Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 291 . mál.


Sþ.

947. Nefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1987.

Frá fjárveitinganefnd.



    Nefndin hefur haft frumvarpið til meðferðar og kallaði til fundar við sig fulltrúa fjármálaráðuneytisins og fór yfir niðurstöður útgjalda hjá einstökum stofnunum og viðfangsefnum. Nefndin ræddi síðan við forráðamenn þeirra stofnana, embætta eða viðfangsefna þar sem veruleg frávik voru í útgjöldum frá greiðsluheimildum fjárlaga og leitaði skýringa. Viðstaddir þá fundi voru fulltrúar viðkomandi fagráðuneyta og þá einkum og sér í lagi þeir sem fara með fjármál og fjárhagslegt eftirlit fyrir hönd ráðuneytanna. Einnig voru fulltrúar fjármálaráðuneytisins viðstaddir þessa fundi. Tilgangur þessara funda var, eins og áður segir, sá að fá skýringar forráðamanna þeirra stofnana, embætta eða viðfangsefna þar sem útgjöld höfðu farið verulega fram úr fjárlagaheimildum og leggja áherslu á að útgjaldaáætlanir væru sem réttastar og að þeim væri framfylgt. Þjóna þessir fundir þannig bæði upplýsingahlutverki og aðhaldi og eftirliti með framkvæmd fjárlaga. Til fundar við fjárveitinganefnd voru kvaddir forráðamenn eftirtalinna stofnana, embætta og viðfangsefna:
Æðsta stjórn ríkisins:
    Embætti forseta Íslands.
    Alþingi.
Menntamálaráðuneyti:
    Aðalskrifstofa.
    Menntaskólinn við Hamrahlíð.
    Námsgagnastofnun.
    Tækniskólinn.
    Hótel- og veitingaskólinn.
    Myndlista- og handíðaskólinn.
Utanríkisráðuneyti:
    Aðalskrifstofa.
    Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli.
Landbúnaðarráðuneyti:
    Aðalskrifstofa.
    Veiðistjóri.
    Skógrækt ríkisins.
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti:
    Aðalskrifstofa.
    Bæjarfógeta- og sýslumannsembætti.
    Dómsmál, ýmis starfsemi.
    Löggæslukostnaður við útihátíðir.
Félagsmálaráðuneyti:
    Aðalskrifstofa.
    Húsnæðisstofnun.
    Málefni fatlaðra.

