Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 98 . mál.


Nd.

940. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á umferðarlögum, nr. 50/1987.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið skriflegar umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Umferðarráði, bæjarfógetanum í Hafnarfirði, sýslumanninum í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, framkvæmdastjóra hjá Vegagerð ríkisins, lögreglustjóranum í Reykjavík, sýslumanninum í Árnessýslu, sýslumanninum í Suður-Múlasýslu, sýslumanninum í Eyjafjarðarsýslu, sýslumanninum í Þingeyjarsýslu, sýslumanninum í Vestur-Skaftafellssýslu, sýslumanninum í Norður-Múlasýslu og sýslumanninum í Rangárvallasýslu.
    Nefndin er sammála um að vegna mjög mismunandi aðstæðna og umferðarþunga sé óráðlegt að láta aðalbrautarrétt gilda um þjóðveg nr. 1 í öllum tilvikum. Hins vegar telur nefndin að rétt sé að gera úttekt á þjóðvegi nr. 1 með tilliti til aðalbrautarréttar og leggur því til að sú úttekt sé gerð og frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Sighvatur Björgvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. apríl 1989.



Jón Kristjánsson,

Kristín Halldórsdóttir,

Kristinn Pétursson.


form., frsm.

fundaskr.



Guðni Ágústsson.

Friðjón Þórðarson.

Geir Gunnarsson.