Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 393 . mál.
Nd.
1251. Breytingartillögur
við frv. til l. um málefni aldraðra.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
1. Við 8. gr. Á eftir 2. tölul. fyrri málsgreinar komi nýr töluliður er orðist svo:
. Að setja upp í samvinnu við hinn aldraða samþætta áætlun um þjónustu, sbr. 15. gr., sem byggist á samræmdu faglegu mati.
2. Við 15. gr. 2. mgr. orðist svo:
. Með heimaþjónustu er átt við þá þjónustu sem veitt er öldruðum sem búa heima. Sú þjónusta byggist á hjálp til sjálfshjálpar og tekur mið af heilsufarslegu og félagslegu ástandi einstaklingsins og er hún tvíþætt. Annars vegar er heilbrigðisþáttur heimaþjónustu sem er í höndum starfsliðs heilsugæslustöðva. Hins vegar er félagslegur þáttur heimaþjónustu sem er í höndum félagslegrar þjónustu viðkomandi sveitarfélaga eða aðila sem sveitarfélög semja við.
3. Við 17. gr. 1. málsl. 2. tölul. orðist svo: Þjónustumiðstöðvar aldraðra sem bjóða upp á þjónustu við aldraða sem búa heima.
4. Við 18. gr.
. a. Síðasti málsliður 1. tölul. orðist svo: Þjónusta, sem hver einstaklingur nýtur, fer eftir einstaklingsbundnu mati á þörf, sbr. 19. gr., og skal byggjast á hjálp til sjálfshjálpar.
. b. Við 2. tölul. bætist: Þjónusta, sem hver einstaklingur nýtur, fer eftir einstaklingsbundnu mati á þörfum sjúklings og byggist á hjálp til sjálfshjálpar.
Prentað upp.