Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 393 . mál.


Nd.

1240. Nefndarálit



um frv. til l. um málefni aldraðra.

Frá minni hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Minni hl. nefndarinnar leggst ekki gegn meginefni þessa frumvarps enda er ekki ágreiningur um nauðsyn þess að ný lög um málefni aldraðra taki gildi um næstu áramót.
    Minni hl. leggst hins vegar eindregið gegn þeirri viðbótarskattlagningu á almenning sem ríkisstjórnin hyggst knýja fram með frumvarpi þessu og reynt hefur verið að fara í felur með af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hér er í raun verið að hækka tekjuskatta um 200 millj. kr. svo að lítið beri á.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hinn sérstaki skattur í Framkvæmdasjóð aldraðra verði tekinn upp að nýju og verði 2500 kr. á mann. Skattur þessi var síðast lagður á með álagningu vegna tekna ársins 1986, en er staðgreiðsla skatta var tekin upp var innheimtu hans hætt og sjóðnum tryggðar samsvarandi tekjur af innheimtu staðgreiðslufé.
    Rétt er að minna á að þegar staðgreiðslan var tekin upp féllu niður fjórir smáskattar og urðu hluti staðgreiðslunnar og hækkaði álagningarhlutfall hennar sem þeim nam. Þessir skattar voru sóknargjald, kirkjugarðsgjald og sjúkratryggingagjald auk hins sérstaka gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Hefur ekki orðið vart við að þeir aðilar, sem áður höfðu tekjur af þessum smásköttum, hafi kvartað um hlutdeild sína í staðgreiðslufénu enda hefur verið tryggilega frá henni gengið.
    Með því að taka einn þessara skatta upp að nýju í tengslum við samþykkt þessa frumvarps er að dómi undirritaðra nefndarmanna verið að fara inn á afar óæskilega braut og fordæmi gefið fyrir því að allir gömlu smáskattarnir verði teknir upp að nýju án þess að staðgreiðsluhlutfallið lækki á móti. Með þessu er verið að grafa undan framkvæmd staðgreiðslunnar sem hefur það að markmiði að sem flestir gjaldendur séu jafnan skuldlausir við ríkissjóð. Frumvarpið mun gera það að verkum að alls enginn verður skuldlaus og senda þarf öllum gjaldendum rukkun fyrir gjaldinu eftir á. Í núgildandi kerfi eru það eingöngu
greiðendur eignarskatta sem greiða eftir á, sem og þeir sem ekki hafa staðgreitt skatta af tekjum sínum með venjulegum hætti. Er glögg grein gerð fyrir þessu í áliti ríkisskattstjóra sem birt er sem fylgiskjal með nefndaráliti þessu. Allir smáskattar og fráhvarf frá samtímainnheimtu skatta gerir framkvæmd staðgreiðslunnar erfiðari.
    Að auki er alveg skýrt að þeir peningar, sem hér á að innheimta, eru nú þegar teknir af almenningi. Það eru hrein brigð gagnvart gjaldendum að taka þennan skatt upp að nýju og gengur þvert gegn þeim yfirlýsingum sem gefnar hafa verið af öllum þeim sem ábyrgð bera á staðgreiðslukerfinu, upptöku þess og framkvæmd. Eigi að leggja hinn sérstaka skatt á að nýju er að sjálfsögðu lágmarkskrafa að innheimtuhlutfall í staðgreiðslunni lækki á móti.
    Að því er varðar árið í ár er ástæða til að vekja sérstaka athygli á skattheimtuáformum þeim sem í frumvarpinu felast. Frumvarpið í heild á ekki að taka gildi fyrr en um næstu áramót. Hins vegar á ákvæðið um hinn sérstaka skatt að taka gildi nú þegar og koma þannig til framkvæmda til skattálagningar í sumar. Þetta eitt og sér hlýtur að teljast mjög óeðlilegt því að Framkvæmdasjóði aldraðra hafa á fjárlögum verið tryggðar 160 millj. kr. til starfsemi sinnar, en það er sú upphæð sem áætlað er að hinn eldri sérskattur í sjóðinn hefði gefið. Í framsögu heilbrigðisráðherra fyrir málinu í efri deild 11. apríl sl. kom fram að af þeim tekjum, sem skatturinn skilaði í ár, mundu 40 millj. kr. renna í sjóðinn til viðbótar þeim 160 millj. kr. sem eru á fjárlögum. Augljóslega er því ætlunin að taka mismuninn, 160 millj. kr., beint í ríkissjóð á þessu ári.
    Þessu er minni hl. algerlega andvígur og bendir jafnframt á hversu óeðlilegt það er að fela nýja tekjuöflun í ríkissjóð í frumvarpi um faglegt málefni sem efnisleg samstaða er um að flestu öðru leyti.
    Skattur þessi mun lenda á öllum einstaklingum sem hafa tekjur yfir skattleysismörkum og eru á aldrinum 16–70 ára. Hann kemur til viðbótar öðrum skattahækkunum núverandi ríkisstjórnar sem koma munu til framkvæmda nú í sumar og sýnt hefur verið fram á að bitni ekki síst á ekkjum og ekklum. Á sama tíma er til meðferðar á Alþingi frumvarp frá ríkisstjórninni um lækkun á ýmsum öðrum sköttum sem stjórnarmeirihlutinn samþykkti að illa athuguðu máli fyrir jólin, þar á meðal hinum sérstaka skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
    Minni hl. nefndarinnar mun flytja breytingartillögur við frumvarpið sem ganga í þá átt að falla frá þeirri nýju skattheimtu sem hér er ráðgerð og að auki tillögur um ýmsar minni háttar lagfæringar á öðrum efnisatriðum frumvarpsins.

