sem tillaga er gerð um að gilda skuli um verslunaratvinnu og mundi þar af leiðandi stuðla að því að tilgangi laga þessara yrði náð.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í grein þessari er skilgreint til hvaða verslunaratvinnu frumvarpi þessu er ætlað að taka til.
Í fyrstu málsgrein kemur fram að lögunum er ætlað að ná jafnt til smásölu- og heildsöluverslunar sem og umboðssöluverslunar. Þegar rætt er um verslun í lögum þessum er átt við þá þjónustu sem veitt er við kaup og endursölu á hvers kyns lausafé. Með lögum þessum er enn fremur numin úr gildi lög nr. 61/1979 um sölu notaðra lausafjármuna og taka því ákvæði frumvarps þessa til sölu slíkra lausafjármuna samkvæmt orðanna hljóðan.
Í 1.–3. tölul. 3. mgr. er afmarkað til hvaða verslunaratvinnu frumvarp þetta tekur þó ekki til. Samkvæmt eldri lögum um verslunaratvinnu hefur tíðkast að undanþiggja sölu á búsafurðum, fiskfangi og öðrum þess háttar framleiðsluvörum þeirra er slíka sölu stunda. Í 1. tölul. þessarar málsgreinar er undanþága þessi takmörkuð við verslun einstaklinga með slíkar framleiðsluvörur sínar. Nefndin var sammála um að engin efnisleg rök stæðu í vegi fyrir þeirri niðurstöðu en hins vegar bæri að fella heildsölu og aðra
verslunarstarfsemi iðnfyrirtækja undir löggjöf um verslunaratvinnu.
Torgsala á dagblöðum fellur með sama hætti utan ramma þessa frumvarps sem og önnur verslun sem starfrækt er samkvæmt sérstökum lögum, t.a.m. löggjöf um áfengi, tóbak og lyf.
Loks er í grein þessari lagt til að úrskurðarvald um hvaða starfsemi lög þessi taki til verði í höndum viðskiptaráðherra er fer með málefni verslunarinnar. Bera má þann úrskurð undir dómstóla.
Um 2. gr.
Í 1. mgr. frumvarpsins er kveðið á um þá skyldu að afla verði verslunarleyfis firmaskrár til að heimilt sé að stunda verslunarrekstur á Íslandi eða í íslenskri landhelgi.
Í 2. mgr. frumvarpsins er að finna ákvæði sem efnislega er samhljóða ákvæði í 26. gr. laga nr. 56/1978 um samkeppnishömlur, verðlag og ólögmæta viðskiptahætti. Vísa má í heild til greinargerðar með þeirri grein í frumvarpi því er síðar varð að fyrrgreindum lögum nr. 56/1978 og fylgir hún frumvarpi þessu, sbr. fylgiskjal nr. 1. Rétt er þó að geta þess að hér er um almenna reglu að ræða sem ætlað er að ná til ýmissa tilvika er aðrar sérreglur í löggjöf taka ekki til.
Almenn regla eins og hér um rætt hefur þann megintilgang að stuðla að því að beina síbreytilegum viðskiptaháttum í þann farveg sem eðlilegastur er á hverjum tíma. Nefndin telur að regla þessi sé vel við hæfi í sérstakri löggjöf um verslunaratvinnu og hafi þar áhrif á þróun viðskiptahátta í þjóðlífinu án þess að gripið sé til sérstakrar löggjafar hverju sinni.
Endanlegt mat á því til hvaða verknaða greinin teljist taka til hlýtur þó ávallt að vera hjá dómstólunum í hverju einstöku tilviki sem upp kann að koma.
Um 3. gr.
Grein þessi skilgreinir hvað átt er við með „fastri starfsstöð“ samkvæmt frumvarpinu. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir að verslun í landinu verði hér eftir sem hingað til stunduð í staðbundnum föstum starfsstöðvum. Nauðsynlegt þótti þó vegna síðari ákvæða að skilgreina í eitt skipti fyrir öll hvað við væri átt með hugtakinu.
Sjálfsalar hafa ekki verið eins algengir hér á landi og víða í nágrannalöndum okkar. Engu að síður taldi nefndin eðlilegt að áskilið yrði að svipuð skilyrði mundu gilda um þá söluaðferð og gilda á um annars konar verslunaraðferðir.
Um 4. gr.
Fyrsta málsgrein þessarar greinar setur fram það grundvallarskilyrði er verslunarleyfi skuli byggð á.
