Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 393 . mál.
Ed.
1102. Breytingartillögur
við frv. til l. um málefni aldraðra.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
1. Við 1. gr.
. Við seinni málsgrein bætist: og möguleikar þeirra til ráðstöfunar eigin eigna og lífeyris ef þess gerist þörf.
2. Við 5. gr.
. a. Í stað 1.–3. mgr. komi:
. Stjórn heilsugæslustöðvar og félagsmálaráð eða félagsmálanefndir í sveitarfélögum á starfssvæði heilsugæslustöðvar skulu tilnefna fulltrúa í sérstaka undirnefnd, öldrunarnefnd. Í öldrunarnefnd skulu aldrei vera fleiri en sjö, tveir tilnefndir af stjórn heilsugæslustöðvar (heilbrigðismálaráði í Reykjavík), hinir frá viðkomandi sveitarfélögum. Sveitarstjórnir velja nefndinni formann.
. b. Upphaf 4. mgr., er verður 2. mgr., orðist svo:
. Öldrunarnefnd annast eftirtalin verkefni og gerir tillögur þar að lútandi til stjórnar heilsugæslustöðvar (í Reykjavík heilbrigðismálaráðs) og félagsmálaráða eða félagsmálanefnda.
. c. Orðin „til viðkomandi sveitarstjórnar“ í 3. tölul. 4. mgr. falli brott.
. d. Orðin „65 ára og eldri“ í 5. mgr. falli brott.
. e. Síðari málsliður 6. mgr. orðist svo: Þá getur öldrunarnefnd og ákveðið að gefa fulltrúum félaga á starfssvæðinu, sem starfa í þágu aldraðra, kost á að eiga áheyrnarfulltrúa í nefndinni.
3. Við 6. gr.
. a. 2. mgr. orðist svo:
. Þar sem það þykir hentugra geta sveitarstjórnir ákveðið að fela þjónustuhópi aldraðra hlutverk öldrunarnefndar á starfssvæðinu.
. b. Orðin „65 ára og eldri“ í 3. mgr. falli brott.
4. Við 7. gr. Á eftir orðunum „að gefa“ í síðustu málsgrein bætist: félögum, sem starfa í þágu aldraðra, og.
5. Við 17. gr. Síðari hluti síðasta málsliðar 2. tölul., frá orðinu „íbúðahverfi“, falli brott.
6. Við 18. gr.
. a. Í stað orðsins „Hjúkrunardeildir“ í upphafi 1. málsl. 2. tölul. komi: Hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum.
. b. Í stað orðsins „hjúkrunardeildum“ í upphafi 2. málsl. 2. tölul. komi: hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum.
. c. Í stað orðsins „hjúkrunardeildir“ í síðasta málslið 2. tölul. komi: hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum.
. d. Í stað orðsins „sjúkradeild“ í síðasta málslið 2. tölul. komi: sjúkrahús.
7. Við 20. gr. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Jafnframt skal skýra ráðuneytinu frá því hver muni bera ábyrgð á rekstri sameignar og sameiginlegrar þjónustu í húsnæðinu.
8. Við 30. gr. Greinin orðist svo:
. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal þegar eftir gildistöku laganna setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þeirra, m.a. um búnað stofnana fyrir aldraða, aðbúnað og þjónustu við vistmenn, svo og starfslið stofnana eftir starfsemi þeirra.
9. Við 31. gr. Við greinina bætist: Lög þessi skal endurskoða innan fimm ára frá gildistöku þeirra.