Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 242 . mál.
Nd.
929. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 86/1985, um viðskiptabanka.
Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Fyrsti minni hl. leggur til að frumvarp þetta verði fellt. Ástæðurnar eru augljósar: frumvarpið felur sumpart í sér veigalitlar breytingar á núgildandi lögum, en einnig breytingar sem þýða mundu afturhvarf til verri stjórnunarhátta og hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir bankakerfið í heild.
Meginbreytingin, sem frumvarpið hefði í för með sér ef samþykkt yrði, lýtur að breytingum á 4. mgr. 21. gr. laganna. Þar er lagt til að vextir banka og þjónustugjöld skuli ákveðin af bankaráðum. Þetta hefur bankaeftirlitið túlkað þannig að ef að lögum yrði yrðu bankaráðin að bókfæra allar breytingar á vöxtum og þjónustugjöldum, hversu smávægilegar sem þær væru. Þessi breyting mundi þannig hafa í för með sér að bankaráð yrðu að koma saman eigi sjaldnar en þrisvar í mánuði til þess að taka ákvarðanir sem í raun eru á verksviði bankastjórnar. Slík skipan bryti gegn viðtekinni verkaskiptingu stjórnar og framkvæmdarstjórnar í stórum fyrirtækjum, er í beinni andstöðu við nútímastjórnunaraðferðir og það eftirlitshlutverk sem bankaráðum ríkisbankanna er sérstaklega ætlað samkvæmt lögum.
Þá hefur Samband íslenskra viðskiptabanka bent á að þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í þá átt að lögbinda þá viðmiðun sem bönkum verði heimilt að nota þegar þeir ákveða ávöxtunarkröfu sína gagnvart viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, muni síst af öllu vernda seljendur þeirra eins og þó virðist stefnt að. Þannig má segja að frumvarpið sjálft, verði það að lögum, nái alls ekki þeim tilgangi sem því er ætlað.
Af þessum sökum er einsýnt að greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi. Sum ákvæði þessa frumvarps eru þó skaðlaus og eru í einstaka tilliti til bóta. Þau eru þó svo veigalítil að ekki er ástæða til að breyta lögum þeirra vegna.
Alþingi, 25. apríl 1989.
Ingi Björn Albertsson,
Einar Kr. Guðfinnsson.
fundaskr., frsm.