Kosning forseta og skrifara í Ed.
Miðvikudaginn 11. október 1989


     Forseti (Jón Helgason):
    Ég vil þakka hv. aldursforseta góðar óskir í minn garð og hv. deildarmönnum fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér með því að endurkjósa mig forseta hv. efri deildar og vonast ég til þess að samstarf okkar megi verða jafngott á komandi þingi eins og á hinu síðasta.