Ferill 344. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 344 . mál.


Nd.

1032. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. l. nr. 109/1988.

Frá 2. minni hl. félagsmálanefndar (JSS, GHelg, JK).



1.     Við 1. gr.
. a.     Í stað orðsins „húsbréfakaup“ í 1. efnismgr. komi: húsbréfaviðskipti.
. b.     Í stað tölunnar „12“ í 2. efnismgr. komi: þessarar greinar og.
. c.     Orðin „laga þessara“ í 2. efnismgr. falli brott.
2.     Við 2. gr. Í stað orðanna „1. málsl. 1. mgr. orðist svo“ í a-lið komi: Upphaf 1. mgr. orðist svo.
3.     Við 4. gr.
. a.     Orðin „í inn- og útgreiðslum“ í lok fyrri málsliðar g-liðar (56. gr.) falli brott.
. b.     Upphaf 1. málsl. l-liðar (61. gr.), að orðinu „65%“, orðist svo: Skipta má fasteignaveðbréfum fyrir húsbréf fyrir fjárhæð sem nemur allt að.
. c.     2. málsl. m-liðar (62. gr.) orðist svo: Húsbréfadeild gerir tillögu til félagsmálaráðherra um verðtryggingarskilmála, endurgreiðsluform, lánstíma, vexti og heildarfjárhæðir í hverjum flokki.
. d.     Orðið „líklega“ í 2. málsl. n-liðar (63. gr.) falli brott.
. e.     Í stað orðanna „greiða fyrir“ í 3. málsl. n-liðar (63. gr.) komi: stuðla að.
. f.     Orðið „staðar“ í fyrri málsliðar o-liðar (64. gr.) falli brott.
. g.     Í stað orðanna „verðbréfamiðlun nr. 27/1986“ í 1. málsl. q-liðar (66. gr.) komi: verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði, nr. 20/1989.
4.     Við 5. gr. Í stað orðanna „1. september 1989“ komi: 15. nóvember 1989.