Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Ég vil byrja á því að færa málshefjanda þakkir fyrir að hefja umræðu um það efni sem við höfum varið drýgstum hluta dagsins í að fjalla hér um, en það lýtur að óheimilum ráðstöfunum ríkissjóðs og ríkisstjórnar á fjármunum ríkisins. Gagnrýni hv. málshefjanda var hér skýr og ljós.
Tveir hæstv. ráðherrar hafa flutt hér varnarræður. Það kom glögglega í ljós í varnarræðu hæstv. forsrh. að hann er í vandræðum með þetta mál svo sem hann áður hefur upplýst í blöðum.
Varnarræða hæstv. fjmrh. bar flest einkenni hans málflutnings. Í fyrsta lagi einkenndist hún af beinum rangfærslum, ósönnum fullyrðingum. Í öðru lagi fjallaði ræðan að stærstum hluta til um allt aðra hluti en hv. málshefjandi var hér að hefja máls á og umræðan snýst um. Þetta er auðvitað gert í þeim tilgangi að drepa umræðuefninu á dreif og freista þess að fá fjölmiðlamenn til þess að fjalla um annað en það sem hv. málshefjandi vakti hér máls á og er til umræðu, en drýgstur hluti ræðu hæstv. fjmrh. fór einmitt í umfjöllun um það sem ekki er hér til umræðu. Og í þriðja lagi einkenndist ræða hæstv. fjmrh. af villandi samanburði sem hvergi kemur nálægt þessari umræðu, allt gert í þeim tilgangi að hlaupast undan umræðunni, hlaupast undan í varnarræðu sinni við að svara þeirri gagnrýni sem hér kom fram af hálfu hv. 2. þm. Norðurl. v.
Ég ætla fyrst að víkja að einu atriði sem heyrir undir eitt af höfuðeinkennum þessarar ræðu og reyndar málflutnings hæstv. fjmrh. almennt, en það eru rangfærslurnar. Hann hélt því hér fram, hæstv. ráðherra, í umræðunni að þingflokkur Sjálfstfl. hefði gert um það sérstaka samþykkt í sumar að hæstv. fjmrh. hætti innheimtuaðgerðum vegna söluskatts. Þessi fullyrðing er sett hér fram þó að hún komi umræðuefninu ekki við og í öðru lagi er hún röng. Það er verið að vitna til sérstakrar samþykktar sem þingflokkurinn gerði vegna sérstakra innheimtuaðgerða sem hæstv. fjmrh. gekkst fyrir.
Nú er það svo að það er lagaleg skylda, stjórnskipuleg skylda hæstv. fjmrh. að sjá svo um að innheimtumenn ríkisins ræki sitt starf af trúmennsku og gangi eftir því lögum samkvæmt og þannig að allir sitji við sama borð að innheimta álögð gjöld og skatta til ríkisins og á undanförnum árum hefur þetta verið gert og innheimtumenn ríkisins staðið sig með ágætum í sínum störfum, enda hefur innheimtan á undanförnum árum, til að mynda á söluskatti, verið 94--97%.
Það sem fram kom í þeirri ályktun þingflokks sjálfstæðismanna sem ég geri ráð fyrir að hæstv. ráðherra hafi verið að vitna til var þetta: Að það hefði verið staðið þannig að þessum sérstöku innheimtuaðgerðum, sem ráðherrann sjálfur beitti sér fyrir, að mismunað hefði verið í framkvæmd, þ.e. þeir sem greiða eiga söluskatt sitji ekki allir við sama borð. Í ályktuninni segir, með leyfi forseta:
,,Ekki er ágreiningur um að sýna beri ákveðni og
festu við innheimtu söluskatts hjá fyrirtækjum sem þegar hafa innheimt skattinn hjá almenningi. Fjmrh. hefur nú vegna þungrar mótmælaöldu orðið að láta undan í einum þætti málsins sem er lokunaraðgerðir gegn fyrirtækjum sem eiga óútkljáðan ágreining fyrir ríkisskattanefnd. Þrátt fyrir þetta stendur það óhaggað að atvinnufyrirtæki sitja ekki við sama borð.``
Það er deginum ljósara að í ákvörðun hæstv. fjmrh. um þessar sérstöku innheimtuaðgerðir var sérstaklega tekið fram að þau fyrirtæki sem voru til sérstakrar meðferðar, eins og það var orðað, held ég, á vegum ríkisstjórnarinnar ættu að vera undanþegin. Þegar af þessari ástæðu var í upphafi komin fram mismunun sem ástæða var til þess að mótmæla. Í annan stað kom fram mismunun vegna þess að aðstaða fyrirtækja var einfaldlega ekki sú sama. Sum fyrirtæki áttu óútkljáð deilumál og ráðherrann lét undan í því efni þegar mótmælaaldan var orðin nægjanlega hörð. En að þessu vík ég hér vegna þess að ráðherrann dró þetta inn í umræðuna með rangri fullyrðingu sem er eitt af höfuðeinkennum í málflutningi hans, að geta helst ekki sagt satt orð.
