Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 37 . mál.


Sþ.

1053. Nefndarálit



um till. til þál. um bætta samkeppnisstöðu innlends skipaiðnaðar.

Frá atvinnumálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og mælir með því að hún verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali.
    Nefndin væntir þess að eftirtalin atriði, sem nefnd eru í upphaflegri tillögugrein, verði höfð í huga við framkvæmd þessarar þingsályktunar:
    1. Ríkisstjórnin reyni að tryggja að útvegsmenn og opinberir sjóðir semji ekki um nýsmíði skipa eða viðhaldsverkefni erlendis án undangengins útboðs þar sem innlendir aðilar keppi á jafnréttisgrundvelli við erlendan skipaiðnað, m.a. hvað snertir meðferð tilboða og fjármagnsfyrirgreiðslu.
    2. Tilboð verði metin á viðskiptalegum grundvelli áður en lánveitingar eru ákveðnar.
    3. Settar verði staðlaðar reglur um útboð, veðskilmála og tilboð í skipaiðnaðarverkefnum.
    4. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að bankar veiti sambærilegar ábyrgðir vegna skipaiðnaðarverkefna innan lands og veittar eru þegar verkefni eru unnin erlendis.
    Nefndin telur æskilegt að ríkisstjórnin skili skýrslu um framgang þessarar þingsályktunartillögu á haustþingi 1989.

Alþingi, 2. maí 1989.



Árni Gunnarsson,

Ólafur Þ. Þórðarson,

Geir Gunnarsson.


form., frsm.

fundaskr.



Jón Kristjánsson.

Matthías Á. Mathiesen.

Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.



Geir H. Haarde.