Ferill 160. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 160 . mál.
Sþ.
936. Nefndarálit
um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1979.
Frá fjárveitinganefnd.
Nefndin hefur rætt frumvarpið og kvaddi til viðræðna við sig fulltrúa fjármálaráðuneytisins.
Nefndin hefur fjallað sérstaklega um svokallaðar „aukafjárveitingar“, þ.e. um greiðslur úr ríkissjóði umfram greiðsluheimildir í fjárlögum, og er greint frá þeirri umfjöllun í nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1987.
Í frumvarpinu er ekki leitað samþykktar við greiðslur umfram fjárlagaheimildir vegna Alþingis og er það í samræmi við venju. Nefndin telur slíka afgreiðslu óeðlilega, enda er frá henni vikið í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 1987 þar sem greiðslur umfram fjárlagaheimildir til Alþingis eru meðhöndlaðar með sama hætti og aðrar greiðslur umfram heimildir, þ.e. að leitað er formlegrar afgreiðslu Alþingis á þeim greiðslum eins og öðrum. Þannig telur nefndin að standa eigi að málum og leggur því fram breytingartillögu við frumvarpið þess efnis að leitað sé samþykkis Alþingis fyrir þeim greiðslum sem á því fjárlagaári voru inntar af hendi úr ríkissjóði vegna Alþingis.
Það er einróma álit nefndarmanna að sá dráttur sem orðið hefur á framlagingu fjáraukalaga sé óverjandi. Nauðsynlegt er að þeim vinnubrögðum verði breytt og er það eitt af því sem nefndin hefur sérstaklega rætt í tengslum við afgreiðslu fjáraukalaga og vísast í því sambandi til nefndarálitsins um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1987.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 25. apríl 1989.
Sighvatur Björgvinsson,
Margrét Frímannsdóttir,
Alexander Stefánsson.
form., frsm.
fundaskr.
Ólafur Þ. Þórðarson.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.
Pálmi Jónsson.
Málmfríður Sigurðardóttir.
Óli Þ. Guðbjartsson.
Egill Jónsson.