Verslunarleyfi skulu einungis útgefin ef umsækjandi hefur skráð atvinnufyrirtækið í firmaskrá eða eftir atvikum í hlutafélagaskrá. Nefndin telur að með því móti verði betur tryggt það eftirlit og aðhald sem nauðsynlegt er í atvinnugrein þessari. Samkvæmt frumvarpinu er ætlunin að verslunarleyfi verði annað tveggja gefin út til einstaklinga er skráð hafa einkafyrirtæki sín eða til félaga er hafa fengið skráningu í firmaskrá eða hlutafélagaskrá. Af ákvæðum frumvarpsins er jafnframt ljóst að ekki verður framvegis unnt að stunda verslunaratvinnu án þess að hafa til þess verslunarleyfi. Þannig verður hlutafélagi óheimilt að stunda verslunaratvinnu í nafni félagsins nema það hafi verslunarleyfi. Í því sambandi nægir ekki að einstaklingur í fyrirsvari fyrir félagið hafi verslunarleyfi svo sem tíðkast hefur ef menn hafa kosið svo. Félagið sjálft verður að vera skráð í firmaskrá og uppfylla að öðru leyti skilyrði þessarar greinar fyrir skráningunni. Hið sama gildir um sameignarfélög og samvinnufélög.
Í fyrstu málsgrein er auk þess gert ráð fyrir að ef skráð einstaklingsfyrirtæki starfar ekki undir nafni eigandans heldur sérstöku firmanafni þá skuli jafnframt geta firmanafnsins í skráningunni þegar svo stendur á.
Í 1.–5. tölul. annarrar málsgreinar eru rakin þau almennu skilyrði er þurfa að vera fyrir hendi til þess að unnt sé að öðlast verslunaratvinnuréttindi. Greint er á milli einstaklingsfyrirtækja annars vegar og félaga, stofnana eða annarra samtaka hins vegar.
Af samanburði við ákvæði fyrri laga um verslunaratvinnu er ljóst að skilyrði til að öðlast verslunarréttindi eru rýmkuð mjög verulega án þess þó að skertir séu hinir opinberu hagsmunir er skilyrði þessi snerta, eins og áður var nefnt í almennum athugasemdum hér að framan. Þannig er nú t.d. fallið frá öllum sérstökum menntunarskilyrðum sem krafist var í lögum nr. 41/1968, um verslunaratvinnu. Reyndar höfðu þau ákvæði í reynd litla þýðingu þar sem sú undanþáguheimild er þau lög höfðu að geyma var afar rúmlega beitt hin seinni ár. Mikil nauðsyn var því til þess að breyta gildandi ákvæðum þannig að þau endurspegli það ástand sem í framkvæmdinni ríkir og enn fremur að minnka skriffinnsku vegna umsókna um slíkar undanþágur.
Í 1. tölul. er rætt um þau skilyrði er einstaklingur þarf að uppfylla til
þess að geta leyst til sín verslunarleyfi. Af ákvæðunum má ljóst vera að skilyrði til verslunaratvinnuréttinda eru samkvæmt frumvarpi þessu rúm og til þess fallin að verslunarstéttin verði, hér eftir sem hingað til, opin mönnum óháð menntun eða annarri þess konar sérþekkingu sem skólaganga býður upp á.
Skilyrðin endurspegla þá heildarafstöðu nefndarinnar að til þess að frjáls verslun geti blómstrað og leitt til þeirrar samkeppni sem nauðsynleg er, beri að haga skilyrðum þannig að ríkari áhersla sé lögð á almennari hæfnisskilyrði til að mega stunda verslunaratvinnu, svo sem full lögráð, (þ.e. sjálfræði og fjárræði). Einnig er hér gerð krafa um að einstaklingur er óskar eftir verslunarleyfi sé ekki undir gjaldþrotaskiptum og er það nýmæli. Nefndin telur eðlilegt að ekki sé unnt á sama tíma og bú er undir gjaldþrotaskiptum að fá útgefið verslunarleyfi. Verslunarrekstri fylgja ávallt talsverð umsvif og nauðsynlegt er að stofna til ýmissa skuldbindinga innan verslunarstéttarinnar sem utan hennar. Á þeim tveimur árum sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir að líða þurfi þar til að verslunarleyfi verður útgefið að nýju má ætla að umsækjandi hafi aflað sér nægilegs viðskiptatrausts að nýju.
Í greininni er jafnframt sett það skilyrði að einstaklingar séu búsettir hér á landi til að geta leyst til sín verslunarleyfi. Nefndin telur ekki ástæðu til þess að heimila öðrum en þeim er hér á landi eru búsettir að fá útgefið verslunarleyfi og stunda hér verslunaratvinnu. Ákvæði þetta girðir einnig fyrir að erlendir farandsalar komi hér um stuttan tíma til að selja ýmis konar varning beint til neytenda. Rétt er þó að athuga að skilyrði þetta tekur ekki til erlendra fyrirtækja sem skráð eru hér á landi og einungis stunda hér heildsölu stuttan tíma ársins t.d. er sölumenn þeirra eiga hér stutta viðdvöl eins og nánar er getið um hér á eftir í aths. um 4. tölul.