    Sérstaklega ber að taka fram að í sumum tilvikum komu fram eðlilegar skýringar á því að kostnaður hefur farið verulega fram úr áætlun fjárlaga eða að áætlanir um útgjöld, sem stuðst var við þegar frá fjárlögum var gengið, voru ekki raunhæfar, en í öðrum tilvikum kom fram að ekki væri nógu traustlega staðið að fjármálastjórn og var lögð áhersla á það af hálfu fjárveitinganefndar að þar yrði bætt um betur.
    Einnig er rétt að taka fram að þau embætti, viðfangsefni eða stofnanir sem sendu fulltrúa til viðræðna við fjárveitinganefnd vegna afgreiðslu fjáraukalaga fyrir árið 1987 eru síður en svo þau einu sem nefndin taldi nauðsynlegt að skoða sérstaklega enda hafa ýmsar aðrar stofnanir, embætti og viðfangsefni verið í sérstakri skoðun hjá nefndinni þótt sú skoðun tengist ekki sérstaklega afgreiðslu fjáraukalaga fyrir árið 1987.
    Í sambandi við afgreiðslu nefndarinnar á fjáraukalögum þeim, sem verið hafa til meðferðar á Alþingi í vetur, fóru fram miklar umræður í nefndinni og við fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytismenn um svokallaðar „aukafjárveitingar“, þ.e. greiðslur úr ríkissjóði umfram heimildir í
fjárlögum. Fram kom hjá öllum nefndarmönnum eindreginn vilji til þess að setja skorður við greiðslum úr ríkissjóði umfram heimildir fjárlaga sem fjárveitinganefndarmenn eru sammála um að gengið hafi úr hófi fram. Nefndarmenn eru sammála um að þeim vinnubrögðum verði að breyta sem ríkt hafa við afgreiðslu „aukafjárveitinga“ en hins vegar greinir menn nokkuð á um hve langt skuli ganga í því efni.
    Þessi mál hafa verið til umræðu á fundum nefndarinnar með fjármálaráðherra sem bæði hefur veitt nefndinni ítarlegar upplýsingar um þessi mál og óskað samráðs við hana. Á þessum fundum hefur einnig fram komið að fjármálaráðherra er áhugasamur um að breyta þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið varðandi „aukafjárveitingar“ og vill taka ákveðið á þeim málum.
    Þá hefur nefndin einnig snúið sér til Lagastofnunar Háskóla Íslands og átt viðræður við Sigurð Líndal prófessor um lagaleg atriði þessara mála. Nefndin hefur óskað eftir því við Lagastofnun að hún taki þátt í frekari umræðum um þessi mál og samstarfi um setningu reglna eða laga um þau mál og hefur því verið vel tekið.
    Þessu máli tengist svo afgreiðsla fjáraukalaga. Þótt ekki sé litið til annarrar áttar en þeirrar að treysta fjárlagagerð og byggja hana á sem raunhæfustum grunni útgjaldaþarfar þá er ljóst að eigi síðar en um svipað leyti eða skömmu eftir að fjárlög hafa verið lögð fyrir Alþingi ber að leggja fram frumvarp að fjáraukalögum fyrir næstliðið ár sem er lokaumfjöllun um ríkisbúskapinn á því ári. Af slíku frumvarpi til fjáraukalaga, sem yrði þá til meðferðar samhliða fjárlagaafgreiðslunni, mætti betur sjá en ella hversu raunhæfar og réttar áætlanir fjárlagafrumvarps eru um einstök viðfangsefni miðað við rauntölur um niðurstöðuna árið áður. Æskilegast væri þó að afgreiðsla fjáraukalaga fyrir yfirstandandi ár gæti átt sér stað t.d. í lok vormissiris og aftur við árslok — ekki síst ef verulegar breytingar hafa orðið frá afgreiðslu fjárlaga á þýðingarmiklum útgjaldaliðum.
    Þar sem Alþingi fer með fjárveitingavaldið er eðlilegt að það hafi frumkvæði að því að skoða þessi mál og breyta um stefnu og hafi jafnframt forræði um það, en leiti samstarfs við fjármálaráðuneytið, Lagastofnun Háskóla Íslands og aðra. Samkvæmt þingsköpum hefur fjárveitinganefnd Alþingis heimild til þess að skipa úr sínum hópi undirnefnd sem starfi milli þinga að sérstökum verkefnum. Með vísan til þessara ákvæða hefur fjárveitinganefnd samþykkt að skipa undirnefnd og fela henni að vinna áfram að málinu í samvinnu við fjármálaráðuneyti og Lagastofnun Háskóla Íslands. Undirnefndinni hefur verið falið að ljúka störfum í sumar og leggja fyrir fjárveitinganefnd, forseta
Alþingis og þingflokkana niðurstöður sínar um starfsreglur eða lagasetningu um greiðsluheimildir úr ríkissjóði og meðferð „aukafjárveitinga“.
    Nefndin hefur talið rétt vegna afgreiðslu þeirra frumvarpa að fjáraukalögum, sem eru nú til meðferðar á Alþingi, að gera grein fyrir því að hún vill stuðla að breytingum á vinnubrögðum varðandi slík frumvörp og um afgreiðslur greiðsluheimilda og greiðslna úr ríkissjóði. Þessi umræða tengist vissulega umræddum frumvörpum en þótt endanleg niðurstaða sé ekki fengin — nefndin stefnir að því að sú niðurstaða fáist eigi síðar en á haustþingi 1989 — þá á það ekki að standa í vegi fyrir afgreiðslu frumvarpanna. Nefndin leggur þess vegna til að þetta frumvarp verði samþykkt.

Alþingi, 24. apríl 1989.



Sighvatur Björgvinsson,

Margrét Frímannsdóttir,

Alexander Stefánsson.


form., frsm.

fundaskr.



Jón Sæmundur Sigurjónsson.

Ólafur Þ. Þórðarson.

Pálmi Jónsson.



Óli Þ. Guðbjartsson.

Málmfríður Sigurðardóttir.

Egill Jónsson.