Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 464 . mál.


Ed.

825. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, nr. 89 17. desember 1966, sbr. lög nr. 77/1972.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    2. gr. laga nr. 89/1966, sbr. 1. gr. laga nr. 77/1972, orðist svo:
    Landbúnaðarráðherra skipar sjö menn í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins til fjögurra ára í senn, þrjá menn sem kosnir eru hlutbundinni kosningu af sameinuðu Alþingi, einn eftir tilnefningu Búnaðarfélags Íslands, einn eftir tilnefningu Stéttarsambands bænda og einn eftir tilnefningu stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Landbúnaðarráðherra skipar formann sjóðsstjórnar án tilnefningar.

2. gr.

    1. mgr. 5. gr. laganna orðist svo:
    Byggðastofnun hefur umsjón með Framleiðnisjóði, sér um bókhald hans og rekstur eftir nánara samkomulagi við stjórn Framleiðnisjóðs.

3. gr.

    4. mgr. 5. gr. laganna orðist svo:
    Stjórn sjóðsins semur um þóknun til Byggðastofnunar fyrir störf hennar í þágu sjóðsins.

4. gr.

    1. mgr. 6. gr. orðist svo:
    Ríkisendurskoðun annast endurskoðun reikninga Framleiðnisjóðs.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Samkvæmt 2. gr. laga nr. 89 17. desember 1966, sbr. 1. gr. laga nr. 77/1972, tilnefna eftirtaldir aðilar einn mann í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins: Búnaðarfélag Íslands, Stéttarsamband bænda, stjórn Búnaðarbanka Íslands og stjórn Framkvæmdastofnunar Íslands. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir að fjölgað verði um tvo fulltrúa í stjórn sjóðsins, þannig að sameinað Alþingi kjósi þrjá fulltrúa hlutbundinni kosningu, sem er nýmæli, stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins tilnefni einn fulltrúa í stað stjórnar Búnaðarbanka og Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda tilnefni hvort sinn fulltrúa. Þá hefur Framkvæmdastofnun ríkisins verið lögð niður og Byggðastofnun tekið við ýmsum verkefnum hennar.
    Framleiðnisjóði landbúnaðarins er nú tryggt fjármagn úr ríkissjóði sem ákveðið hlutfall af heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar, nú 4%, skv. 2. mgr. 37. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nr. 46/1985. Er það breyting frá því sem gilti fyrir gildistöku búvörulaganna. Jafnframt hefur fjármálaráðuneytið tekið beinan þátt í gerð búvörusamninga ríkisstjórnarinnar og Stéttarsambands bænda. Með tilliti til þeirra breytinga, sem orðið hafa frá gildistöku laga nr. 46/1985 og að framan er lýst, þykir rétt að sameinað Alþingi kjósi þrjá menn í stjórn sjóðsins. Þá þykir eðlilegt að stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins tilnefni fulltrúa í stjórn Framleiðnisjóðs í stað stjórnar Búnaðarbanka Íslands, m.a. vegna þeirra breytinga sem urðu á yfirstjórn bankans við gildistöku laga um viðskiptabanka, nr. 86/1985.
    Breytingar þær, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á 5. og 6. gr. núgildandi laga, að því er varðar umsjón með sjóðnum og endurskoðun reikninga hans, verður að telja eðlilegar í framhaldi af þeim breytingum sem lagðar eru til á skipan stjórnar sjóðsins, sbr. 2. gr. núgildandi laga og 1. gr. frumvarps þessa. Fordæmi er fyrir því að sjóðir, sem tengjast atvinnuvegunum, séu í umsjá Byggðastofnunar, sbr. ákvæði í bráðabirgðalögum nr. 83 28. september 1988, um Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina. Telja verður því full rök fyrir því að tengja Framleiðnisjóð enn frekar Byggðastofnun en nú er.
    Að öðru leyti þarfnast einstakar greinar frumvarpsins ekki skýringar.