Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 393 . mál.
Nd.
1249. Nefndarálit
um frv. til l. um málefni aldraðra.
Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra og Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu.
Meiri hl. nefndarinnar fellst á afgreiðslu efri deildar á málinu með þeirri breytingu sem meiri hl. gerir tillögu um á sérstöku þingskjali. Þá stendur nefndin sem heild einnig að nokkrum breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Breyting meiri hl. er gerð í samráði við ríkisskattstjóra og er þar um að ræða nokkrar tæknilegar breytingar á 10. gr. er varða afmörkun á skattskyldum aðilum, tímaviðmiðanir varðandi liði er breytast samkvæmt vísitölum, orðalag tekjuviðmiðunar og annað orðalag. Ekki er í þessari tillögu um neinar efnisbreytingar að ræða.
Alþingi, 18. maí 1989.
Guðrún Helgadóttir,
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
Jón Kristjánsson.
form.
fundaskr., frsm.
Finnur Ingólfsson.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.