Í 2. tölul. er að finna þau skilyrði sem lagt er til að gildi varðandi félög með takmarkaðri ábyrgð svo og önnur þau félagsform er verslunaratvinnu stunda og löggjöfin heimilar.
Í þessum tölulið eru sett fram þau meginskilyrði varðandi stjórn slíkra félaga er greinin getur um og nefndin telur að þurfi að vera fyrir hendi. Af ákvæðum þessa töluliðs sést að ef einn sameigandi í sameignarfélagi er undir gjaldþrotaskiptum þá girðir það fyrir að félagið geti öðlast verslunarleyfi. Hafi hinsvegar slíkt félag fengið útgefið verslunarleyfi og einhver félagsmanna þess er lýstur gjaldþrota leiðir það ekki til þess að verslunarleyfi félagsins falli niður. Gjaldþrot beggja (allra) eigendanna er nauðsynlegt til þess að sú aðstaða verði fyrir hendi.
Í 3. tölul. er gert ráð fyrir að verslunarfyrirtæki sem um ræðir í 1. og 2. tölul. kunni að ráða til sín eða hafa starfandi á sínum vegum
framkvæmdastjóra. Í því tilfelli þykir rétt að hann uppfylli sömu kröfur og einstaklingar almennt þurfa samkvæmt frumvarpi þessu.
Í a-lið 4. tölul. er fjallað um hversu með skuli fara þegar um er að ræða erlend fyrirtæki sem skráð eru hér á landi. Erlend fyrirtæki geta skráð útibúið hér á landi t.d. á grundvelli 17. kafla laga nr. 32/1978, um hlutafélög, og verða þau að sæta þeim reglum er þar eru settar varðandi skráningu. Gert er ráð fyrir að þau fyrirtæki í erlendri eigu sem hér eru skrásett og leysa vilja til sín verslunarleyfi hafi framkvæmdastjóra í sinni þjónustu er uppfylli skilyrði þau er greinin setur.
Í b-lið 4. tölul. er kveðið á um rétt erlendra fyrirtækja til þess að senda hingað til lands sölumenn til að kynna og selja íslenskum innflytjendum vörur sem áhugi er á að selja hér innan lands. Þannig felur ákvæði þetta í sér verulegt hagræði fyrir innlenda verslunarrekendur, sparar bæði fé og fyrirhöfn, sem fylgja kann viðskiptaferðum til annarra landa. Ákvæði þetta tryggir, ef að lögum verður, að erlendum aðilum verði heimilt að taka við slíkum pöntunum hér innanlands, og er það nýmæli.
Skilyrði þess er þó eins og greinir í ákvæðinu, að tilkynnt sé um slíka starfsemi til verslunarréttindaskrárinnar. Firmaskrá er falið að útbúa eyðublöð til þeirrar skráningar en væntanlega tækju þau mið af lögum þessum svo og lögum um eftirlit með útlendingum, eftir því sem við getur átt. Skráning samkvæmt þessum lið getur því farið fram samkvæmt sérstakri tilkynningu sem útfyllt er við komu farþega til landsins og send firmaskrá til skráningar. Heimilt er að kveða nánar á um framkvæmd þessa töluliðs með reglugerð er ráðherra setur skv. 17. gr. frv. ef henta þykir.
Í 5. tölul. er fjallað um þá aðstöðu er verslunarfyrirtæki fellur undir umsjón skiptaréttar við gjaldþrotaskipti eða andlát. Samkvæmt greininni er búi undir umsjón skiptaréttar heimilt að stunda verslunaratvinnu fyrst um sinn, þó aldrei lengur en eitt ár án sérstaks leyfis er skiptaréttur aflar frá ráðherra. Heimild ráðherra til að víkja frá settum skilyrðum samkvæmt þessari grein verður að túlka þröngt og einungis koma til álita þegar sérstakar ástæður mæla með því, t.d. er lok skipta dragast vegna málaferla, er rétt þykir að niðurstaða fáist um, eða annað þess háttar.
Um 5. gr.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að útgáfa verslunarleyfa verði áfram í höndum firmaskrárritara enda eru ýmis réttarleg atriði er þýðingu hafa við skráninguna ekki á færi annarra en slíkra aðila að gæta. Jafnframt er áætlað að firmaskrár landsins haldi utan um verslunarréttindaskrána, sbr. 8. gr.
frumvarpsins.
Í 2. mgr. þessarar greinar er sett sú meginregla að verslun í landinu skuli nú, sem fyrr, rekin á fastri starfsstöð eins og hún er nánar skilgreind í 3. gr. frumvarpsins. Frumvarpið gerir þó ráð fyrir að um svonefnda farandsölu gildi sérstök ákvæði, sbr. IV. kafla frumvarpsins.
