Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 490 . mál.


Sþ.

891. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um Sigló hf.

Frá Jóni Sæmundi Sigurjónssyni.



1.     Var haft samband við fjármálaráðuneytið sem einn stærsta kröfuhafa í þrotabú Sigló hf. varðandi leigu á eignum þrotabúsins til Sigluness hf.?
2.     Hvað hefur Sigló hf. greitt af kaupverði lagmetisiðjunnar Siglósíldar frá kaupdegi til dagsins í dag?
3.     Til hvaða ráðstafana hefur fjármálaráðuneytið gripið til að gæta hagsmuna ríkisins í þessu tilviki?
4.     Hefur fjármálaráðuneytið í hyggju að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að aðilar að gjaldþroti reki fyrirtækið áfram undir nýju merki og komist þannig hjá greiðslu allra skuldbindinga til stórskaða fyrir skuldareigendur?



Prentað upp.