Forseti Íslands setur þingið
Þriðjudaginn 10. október 1989


     Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):
    Hinn 21. september 1989 var gefið út svofellt bréf:

    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1989.
    Um leið og ég birti þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 21. september 1989.


Vigdís Finnbogadóttir.



Steingrímur Hermannsson.

    Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1989.``

    Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett.
    Bið ég yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.
    Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.