Eins og getið var um í athugasemdunum með 4. gr. frumvarpsins og nánar greinir hér á eftir þá er það skilyrði sett samkvæmt frumvarpi þessu að til þess að geta leyst til sín verslunarleyfi verði verslunaratvinnan að vera skráð í firmaskrá eða eftir atvikum í hlutafélagaskrá.
Til þess að full yfirsýn fáist yfir rekstur þess er verslunarleyfi hefur og að fullnægjandi upplýsingar liggi ávallt fyrir hjá verslunarréttindaskránni þá er lagt til að þar skuli getið um þær föstu starfsstöðvar er leyfishafi rekur verslun í hverju sinni.
Í 3. mgr. er sett það skilyrði fyrir útgáfu verslunarleyfis að verslunaratvinnan sé skráð í samræmi við gildandi lög um firmu og hlutafélög. Einnig er sett hér það skilyrði að skrásetja þurfi breytingar á þeim atriðum er upphaflega voru sett sem skilyrði fyrir verslunarleyfinu. Einn megin tilgangur verslunarréttindaskrárinnar hlýtur ávallt að vera sá að gefa viðsemjendum nægilegar upplýsingar varðandi verslunarleyfishafa, er viðsemjandi kann að þurfa á að halda, vegna viðskipta þeirra á milli. Til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að lögfesta þá skyldu að breytingar séu jafnframt tilkynntar eftir því sem þær kunna að verða.
Í 4. mgr. er sett sú regla, til hagsbóta fyrir þá er viðskipti kunna að eiga við verslunarleyfishafa, að hann setji upp nafnspjald með vistfangi sínu, sem svo er nefnt, þ.e. nafni og heimilisfangi á aðalskrifstofu verslunaratvinnunnar samkvæmt skráningu hjá firmaskránni.
Algengt er að t.d. félag sem verslun stundar og aflar sér verslunarleyfis selji vörur sínar undir vöruheiti sem með öllu er óskylt heiti félagsins. Erfitt er þá fyrir viðsemjendur að sjá hvaða aðili hafi verslunarréttindi þegar svo stendur á. Regla þessi á að koma til móts við þau sjónarmið er hér eru rakin og eru slík ákvæði t.d. í löggjöf á Norðurlöndum.
Nauðsynlegt er að tryggja með einhverjum hætti einhvern þrýsting til þess að ákvæðum laga um verslunarleyfi sé framfylgt. Liður í þeirri viðleitni er ákvæði 5. mgr. þessarar greinar. Lagt er til að lögfest verði heimild til þess að afmáð verði áður útgefið verslunarleyfi ef krafa kemur fram þar að lútandi, t.d. frá viðsemjanda eða samkeppnisaðila, enda hafi ákvæðum laganna ekki verið sinnt. Jafnframt stuðlar slík tilhögun að því að skráin geti gegnt hlutverki
sínu og verið áreiðanleg á hverjum tíma og komið að þeim notum sem frumvarp þetta stefnir að.
Um 6. gr.
Ákvæði þetta er nærri samhljóða ákvæði 5. tölul. 4. gr. Rétt er þó að gera hér greinarmun á útgefnum leyfum og þeim skilyrðum er fyrir hendi þurfa að vera til útgáfu verslunarleyfa almennt. Að öðru leyti vísast til athugasemda með 5. tölul. 4. gr. frumvarpsins hér að framan.
Um 7. gr.
Í greininni er kveðið á um það að verslunarleyfi skuli gefin út í lögsagnarumdæmi hins skráða firma og heldur sú firmaskráning skrá yfir þá einstaklinga og félög er verslunarréttindi hafa hverju sinni. Ákvæðið felur í sér að útgefið verslunarleyfi veitir leyfishafa rétt til verslunar í landinu öllu en skráningarskyldan helst hjá þeirri firmaskrá þar sem verslunarfyrirtækið er skráð. Um hlutafélög sem öll eru skráð hjá hlutafélagaskrá gildir hins vegar hið skráða varnarþing.
