Ferill 273. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 273 . mál.


Sþ.

962. Nefndarálit



um till. til þál. um tónmenntakennslu í grunnskólum.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna á mörgum fundum og sendi hana til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: Félagi tónlistarkennara, fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, fræðslustjóra Reykjanesumdæmis, fræðslustjóra Vesturlandsumdæmis, námsstjóra í tónmennt (menntamálaráðuneyti), Samtökum tónlistarskóla, skólastjóra Hafralækjarskóla í Aðaldal og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Margar þessara umsagna eru ítarlegar og í þeim öllum er tekið jákvætt undir efni tillögunnar.
    Nefndin mælir með því að tillagan verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 27. apríl 1989.



Hjörleifur Guttormsson,

Eiður Guðnason,

Guðni Ágústsson.


form., frsm.

fundaskr.



Birgir Ísl. Gunnarsson.

Hreggviður Jónsson.

Þórhildur Þorleifsdóttir.



Alexander Stefánsson.