Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 203 . mál.


Nd.

1141. Breytingartillögur



við frv. til l. um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Frá félagsmálanefnd.



1.     Við 47. gr. Greinin orðist svo:
.      Í stað 85. og 86. gr. laganna kemur ein ný grein er verður 82. gr. og orðist svo:
.      Ríkissjóður greiðir allan kostnað af rekstri fræðsluskrifstofu, þar með talinn allan kostnað við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í þeim skólum sem lög þessi taka til. Fjárveitingar til þessara starfa skulu greiddar mánaðarlega til fræðsluskrifstofu.
.      Í reglugerð skal setja ákvæði um hvernig reikna skuli framlög til fræðsluskrifstofu.
2.     Á eftir 70. gr. komi ný grein er orðist svo:
.      Í stað 12. gr. laganna (um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla) komi þrjár nýjar greinar svohljóðandi:
. a.     (12. gr.)
..      Menntamálaráðuneytið skal hafa með höndum faglega umsjón og eftirlit með tónlistarkennslu. Ráðuneytið ræður í þessu skyni námsstjóra tónlistarfræðslunnar til fjögurra ára í senn svo og annað nauðsynlegt starfslið.
..      Verkefni ráðuneytisins eru m.a.: yfirstjórn námsskrár- og námsefnisgerðar, sbr. 3. tölul. 1. gr., samræming náms, prófa og réttinda er þau veita, aðstoð varðandi ráðningar kennara, ráðgjöf varðandi gerð starfs- og fjárhagsáætlana skóla, upplýsingamiðlun og erlend samskipti.
. b.     (13. gr.)
..      Ráðuneytið skipar fimm manna samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar til að fjalla í heild um starfsemi tónlistarskóla, samstarf skólanna og/eða rekstraraðila þeirra svo og samstarf tónlistarskóla við grunnskóla og framhaldsskóla.
..      Í nefndinni eiga sæti einn fulltrúi tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einn fulltrúi tilnefndur af Samtökum tónlistarskólastjóra, einn fulltrúi tilnefndur af Félagi tónlistarskólakennara, námsstjóri tónmennta í grunnskólum, skipaður án tilnefningar, námsstjóri tónlistarfræðslunnar, skipaður án tilnefningar, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.
. c.     (14. gr.)
..      Menntamálaráðuneytið setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um starfshætti og verkefni samstarfsnefndar tónlistarfræðslunnar.