Í annan stað kaus hæstv. ráðherra að verja drýgstum tíma sínum í að ræða efni sem ekki komu þeirri gagnrýni við sem hv. 2. þm. Norðurl. v. hóf hér máls á, þ.e. almenna umræðu um aukafjárveitingar. Aukafjárveitingar eru ekki óheimilar. Aukafjárveiting er í sjálfu sér ekki óheimil ráðstöfun á opinberu fé. Í reglugerð fyrir Stjórnarráð Íslands sem birt er í lagasafni kemur fram að Fjárlaga- og hagsýslustofnun á að fara með greiðslur utan fjárlagaheimilda. Með öðrum orðum, þar er gert ráð fyrir því að aukafjárveitingar séu óhjákvæmilegur þáttur í framkvæmd ríkisfjármálanna. Hv. 2. þm. Norðurl. v. var hér hins vegar að ræða um óheimilar ráðstafanir á opinberum fjármunum. Hitt er svo annað mál að það þarf að gæta mikils aðhalds varðandi aukafjárveitingar þó að ekki verði sagt að þær fari í bága við lög og beinlínis sé tekið fram í stjórnarráðsreglugerðinni að Fjárlaga- og hagsýslustofnun fari með þau málefni. Ég tek undir þær tillögur af ýmsu tagi sem fluttar voru hér á síðasta þingi og miða að því að takmarka möguleika til útgáfu aukafjárveitinga. Tölulegur samanburður í þessu efni getur verið mjög villandi. Það er til að mynda nauðsynlegt að greina á milli í því efni hvort um er að ræða
aukafjárveitingar vegna óhjákvæmilegra verðlagsbreytinga sem orðið hafa eða aukafjárveitingar til nýrra verkefna sem Alþingi hefur ekki áður ákveðið og ég hygg að ef menn hafa áhuga á því að ræða aukafjárveitingar með sögulegum skírskotunum, þá sé nauðsynlegt að gera lista þar sem tölur eru settar fram í þessu formi. En hæstv. fjmrh. gumar nú mjög af því að hann hafi tekið upp ný vinnubrögð. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að hann líti á sjálfan sig sem slíkan tímamótamann að ekkert gerist í hans ráðuneyti öðruvísi en þar sé um að ræða tímamót í Íslandssögunni a.m.k. frá því að lýðveldið var stofnað.
Það er fróðlegt í því sambandi að rifja hér upp hvernig hæstv. ríkisstjórn stendur að þessum málum. Fjmrh. hæstv. gumar af því að hann ætli nú að taka upp ný vinnubrögð, það séu ekki greiddar úr ríkissjóði aukaheimildir til fjárútláta fyrr en Alþingi hafi samþykkt þær. Fyrir ekki mörgum vikum áttu sér stað talsverðar deilur hér í þjóðfélaginu um aukin útgjöld Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hæstv. menntmrh. gekk þá berserksgang gegn stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna vegna þess að hún hafði í hyggju að fara eftir fjárlögum og hafði gefið það út opinberlega að hún ætlaði að fara eftir fjárlögum og greiða út námslán í byrjun septembermánaðar í samræmi við fjárlög. Þá upphófust einhverjar mestu pólitísku ofsóknir ráðherra á hendur undirnefnd ráðuneytisins vegna þessa máls og ráðherrann hæstv. sagði: Nei, hér á sko aldeilis að greiða langt umfram það sem fjárlögin heimila og niðurstaðan varð auðvitað sú að ráðherrann réði. Það voru greidd út námslán í samræmi við ákvörðun hæstv. menntmrh. umfram það sem fjárlög gerðu ráð fyrir. En svo kemur hæstv. fjmrh. og ber sér hér á brjóst og segir: Nú eru nýir tímar. Nú á ekkert að greiða aukalega úr ríkissjóði fyrr en búið er að samþykkja það á Alþingi. Þegar hæstv. menntmrh. er bara í þessu eina máli, svo ekki séu tekin fleiri dæmi, uppvís að vinnubrögðum af þessu tagi. En hæstv. fjmrh. stingur höfðinu í sandinn eins og tiltekin fuglstegund og þykist marka hér tímamót í sögu lýðveldisins ef ekki í sögu landsins.
