Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 393 . mál.
Nd.
1320. Breytingartillögur
við frv. til l. um málefni aldraðra og brtt. á þskj. 1250.
Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar (GHelg, JSS, AðB, JK, GGÞ).
1. Við brtt. á þskj. 1250. Síðasti málsliður 1. efnismgr. falli brott.
2. Við 31. gr. Greinin orðist svo:
. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1990 og falla þá úr gildi lög nr. 91 frá 31. desember 1982, með síðari breytingum.
. Lög þessi skal endurskoða innan fimm ára frá gildistöku þeirra.
3. Á eftir 31. gr. bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
. Á árinu 1989 er fjármálaráðherra heimilt að veita viðbótarframlag til Framkvæmdasjóðs aldraðra úr ríkissjóði að upphæð 40 millj. kr. svo að heildarfjárveiting til sjóðsins nemi samtals 200 millj. kr.