Skráningarskylda hlutafélaga varðandi atriði er heyra undir verslunarréttindaskrána telst því samkvæmt frumvarpinu vera í lögsagnarumdæmi þeirrar firmaskrár er félagið á sitt varnarþing. Verslunarfyrirtæki sem rekið er með hlutafélagsformi er því skylt að skrásetja það í Verslunarréttindaskrá á varnarþingi félagsins. Þó þetta kunni að virðast flókið er það þó ekki svo í reynd. Þannig mundi hlutafélagaskrá annast skráningu fyrir viðkomandi firmaskrá svo og útgáfu verslunarleyfa til handa hlutafélögum, sbr. 9. gr. frv. Firmaskrá á skráðu varnarþingi hlutafélagsins væri hins vegar ætíð tilkynnt um útgáfu verslunarleyfisins og hún mundi geta þess í verslunarréttindaskránni. Tölvusamtenging firmaskráningar í öllum lögsagnarumdæmum eins og mælt er fyrir um í 8. gr. frv. leiðir til þess að heildstæð mynd fæst af tilgangi þeirra verslunarleyfaskráningar sem hér er kveðið á um. Verslunarréttindaskráin myndar þá eina heildstæða skrá, á ábyrgð hvers firmaskrárritara fyrir sig, svo og hlutafélagaskrárinnar. Óski menn eftir þeim upplýsingum varðandi hlutafélög sem í verslunarréttindaskrána eru skráð þá geta þeir snúið sér til hlutafélagaskrárinnar eða beint til viðkomandi firmaskrár ef þeim er kunnugt um varnarþing hlutafélagsins.
Samtenging þessara skráningaraðila með tölvutækni mundi einnig gera þau atriði sem hér að framan er rætt um afar einföld í framkvæmd.
Réttaráhrif sem tengd eru við það að verslunarleyfi skulu útgefin í
tilteknu umdæmi eru þau að leyfið veitir einungis sjálfkrafa rétt til smásöluverslunar innan þess umdæmis. Heildsölu- og umboðssöluréttindi öðlast hann hinsvegar fyrir landið allt, þegar við útgáfu verslunarleyfisins. Þau réttaráhrif sem hér er lýst eru þau sömu og gilt hafa hingað til. Hér er þó lagt til, eins og áður hefur komið fram, að verslunarleyfi verði aðeins eitt og veiti rétt til þess að stunda allar framangreindar tegundir verslunarþjónustu.
Í 2. mgr. þessarar greinar er þó lögð til sú breyting að verslunarleyfi samkvæmt frumvarpi þessu nái einnig til smásöluverslunar í öðrum lögsagnarumdæmum en að ofan greinir enda hafi firmaskrárritara þar sem verslunarleyfi er útgefið verið sérstaklega um það tilkynnt. Þannig verður verslunarleyfishafa heimilt að stunda smásöluverslun í öðrum lögsagnarumdæmum ef hann uppfyllir skilyrði þessa frumvarps um tilkynningar til firmaskrár. Firmaskrá gætir þess að lagaskilyrðum varðandi verslunarreksturinn sé fullnægt, t.d. ákvæðum um fasta starfsstöð o.fl. Samkvæmt framansögðu verður því ekki nauðsynlegt að fá útgefið sérstakt leyfi í hverju lögsagnarumdæmi fyrir sig til þess að mega stunda smásöluverslun, eins og nú þarf samkvæmt gildandi lögum um verslunaratvinnu. Verslunarleyfishöfum er því búið talsvert hagræði í þeirri tilhögun sem hér er gerð tillaga um.
Um 8. gr.
Í þessari grein er skýrt tekið fram að einn aðili skuli annast verslunarréttindaskrá í hverju umdæmi landsins. Lagt er til að firmaskrár annist útgáfu og haldi utan um veitt verslunarleyfi til einstaklinga og félaga.
Firmaskrá er jafnframt falið að tryggja samstarf við hlutafélagaskrá sem skráir öll hlutafélög landsins til þess að framkvæmd verði auðveld og óþarfa fyrirhöfn létt af þeim umsækjendum um verslunarleyfi sem í hlutafélagaskrána eru skráðir.
Þá er lagt til að þær skráningar er útgáfu verslunarleyfa annast, þ.e. firmaskráningar landins, ásamt hlutafélagaskrá, verði samtengdar með tölvukerfi þannig að þær virki sem ein heildstæð verslunarréttindaskrá sem aðgengileg væri fyrir alla landsmenn, hvern í sínu umdæmi.
Ljóst er að slík skráning sem hér er um rætt og samtengd mundi hafa verulega hagnýtt gildi fyrir allan almenning svo og opinbera aðila. Auk þess skiptir miklu máli fyrir þarfir viðskiptalífsins að fyrir hendi sé áreiðanleg skrá yfir verslunarleyfishafa á hverjum tíma.
Um 9. gr.
Í greininni er að finna ákvæði um hvaða embætti skuli annast og bera ábyrgð á útgefnum verslunarleyfum samkvæmt lögum þessum. Skráning fyrirtækja (sem og einstaklinga) í verslunarréttindaskrána hefur þá þýðingu að treysta megi því að gætt hafi verið þeirra skilyrða er frumvarp þetta setur varðandi skráningu. Þess ber þó að gæta að ávallt kunna aðstæður að breytast og skilyrði ekki að vera lengur fyrir hendi. Í því tilfelli getur viðsemjandi komið fram athugasemdum sínum, sbr. 5. gr. og þeir aðilar sem hér um getur hlutast til um afmáningu leyfisins.
