Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 461 . mál.
Ed.
948. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á tollalögum, nr. 55/1987.
Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt með þeirri breytingartillögu sem flutt er á sérstöku þingskjali. Sú breytingartillaga felur í sér að ríkisstjórninni verði heimilað að reka eða leyfa rekstur verslana með tollfrjálsar vörur í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og flugstöðvum allra áætlunarflugvalla sem teljast til I. flokks í flugmálaáætlun árin 1988–1991.
Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu.
Alþingi, 26. apríl 1989.
Eiður Guðnason,
Valgerður Sverrisdóttir,
Margrét Frímannsdóttir.
form., frsm.
fundaskr.
Jóhann Einvarðsson.
Ey. Kon. Jónsson.
Júlíus Sólnes.
Halldór Blöndal.