Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. hefur svarað ítarlega spurningum og því sem fram kom í ræðu hv. þm. Pálma Jónssonar. Skal ég ekki lengja umræðuna með því að endurtaka það. Ég vil hins vegar taka undir með hv. þm. að það er afar nauðsynlegt að setja fastari reglur um veitingu aukafjárveitinga og vona að frá þeirri undirnefnd fjvn. sem að því vinnur komi slíkar reglur. Eins og kom greinilega fram í þeim upplýsingum sem hæstv. fjmrh. lagði fram þá hafa aukafjárveitingar verið mjög tíðar og miklar og hann hefði getað farið lengra aftur í tímann, til þess tíma t.d. þegar hv. þm. og sá sem hér stendur voru saman í ríkisstjórn. Þá voru aukafjárveitingar afar miklar enda hygg ég að í öllum tilfellum hafi verið afar nauðsynlegt að leysa vandmeðfarin mál. En um þetta þurfa, ég tek undir það, að vera ákveðnari reglur og við skulum vona að þær verði þannig að við þær verði búandi, bæði fyrir fjárveitingavaldið og framkvæmdarvaldið.
En ég vil sérstaklega koma að því sem hv. þm. sagði um ráðningu sérstaks manns til að sinna samskiptum ríkisstjórnarinnar og hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Ég kannast ekki við að það sé lögbrot að ráða mann til sérstakra verkefna tímabundið enda eru dæmin um það svo fjölmörg að ekki mundi kvöldið duga til að telja þau öll upp. Hér er um það að ræða að maður sem var starfandi í ríkisstofnun var tímabundið ráðinn, á þeim sömu kjörum og hann var þar, til að sinna mjög mikilvægu sambandi við stuðningsmann ríkisstjórnarinnar, fara yfir þau mál og frv. sem ríkisstjórnin er með í undirbúningi og er ekki ætlast til þess að einn þm. geti í raun sinnt. Og ég tek undir hvert orð sem hæstv. fjmrh. sagði um þá undarlegu reglu Alþingis að einn maður í þingflokki fær ekki sérfræðiaðstoð og vil reyndar upplýsa að ég hef ákveðið að beita mér fyrir breytingu á því.
Hér var ráðinn maður tímabundið, fyrst til sex mánaða og síðan til þriggja mánaða. Núv. ríkisstjórn hefur samþykkt að beita sér fyrir því að hv. þm. Stefán Valgeirsson geti áfram notið þeirrar nauðsynlegu sérfræðiaðstoðar þó ekki sé búið að ganga frá því nú hvernig það verður gert. Ég kannast ekki við að það sé á einhvern máta ólöglegt að slíkur maður, sem ráðinn er tímabundið til sérstaks verkefnis, hafi starfsaðstöðu utan Stjórnarráðsins. Um það eru einnig fjölmörg dæmi eins og t.d. hæstv. fjmrh. lýsti. Og svo er í þessu tilfelli. Þannig að ég vísa því algjörlega á bug að um einhverja --- eins og hv. þm. orðaði það --- niðurlægingu forsrh. sé að ræða þegar um það er að ræða að skapa stuðningsmanni ríkisstjórnarinnar aðstöðu til að sinna þeim verkefnum sem hann tekur að sér með þeim samningum sem gerðir voru. Ég hefði talið hitt hina mestu skömm að sjá ekki viðkomandi þm. fyrir þeirri aðstöðu sem nauðsynleg er svo ég vísa því algjörlega á bug.
Um þessi mál öll mætti fara miklu fleiri orðum en ég vísa aftur til þess sem hæstv. fjmrh. hefur sagt, ég tel afar mikilvægt að nú hefur verið ákveðið að leggja
fram fjáraukalög og í þeim fjáraukalögum verður einnig gert ráð fyrir fjármagni til þess að kosta þá sérfræðiaðstoð sem ég hef hér gert sérstaklega að umræðuefni.