Í 2. mgr. þessarar greinar er nánar kveðið á um verksvið hlutafélagaskrárinnar, varðandi útgáfu verslunarleyfa. Á engan hátt er þó vikið frá þeirri stefnu 8. gr. frumvarps þessa að hjá hverri firmaskrá landsins skuli vera fullkomin verslunarréttindaskrá er taki til hlutafélaga sem annarra félaga, svo og til einstaklinga.
Um 10. gr.
Í lögum nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, var kveðið svo á að til svonefndrar farandsölu, þ.e. smásöluverslunar utan þess umdæmis er smásöluleyfi voru útgefin í, giltu svokölluð landssöluleyfi. Landssöluleyfi samkvæmt þeim lögum veita rétthafa leyfisins rétt til að stunda farandsölu í sveitum landsins svo og rétt til smásöluverslunar innan kaupstaða með þær vörur sem þar er ekki verslað með. Mat á því skilyrði laganna er lagt undir lögreglustjóra á hverjum stað. Í framkvæmd hefur beiting þessa ákvæðis verið afar erfið og jafnframt misjafnlega beitt eftir því í hvaða umdæmi aðili hefur viljað versla í.
Með hliðsjón af eldri réttarframkvæmd og ýmsum þeim vandkvæðum er henni voru bundin þá leggur nefndin hér til að verslunarleyfi taki jafnframt til smásöluverslunar utan umdæmis hinnar föstu starfsstöðvar. Tilkynna skuli þó þeir er slíka farandsölu vilja stunda um það til verslunarréttindaskrárinnar. Tilkynningu skal beint til firmaskrárritara þar sem verslunarleyfi viðkomandi er skráð. Tilgangur tilkynningarinnar er sá að ljóst sé af verslunarréttindaskránni hvaða verslunarrekstur viðkomandi verslunarleyfishafi stundi. Ekki þótti rétt að veita verslunarleyfishafa slíkan rétt án þess að til slíkrar tilkynningar komi. Um farandssölu hljóta ætíð að gilda sérstök sjónarmið þar sem sú söluaðferð hefur ýmis séreinkenni er aðrar aðferðir hafa ekki. Í því sambandi má nefna að viðsemjendur þeirra er farandsölu stunda verður að telja að hafi mun lakari samningsaðstöðu en þegar verslun er rekin í fastri starfsstöð. Jafnframt munu hinar sérstöku tilkynningar til að öðlast rétt til farandsölu vera til þess fallnar að beina athygli þeirra er slíka
verslun stunda að þeim sérreglum er sveitarfélög kunna að setja um farandsölu, innan sinna umdæma, eins og nánar sést af öðrum ákvæðum þessa kafla frumvarpsins.
Ljóst er af greininni að hér er lagt til að afskipti lögreglustjóra í því umdæmi er farandsala skal stunduð hverju sinni verða, ef frumvarp þetta verður að lögum, takmörkuð við það að framfylgja ákvæðum laga þessara varðandi farandsölu svo og að framfylgja löglegum samþykktum sveitarstjórna er kunna að verða settar um farandsölu, t.d. um leyfisgöld er renna skuli í sveitarsjóð.
Loks er í grein þessari lagt til að þeir er stunda farandsölu skuli afhenda kaupendum vöru og þjónustu nafnspjöld. Ákvæði þetta byggir á neytendasjónarmiðum en eins og fyrr segir eru viðsemjendur farandsölumanna á margan hátt í lakari aðstöðu en við vörukaup frá smásala er hefur fasta starfsstöð. Ákvæði þetta þykir til þess fallið að veita neytendum aukna vernd er þeir versla vörur af farandsölum t.d. ef þær kunna að reynast gallaðar og koma þarf kvörtunum á framfæri við seljandann.
Um 11. gr.
Í gildandi lögum hefur ekki verið takmarkaður réttur til að versla með matvörur í farandsölu. Nefndin telur þó rétt að leggja til að verslun með slíkan varning fari einungis fram á föstum starfsstöðvum, sbr. 3. gr. frumvarpsins. Sú niðurstaða byggir á því að verslun með svo viðkvæma vöru sem matvæli eru sé vandmeðfarin og nægjanleg aðgætni með þá vöru verði ekki tryggð við þær söluaðferðir er farandsala byggir á. Í 2. mgr. er þó veitt svigrúm, einkum ef ofangreind sjónarmið eiga ekki við.