Það er svo rétt að víkja hér nokkrum orðum að því sem ég vil kalla villandi samanburð hæstv. fjmrh. Honum þótti, með svo smekklegum hætti sem það nú var, ástæða til þess að draga inn í þessa umræðu nöfn nokkurra manna sem kvaddir voru til sérstakra starfa meðan ég gegndi starfi forsrh. Í annan stað var þar um að ræða trúnaðarmenn sem tóku þátt í undirbúningi og voru þátttakendur á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Hæstv. fjmrh. nefndi nöfn aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins og framkvæmdastjóra Sjálfstfl. Hann gleymdi auðvitað, og ég hygg að það hafi verið af gleymsku og athugunarleysi, að geta þess að þessir tveir menn eru fulltrúar Sjálfstfl. í Öryggismálanefnd sem heyrir undir forsrn. Þeir eru trúnaðarmenn Sjálfstfl. í Öryggismálanefnd sem heyrir undir forsrn. og ég er sannfærður um að hæstv. fjmrh. hefur hér af gáleysi gleymt því að geta þessa en auðvitað var það ástæða fyrir því að þeir voru kvaddir til þessara sérstöku starfa. Í annan stað var hv. þm. Geir H. Haarde fenginn til þess að taka þátt í undirbúningi og vera til aðstoðar í opinberri heimsókn forsrh. til Bandaríkjanna, sérstaklega vegna þeirra viðræðna sem þar fóru fram um skoðun á viðskiptum Íslands og Bandaríkjanna. En hví er nú villandi að taka dæmi sem þessi? Það er ekkert feimnismál að þessir aðilar voru kvaddir til ráðuneytis, það var birt og kom fram opinberlega á sínum tíma. En hví er þessi samanburður villandi? Hann er fyrst og fremst villandi vegna þess að hér er verið að draga inn í umræðuna dæmi um menn sem kallaðir eru til sérstakra starfa sem heyra undir viðkomandi ráðuneyti,
til þess að vinna að málefnum sem heyra undir viðkomandi ráðuneyti samkvæmt stjórnskipunarlögum Íslands. Þar að auki er það rangt sem hæstv. ráðherra gaf til kynna en þorði auðvitað ekki að fullyrða að þessir menn hafi fengið sérstakar greiðslur fyrir þessi störf. Einu greiðslurnar sem til þeirra komu voru vegna kostnaðar, ferðakostnaðar, sem þessum störfum fylgdi. En hæstv. ráðherra, þó hann vissi betur, reyndi að gefa annað í skyn. En samanburðurinn er villandi af þessum sökum og á auðvitað ekkert heima í þessari umræðu af því að hér er um að ræða störf sem heyra undir viðkomandi ráðuneyti enda alkunnugt og nauðsynlegt að kveðja til menn til slíkra starfa.
Það var svo athyglivert hvernig hæstv. ráðherra reyndi að koma sér undan hinni eiginlegu gagnrýni. Og hvernig gerði hæstv. ráðherra það? Jú, hann sagði: Ég tel að þingskapalögin og lögin um sérfræðiaðstoð fyrir þingflokka séu gölluð. Ég tel að þau séu gölluð, sagði hæstv. ráðherra. Og hann sagði meira: Ég tel að það sé galli á stjórnskipun Íslands að aðilar geti ekki verið þátttakendur í ríkisstjórnarsamstarfi án þess að sitja í ríkisstjórn.
Og þegar hæstv. fjmrh. hefur komist að þeirri niðurstöðu að hann telji að tiltekin lög séu gölluð og ekki í samræmi við hans skoðanir og hans vilja og sjálf stjórnskipun Íslands sé meingölluð og ekki í samræmi við hans skoðanir og hans vilja --- hvað gerir hæstv. ráðherra þá? Kemur hann inn á Alþingi með frv. til að breyta þessum lögum? Leitar hann eftir meirihlutastuðningi á Alþingi til að breyta þessum lögum? Leitar hann eftir þeirri lýðræðislegu leið að óska eftir því að meiri hlutinn á Alþingi taki ákvarðanir? Nei, það gerir
ekki hæstv. ráðherra. Þegar hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að tiltekin lög og stjórnarskrá Íslands séu honum ekki að skapi þá bara framkvæmir hann málin eins og honum hentar og honum þykir best fara á, burtséð frá því hver lögin eru. Burtséð frá því hvað kveðið er á um í stjórnskipun Íslands.
Það er sem sagt nægjanleg afsökun af hálfu hæstv. fjmrh. að honum þyki lögin ekki að sínu skapi og stjórnskipunin gölluð og þá eru bara hlutir framkvæmdir með þessum hætti. Þetta voru nánast einu rökin sem hæstv. fjmrh. reyndi að bera hér fram til málsvarnar sjálfum sér í þessu máli.
