Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Þær skýringar sem hæstv. fjmrh. hefur gefið eru að mörgu leyti ófullnægjandi og í einstökum atriðum rangar. Ég sé ástæðu til þess að leiðrétta eitt atriði. Hann gaf þá skýringu á því að svokallað Hekluhús á Akureyri hefði verið keypt að það hefði verið hugsað fyrir Háskólann á Akureyri. Nú er mér ekki alveg ljóst hvernig það hangir saman. Mér er hins vegar kunnugt um að það stendur ekki til að þetta hús verði tekið í notkun fyrir Háskólann á Akureyri, enda er það að heita ónýtt og það er fullkomlega rangt hjá hæstv. fjmrh. að önnur hús hafi ekki verið tiltæk á Akureyri sem standi auð og hefðu getað komið að notum fyrir Háskólann a.m.k. jafn vel og jafnfljótt og það hús sem hér um ræðir, Hekluhúsið á Akureyri. Sannleikurinn í málinu er sá að það var liður í ráðstöfunum ríkisvaldsins til þess að koma til hjálpar fyrirtækinu Álafoss að kaupa þessar eignir til þess að létta greiðsluerfiðleika þess fyrirtækis. Hekluhúsið er með öðrum orðum keypt til þess að létta undir með fyrirtækinu Álafossi. Það stendur í engu samhengi við Háskólann á Akureyri. Það fór fram athugun á því eftir að ríkissjóður hafði keypt húsið hvort það gæti hentað fyrir Háskólann. Þá kom í ljós að húsið var svo til ónýtt. Annar hluti þess er mjög hallandi eins og núv. ríkisstjórn öll. Ég veit að hæstv. fjmrh. skilur þessa líkingu vel.
Það væri á hinn bóginn fróðlegt að fá skýrslu um það líka hjá hæstv. fjmrh. hvernig er háttað kaupunum á þessu húsi, ef hann vill vera svo elskulegur að gefa mér sambærilegar upplýsingar og hann hyggst gefa hv. 16. þm. Reykv. sem hér kom með fyrirspurnir. Ég væri þakklátur fyrir það.
Ég sé að öðru leyti ekki ástæðu til að víkja mjög að þessu. Upphrópanir hæstv. fjmrh. um flugstöðina eru gamalkunnar og ástæðulaust að svara þeim nú né öðru því sem fram hefur komið. Ég vil aðeins leiðrétta það sem rangt var með farið og láta í ljós þá skoðun að einstakir ráðherrar eigi að gefa Alþingi rétta skýringu á því ef um kaup á fasteignum er að ræða en ekki ranga.