Í 3. mgr. er lagt til að sveitarstjórnir, ef þær telja ástæðu vera til, taki ákvarðanir um hvaða reglum farandsala skuli lúta í umdæmi þeirra. Eins og fyrir segir hefur í gildandi lögum sú ákvörðun verið nánast undir frjálsu mati lögreglustjóra. Nefndin telur mun eðlilegra að sérhver sveitarstjórn, er gerþekkir þær staðbundnu aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni, fjalli um farandsölu og setji um hana þær reglur er hún telur nauðsynlegar hverju sinni.
Í 4. mgr. er enn fremur mælt svo fyrir að sveitastjórnir setji nánari reglur varðandi tímabundna markaðsstarfsemi þeirra er í umdæminu búa eða aðra sambærilega farandsölu annarra landsmanna. Samþykktir sveitarfélaga öðlast gildi við staðfestingu viðskiptaráðherra er fer með yfirstjórn málefna er verslunina varða.
Ekki eru í frumvarpinu gerðir sérstakir fyrirvarar á staðfestingu ráðherra og gildir því um hana að staðfesta ber löglegar samþykktir sveitarfélaga nema lög eða sérstakar ástæður leiddu til annarrar niðurstöðu.
Um 12. gr.
Í 12. gr. er lögð til sú grundvallarbreyting að heimild til uppboðshalds verði rýmkuð verulega.
Hingað til hefur verið litið svo á að einungis hefðu heimild til uppboðshalds sérstakir uppboðshaldarar samkvæmt sérákvæðum laga. Þannig hefur heimildin að mestu verið bundin við sýslumenn og fógeta.
Í þessari grein frumvarpsins er lagt til að þau uppboð sem ekki er kveðið á um í sérstökum lögum geti skráðir verslunarleyfishafar stundað. Heimild þessi nær því ekki t.d. til nauðungaruppboðs til fullnustu dóma né heldur til listmunauppboðs eða fiskmarkaða, en um hvort tveggja gilda sérstök lög.
Þótt í 1. mgr. sé ákveðið að skráðir rétthafar að verslunarleyfi hafi rétt til að stunda frjálst uppboðshald þá er í 2. mgr. lagt til að þeir þurfi að sækja um heimild lögreglustjóra í því umdæmi er uppboðshald skal fara fram. Nefndin telur nauðsynlegt þrátt fyrir það að lögteknar yrðu frjálslegri reglur varðandi uppboð en hingað til hefur þekkst, verði ekki vikið frá því grundvallarsjónarmiði að uppboðshald fari fram á eins formbundinn hátt og unnt er. Í því sambandi verður að liggja fyrir að uppboðshaldið valdi ekki neinni röskun á almannafriði og nauðsynlegt er að lögreglustjóri fái tækifæri til að kanna hvort þær aðstæður geti skapast er ganga gegn því grundvallaratriði. Við uppboðshald er ljóst að ætíð safnast fyrir nokkur mannfjöldi og er því rétt að lögreglustjóra sé falið að hafa eftirlit með áformum um þá sérstöku söluaðferð sem frjálst uppboðshald er. Þá er sveitarstjórnum einnig í greininni gefinn kostur á að setja nánari reglur um slík uppboð er þær telja nauðsyn vera á.
Um 13.–15. gr.
Í greinum þessum er kveðið nánar á um skyldur þess er uppboð heldur, þ.e. uppboðsstjórans og hvernig hann skuli haga uppboðshaldinu í grundvallaratriðum.
Mikilvægt er að uppboðskilmálar séu hafðir skýrir þannig að þeir veiti uppboðsgestum fullnægjandi upplýsingar varðandi þau atriði sem upp eru talin í 15. gr. frumvarpsins. Í greininni er jafnframt kveðið á um rétt uppboðsgesta til að skoða þá hluti sem selja á og er mikilvægt að væntanlegir kaupendur kynni sér vel þá hluti sem seldir eru, því hæstbjóðandi verður eigandi hlutarins við hamarshögg nema uppboðskilmálar mæli á annan veg. Mótbárur er kaupandi getur haft vegna þeirrar vöru er hann kaupir á uppboði eru þrengri en almennt gerist við kaup og sölu, sbr. 3. mgr. 15. gr. frumvarpsins. Samkvæmt henni getur seljandi ekki borið fyrir sig galla á seldum hlut nema hann svari
alls ekki til þess heitis er hann var auðkenndur með í uppboðskilmálum eða af uppboðsstjóra, seljandi hafi haft svik í frammi eða gerningurinn að öðru leyti talinn óheiðarlegur. Um hið síðast greinda verða ekki gefin nein dæmi, en endanlegt mat um þetta atriði er hjá dómstólum.
Um 16. gr.
