Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 450 . mál.
Sþ.
810. Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um skyldleika allra íslenskra laxastofna.
Frá Guðmundi G. Þórarinssyni.
1. Hefur landbúnaðarráðuneytið eða Veiðimálastofnun látið fara fram, eða ráðgerir, vísindalegar rannsóknir á erfðafræðilegum mismun laxastofna í íslenskum ám?
2. Telja sérfræðingar landbúnaðarráðuneytis og Veiðimálastofnunar að erfðafræðilegur munur sé á íslenskum eldislaxi og íslenskum villtum laxastofnum?
3. Hvernig verður fylgst með hvort breytingar verða á erfðasamsetningu laxa í ám sem eldislax gengur í?