Alþingi, 18. maí 1989.



Geir H. Haarde,

Ragnhildur Helgadóttir.


frsm.







Fylgiskjal.


Umsögn ríkisskattstjóra um 10. gr. frumvarps


til laga um málefni aldraðra, 393. mál.


(17. maí 1989.)



    Á fundi með nefndinni laugardaginn 13. maí sl. var ég beðinn að veita skriflega umsögn um 10. gr. frv. til laga um málefni aldraðra, en frumvarpið fékk ég í hendur frá nefndinni kvöldið áður. Fyrst mun ég fjalla um greinina almennt og væntanlega framkvæmd hennar og síðan um einstök ákvæði hennar.
    Í athugasemdum við frumvarp til laga nr. 49 frá 30. mars 1987, um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, segir svo orðrétt:
    „Í frumvarpi þessu og hliðarfrumvörpum með því er gert ráð fyrir að lagður verði á einn tekjuskattur til ríkisins sem komi í stað núverandi tekjuskatts, sjúkratryggingagjalds, gjalds til Framkvæmdasjóðs aldraðra, sóknargjalds og kirkjugarðsgjalds. Þessi tekjuskattur innheimtist ásamt útsvari til sveitarfélags þannig að í reynd verður um að ræða eitt álagningarhlutfall fyrir alla launþega að öðru leyti en því að frávik í útsvarsálagningu milli einstakra sveitarfélaga kemur fram við eftiráuppgjör. Þeim aðilum, sem nú njóta tekna af þeim sérsköttum er hverfa, verður á móti tryggð hlutdeild í hinum sameiginlega skatti.“
    Og enn fremur:
    „Gert er ráð fyrir að í stað tekjuskatts, sjúkratryggingagjalds, framlags í Framkvæmdasjóð aldraðra, sóknargjalds og kirkjugarðsgjalds komi eitt skatthlutfall, 28,5%.“ Sérstakt gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra var síðast
lagt á árið 1987, skv. l. nr. 91/1982, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, en samkvæmd nefndum lögum skyldi gjaldið lagt á í síðasta skipti á því ári. Með hliðsjón af framangreindu virðist gæta nokkrar ónákvæmni í greinargerð með frumvarpi því sem nú liggur fyrir þinginu þar sem segir í almennum athugasemdum:
    „Tekjustofn Framkvæmdasjóðs aldraðra er hafður óbreyttur, þ.e. sérstakt gjald sem leggja skal á alla gjaldendur með ákveðnum undantekningum.“ — Sbr. einnig þar sem segir í athugasemd við 10. gr.: „Óbreytt er frá gildandi lögum að sérstakt gjald, sem lagt er á alla gjaldendur með ákveðnum undantekningum, sé megintekjustofn Framkvæmdasjóðs aldraðra.“
    Um framkvæmd álagningar og innheimtu gjaldsins almennt er það að segja að nefskattar sem þessi falla ekki að staðgreiðslukerfi skatta og mun gjaldið almennt auka eftiráinnheimtu opinberra gjalda, þ.e. auka fjölda þeirra gjaldenda sem ekki gerast upp að fullu í staðgreiðslunni. Ekki er unnt á þeim stutta tíma sem ætlaður er til umsagnar að gera sér grein fyrir viðbótarkostnaði við álagningu og innheimtu gjaldsins. Hins vegar er á það að líta að reynsla er af álagningu og innheimtu gjaldsins frá fyrri tíð og er í sjálfu sér ekkert sem bendir til annars en unnt sé að koma því til framkvæmda við álagningu á þessu ári þrátt fyrir skamman undirbúningstíma.
    Tæknilegar athugasemdir við einstök ákvæði 10. gr. frumvarpsins eru það margar að nauðsynlegt hefur verið að umskrifa 1. tölul. 10. gr. og fylgir sá texti bréfi þessu. Þar er um að ræða afmörkun á skattskyldum aðilum, tímaviðmiðanir varðandi liði sem breytast samkvæmt vísitölum, orðalag tekjuviðmiðunar og annað orðalag. Að sjálfsögðu er þar ekki um að ræða neinar efnisbreytingar.
    Varðandi síðustu málsgrein 1. tölul. er athugandi að gjaldið yrði að óbreyttu innheimt á mörgum gjalddögum, en miðað við fjárhæð þess væri e.t.v. eðlilegt að þeir væru færri. Tillaga að hugsanlegri breytingu í þá átt fylgir þessu bréfi.

Virðingarfyllst,


Garðar Valdimarsson,


ríkisskattstjóri.