Í grein þessari er kveðið á um viðurlög ef ekki er farið eftir ákvæðum laganna. Lagt er til að verslunarréttindaskrá hafi sjálfstæða heimild til að afmá úr skránni þau verslunarleyfi sem vitneskja liggur fyrir um að ekki eigi sér lengur stoð í lögum þessum. Jafnframt er lagt til að viðsemjendur verslunarleyfishafa geti gert kröfu um afmáningu verslunarleyfisins ef leyfishafi hirðir ekki um að uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir því. T.d. gæti viðsemjandi sem kemur til hinnar skráðu aðalskrifstofu verlunarleyfishafa til að gera fjárnám á grundvelli aðfararhæfs dóms gert kröfu um afmáningu verslunarleyfisins ef skráningin reynist röng, sbr. hér einnig 5. gr. frumvarpsins og athugasemdir með henni.
Um 17. gr.
Ráðherra er í grein þessari veitt heimild til að setja nánari reglur um veitingu verslunarleyfa og framkvæmd firmaskrárritara við skráningu verslunarleyfa í verslunarréttindaskrána. Þá er og heimilt að ákveða í reglugerð upphæð þess gjalds er leyfisveiting og skráning leyfis er háð. Í framkvæmd yrði gjald þetta ákveðið í reglugerð um aukatekjur ríkissjóðs.
Mikilvægt er þó að gjaldtöku verði stillt í hóf og hún verði ekki hærri en sem nemur kostnaði við smásöluleyfi samkvæmt gildandi lögum. Ljóst er að verslunarleyfi verða mun fleiri en við núverandi aðstæður, verði frumvarp þetta að lögum. Með breikkuðum gjaldstofni samkvæmt þessu eru því veigamikil rök fyrir því að verslunarleyfi verði ekki bundin hárri gjaldtöku.
Um 18. gr.
Um brot gegn lögunum skal fara að hætti opinberra mála og varða brot einungis sektar viðurlögum eins og núgildandi lög um verslunaratvinnu mæla fyrir um, sbr. einnig ákvæði 16. gr. um sviptingu starfsleyfis samkvæmt lögum þessum með dómi.
Um 19. gr.
Með lögum þessum eru felld úr gildi lög nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, ásamt síðari breytingum svo og lög um sölu á notuðum lausafjármunum enda tekur frumvarp þetta til sölu slíkra lausafjármuna, sbr. ákvæði 1. gr. frumvarpsins og athugasemdir með þeirri grein.
Um 20. gr.
Í V. kafla frumvarpsins leggur nefnd sú, er samið hefur frumvarp þetta, til að heimild til frjáls uppboðshalds verði rýmkuð frá því sem áður hefur gilt. Í samræmi við það markmið leggur viðskiptaráðuneytið til að ákvæði tilskipunar 16. desember 1693, um uppboðsþing í Danmörku og Noregi, sem tilgreind eru í grein þessari falli brott. Samkvæmt tilsk. 16. desember 1693 hefur heimild til frjáls uppboðshalds verið bundin við lögskipaða uppboðshaldara, þ.e. sýslumenn í sýslum, bæjarfógeta í kaupstöðum og borgarfógeta í Reykjavík. Með frumvarpi þessu er lagt til að heimild til frjáls uppboðshalds á lausafjármunum verði rýmkuð, þannig að ef frumvarp þetta verður að lögum, þá verði þeim er verslunarleyfi hafa samkvæmt lögum þessum heimilt að halda frjáls uppboð samkvæmt leyfi hverju sinni. Ákvæði 1. gr. og ákvæði 5. gr. tilsk. 16. desember 1693 eru í andstöðu við framangreind ákvæði þessa frumvarps og þykir því rétt að þau verði afnumin. Jafnframt þykir rétt að benda á að reynt hefur á ákvæðin í Hæstaréttardómi í tuttugasta og fimmta bindi bls. 494 í málinu ákæruvaldið gegn Sigurði Benediktssyni. Í dómi þessum var því slegið föstu að áðurnefnd tilskipun, 16. desember 1693, hefði fullt lagagildi hér á landi og takmarkaði rétt annarra en lögskipaðra uppboðshaldara til þess að halda frjáls uppboð.
Um 21. gr.
Grein þessi þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Samkvæmt gildandi lögum nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, eru verslunarleyfi einungis veitt tímabundið til fimm ára í senn. Til að taka af öll tvímæli þótti nefndinni rétt að kveða svo á um í lögum þessum með ákvæði til bráðabirgða að öll eldri leyfi væru úr gildi fallin að fimm árum liðnum. Samkvæmt þessu skulu verslunarleyfishafar endurnýja leyfi sín í samræmi við ákvæði þessa frumvarps ef að lögum verður, jafnóðum og þau falla úr gildi.
REPRÓ Í GUT.
Fylgiskjal I.
Fylgiskjal II.
Fylgiskjal III.