Ferill 457. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 457 . mál.
Sþ.
817. Tillaga til þingsályktunar
um endurbætur á flugvellinum á Bakka í Austur-Landeyjum.
Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Þorsteinn Pálsson, Guðni Ágústsson,
Óli Þ. Guðbjartsson, Jón Helgason, Eggert Haukdal.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna þörf fyrir endurbætur á flugvellinum á Bakka í Austur-Landeyjum og gera kostnaðaráætlun með tilliti til flugöryggis og flugsamgangna við Vestmannaeyjar.
Greinargerð.
Á Bakka í Austur-Landeyjum er flugvöllur sem upphaflega var gerður af Landgræðslu ríkisins, Vestmannaeyjabæ og Austur-Landeyjahreppi. Upphaflega var völlurinn gerður fyrir áburðarflugvélar Landgræðslunnar og sem vara- og sjúkraflugvöllur fyrir Vestmannaeyjar. Völlurinn er ein austur/vesturbraut, 800 metra löng, og norður/suðurbraut, 300 metra löng. Völlurinn er á sandbornum bakka u.þ.b. 1 km frá sjó og er fær allt árið. Þannig voru 30–40 ferðir farnar milli lands og Vestmannaeyja í janúar og febrúar síðastliðnum.
Eins og áður sagði var þessi völlur upphaflega byggður fyrir flugvélar Landgræðslunnar og einnig notaður fyrir sjúkraflug. Nú hefur umferð hins vegar aukist verulega um flugvöllinn og felst sú viðbót aðallega í farþegaflugi milli lands og Vestmannaeyja.
Til að tryggja betur öryggi þeirra sem um flugvöllinn fara og mæta þeirri aukningu sem orðið hefur í notkun hans þarf að lengja og bæta þær brautir sem fyrir eru. Því er þessi tillaga flutt.