Kosning forseta og skrifara í Sþ.
Miðvikudaginn 11. október 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég þakka það traust sem þorri hv. þm. hefur sýnt mér með því að fela mér forsetaembættið að nýju. Ég mun reyna að vera þess trausts verðug og vona að mér auðnist að eiga góð og drengileg samskipti við þingheim allan, stjórnarsinna sem stjórnarandstöðu.