Það var eftirtektarvert að hæstv. forsrh. leyfði sér ekki málflutning af þessu tagi. Hefði nú verið meiri sómi að því að hann tæki hæstv. fjmrh. svolítið í gegn því auðvitað er það alvarlegt þegar ráðherra í ríkisstjórn Íslands, lýðræðisríki, stendur hér upp í Alþingi og lýsir með þessum hætti hver er virðing hans á lögum landsins og stjórnskipun Íslands. Engin. Og hæstv. forsrh. hefur ekki manndóm í sér til þess að taka hann í gegn þegar slík ræða hefur verið flutt. En það kom fram í ræðu hæstv. forsrh. að hann ætlaði að beita sér fyrir breytingu á lögum svo að unnt væri að gera það sem þeir hafa gert á löglegan hátt og auðvitað kemur fram í því, þeirri setningu, að hér hafa verið teknar ákvarðanir sem ganga á svig við lög og eru ekki í samræmi við lög. Auðvitað
viðurkennir hæstv. forsrh. með þessari yfirlýsingu að það hefur verið gengið á svig við lögin og það er það sem liggur hér fyrir eftir að þessir tveir hæstv. ráðherrar hafa tekið til máls. En það kemur líka fram í ræðum þessara tveggja hæstv. ráðherra að þeir gera afar lítinn eða engan mun á framkvæmdarvaldinu og löggjafarvaldinu. Framkvæmdarvaldinu eru ákveðin, samkvæmt stjórnarskrá, sérstök verkefni: Framkvæmd þeirrar löggjafar sem Alþingi setur. Löggjafarvaldið er í höndum Alþingis. En þessir tveir hæstv. ráðherrar hafa í ræðum sínum hér orðið uppvísir að því að hér á gera þeir engan greinarmun. Auðvitað er ekki hægt, eins og þeir gera hér, að rugla saman í einum farvegi greiðslum til sérstaks aðstoðarmanns hv. þm. Stefáns Valgeirssonar annars vegar fyrir það að vera hér þingflokkur og hins vegar fyrir það að vera aðili að ríkisstjórn Íslands. Menn sem þetta gera kunna ekki skil á aðgreiningu framkvæmdarvalds og löggjafarvalds og bera ekkert skynbragð á hver þeirra ábyrgð er samkvæmt stjórnarráðslögum og almennum reglum um stjórnarfar í landinu. Og það er þetta sem er kjarni málsins. Það er skilningsleysi þessara manna á grundvallaratriðum stjórnskipunar og íslenskrar löggjafar. Skilningsleysi á þeirri ábyrgð sem á þeirra herðum hvílir. Það er grundvallarmunur á því hver er vinna þingflokka og þingmanna að löggjafarstörfum og hinu hvað stjórnardeildir í Stjórnarráði Íslands hafa með höndum og það er ekki hægt að bæta þar við. Það er ekki hægt að bæta við svona ráðuneytisígildum af því að menn þurfa að kaupa sér með einum eða öðrum hætti atkvæði á Alþingi. Það er með skýrum hætti kveðið á um það hver séu ráðuneytin í Stjórnarráði Íslands og hvaða verkefni þau fara með og það er ekki unnt að taka handahófskenndar ákvarðanir án lagastoðar um eitthvað annað. Ef menn eru þeirrar skoðunar þá eiga þeir að koma fram með frv. til breytinga á lögum og stjórnarskrá lýðveldisins en ekki gera það með þessum hætti.
Þessi atriði vildi ég að kæmu hér fram, frú forseti, í þessari umræðu vegna þess að þau sýna á hvaða braut þessi hæstv. ríkisstjórn er.
Það kom líka hér inn í umræðurnar hvernig hæstv. ríkisstjórn hefur staðið að því að ráða sér sérstaka aðstoðarmenn umfram það sem heimilt er í stjórnarráðslögum. Í þeirri umræðu fór hæstv. fjmrh. á sama sprettinn í röksemdafærslu sinni. Hann taldi það sem sagt vera nauðsynlegt að ráða tvo eða þrjá aðstoðarmenn utan heimilda samkvæmt lögum og þá var það einfaldlega gert. Staðreyndin er auðvitað sú í því máli að því er lýtur að upplýsingafulltrúa fjmrn. að innan dyra í Alþb. áttu sér stað heiftúðleg átök. Einn af upplýsingafulltrúum formanns Alþb., þá ritstjóri Þjóðviljans, var látinn víkja úr því sæti vegna deilna innan Alþb. og um leið og það hefur gerst innan Alþb. þá er viðkomandi maður bara settur á launaskrá í fjmrn. Halda menn að það sé tilviljun að allt þetta beri upp á einn og sama tíma? Um leið og skipt er um ritstjóra á Þjóðviljanum vegna innanflokksátaka þá eru þeir sem verða undir settir á launaskrá í fjmrn. En rökin voru jafnléleg og í hinum
fyrri tilvikum. Þessum athugasemdum ætlaði ég að koma hér á framfæri, frú forseti.