Ferill 462. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 462 . mál.


Ed.

823. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum.

Flm.: Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir.



1. gr.

    Við A-lið 6. gr. laganna (sbr. 3. gr. l. nr. 1/1988) bætist nýr töluliður svohljóðandi:
    23. Námsbækur.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarpi þessu er ætlað að draga úr þeim mikla kostnaði sem námsfólk hefur vegna kaupa á námsbókum.
    Meginverkefni Námsgagnastofnunar er að semja námsefni og sjá nemendum á grunnskólastigi fyrir námsbókum. Sú stofnun hefur búið við mikið fjársvelti um áraraðir og hefur því reynst erfitt að sinna því hlutverki sem henni er ætlað. Það gerist því æ algengara að nemendur, einkum í efri bekkjum grunnskólans, þurfi að kaupa bækur sínar sjálfir. Þess eru dæmi að grunnskólanemendur hafi keypt námsbækur fyrir allt að því 10 þús. kr. á yfirstandandi skólaári.
    Í mörgum nágrannalanda okkar tíðkast það að nemendum er séð fyrir bókum þar til þeir ljúka prófum framhaldsskóla, enda eru stjórnvöld víða farin að líta svo á að nám á framhaldsskólastigi sé í raun skyldunám. Hér á landi nýtur útgáfa námsbóka fyrir framhaldsskólastigið engra styrkja af hálfu yfirvalda og er kostnaður nemenda við bókakaup því umtalsverður. Þess eru dæmi að námsbækur nemenda fyrir eina önn kosti allt að því 20 þús. kr. þetta skólaárið.
    Það er nánast einsdæmi meðal þjóða að lagður sé söluskattur á námsbækur. Niðurfelling hans mundi draga verulega úr kostnaði nemenda við kaup á námsbókum, jafna möguleika þeirra til náms og lækka hlut bókakostnaðar við útreikninga á framfærslu þeirra nemenda sem njóta námslána.