Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 461 . mál.


Ed.

822. Frumvarp til laga



um breyting á tollalögum, nr. 55/1987.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    Við 1. mgr. 28. gr. laganna bætist nýr töluliður svohljóðandi:
    15. Egilsstaðir.

2. gr.

    1. mgr. 79. gr. laganna orðist svo:
    Ríkisstjórninni er heimilt að reka eða leyfa rekstur verslana með tollfrjálsar vörur, þar á meðal áfengi og tóbak, í flugstöðvum á Reykjavíkurflugvelli, Keflavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í tengslum við farþegaflutninga milli landa. Birgðir þeirra verslana má geyma í tollfrjálsum birgðageymslum sem eingöngu eru ætlaðar til þeirra nota.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með frumvarpi þessu er gerð tillaga um að Egilsstaðir verði aðaltollhöfn. Breyting þessi, sem er í samræmi við stefnumörkun samgönguráðherra í flugmálum og samþykkt ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar síðastliðnum, byggist á tillögum flugmálastjórnar um samræmingu á ákvæðum tollalaga við ákvarðanir um alþjóðlega flugvelli hérlendis. Enn fremur felur frumvarpið í sér að heimilt verði að reka tollfrjálsar verslanir á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli á sama hátt og gert er á Keflavíkurflugvelli.
    Allar framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli eru við það miðaðar að flugvöllurinn geti í framtíðinni þjónað sem alþjóðaflugvöllur í millilandaflugi miðað við ýtrustu afkastagetu tveggja hreyfla flugvéla og
almennt farþegaflug. Í stefnumörkun samgönguráðherra í flugmálum er einnig lagt til að athugað verði hvort rétt sé að bæta nokkrum mikilvægum héraðs- og landshlutaflugvöllum í flokk áætlunarflugvalla I. Þar á meðal er flugvöllur á Hornafirði og flugvöllur á Vesturlandi. Egilsstaðaflugvöllur er nú þegar í flokki I. Flokkun flugvalla í áætlunarflugvelli I–III er í samræmi við flokkun í flugmálaáætlun og skilgreiningu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og miðast við þær kröfur sem gera verður til íslenskra flugvalla þegar þeir hafa verið byggðir upp. Samkvæmt því eru áætlunarflugvellir I með 1800 metra flugrein eða lengri.
    Loks skal þess getið að hugmyndir hafa einnig verið uppi um að gera Höfn í Hornafirði og Rif á Snæfellsnesi að aðaltollhöfnum. Ekki þykir að svo stöddu rétt að gera tillögu um slíkt. Í þessu sambandi má geta þess að Höfn er nú þegar tollhöfn og gera má Rif að tollhöfn með reglugerð ef þurfa þykir.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Aðaltollhafnir eru nú 14 hér á landi. Með aðaltollhöfn er átt við stað þar sem för, þ.e. skip og flugvélar, í utanlandsferðum mega fá fyrstu og síðustu afgreiðslu hér á landi og þar sem hvers konar tollmeðferð vöru má fara fram. Þessi grein gerir ráð fyrir að Egilsstaðir bætist í flokk þeirra 14 aðaltollhafna sem fyrir eru. Eftirtaldir staðir eru aðaltollhafnir fyrir: Reykjavík, Akranes, Ísafjörður, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Húsavík, Seyðisfjörður, Neskaupsstaður, Eskifjörður, Vestmannaeyjar, Keflavík, Keflavíkurflugvöllur og Hafnarfjörður.

Um 2. gr.


    Þar sem miklar líkur eru taldar á vaxandi millilandaflugi um Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll er hér lagt til að þeim verði bætt í flokk þeirra flugvalla þar sem reka má verslanir með tollfrjálsar vörur en fyrir í þeim flokki eru Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur.

Um 3. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.