Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir þingmáli sem tekið hefur verið á dagskrá, frv. til laga um breytingu á lögum nr. 54/1974, um Þjóðhagsstofnun.
Það er lagt til í frv., sem er aðeins í tveimur greinum, að gildandi lögum um Þjóðhagsstofnun verði breytt þannig að á eftir 3. tölul. 2. gr. laganna, sem fjallar um verkefni Þjóðhagsstofnunar, komi nýr liður sem orðist þannig, þ.e. á eftir innganginum ,,Meðal verkefna Þjóðhagsstofnunar eru þessi``:
,,Að safna þjóðhagslegum upplýsingum eftir kjördæmum og birta þær opinberlega einu sinni á ári í aðgengilegu formi, m.a. um tekjur og útgjöld ríkissjóðs, hlutdeild kjördæma í landsframleiðslu og gjaldeyrisöflun og um innlán og útlán innlánsstofnana.``
Þetta er efnisgrein frv. og það er flutt hér öðru sinni. Frv. þetta var flutt á næstsíðasta þingi, 110. löggjafarþingi, og var þá vísað til fjh.- og viðskn. sem aflaði umsagna um frv. og til glöggvunar þingheimi eru þær umsagnir birtar sem fylgiskjal með frv. þar sem tvö þing eru síðan málið kom hér fyrir.
Þegar mál þetta var rætt hér í hv. Nd., en þá stóð að flutningi þess auk mín hæstv. núv. landbrh. Steingrímur J. Sigfússon, fékk málið góðar undirtektir hér í þingdeildinni. M.a. tók hv. 1. þm. Suðurl., þá hæstv. forsrh. ef ég man rétt eftir, jákvætt undir þetta mál og fleiri sem tjáðu sig um efni frv. En þar sem málið varð ekki útrætt hefur það nú verið flutt öðru sinni í von um að þingið taki á málinu og taki afstöðu til þess. Eins og fram kemur í frv. er ætlunin með því að fela Þjóðhagsstofnun að afla upplýsinga um ýmsar þýðingarmiklar þjóðhagsstærðir svæðisbundið, þ.e. eftir kjördæmum landsins og birta þær reglulega einu sinni á ári.
Áður en mál þetta var undirbúið á sínum tíma voru nokkrir hæstv. ráðherrar spurðir um nokkrar þjóðhagsstærðir, þar á meðal um skiptingu aflaverðmætis og útflutningsverðmætis sjávarafurða og gjaldeyrisöflun og landsframleiðslu eftir kjördæmum, svo og um innlán og útlán innlánsstofnana eftir kjördæmum. Svör sem þá voru fram reidd skriflega af hæstv. ráðherrum eru birt hér með frv. til glöggvunar. Það kom fram í þeim að ýmsu þyrfti að breyta til þess að unnt væri með skilmerkilegum hætti að reiða fram þær upplýsingar sem um var beðið. Þó liggja fyrir allljósar upplýsingar varðandi skiptingu aflaverðmætis eða verðmæti þess afla sem landað er svæðisbundið, en varðandi ýmsa aðra þætti er ekki staðið þannig að upplýsingaöflun að það sé að óbreyttu auðvelt að reiða þær fram, en svo yrði að sjálfsögðu að gera ef frv. yrði lögfest.
Í umsögnum um frv. kemur það fram, auk ýmissa jákvæðra umsagna sem bárust, m.a. frá landshlutasamtökum sveitarfélaga víða um landið, í umsögnum frá Seðlabanka Íslands og Þjóðhagsstofnun, að breyta þurfi ýmsu varðandi upplýsingaöflun til þess að koma þeirri skráningu og færslu við sem frv. gerir ráð fyrir. Þessar stofnanir taka út af fyrir sig jákvætt
undir það að gagnlegt væri að afla slíkra upplýsinga, þó að þær efist um nauðsyn þess að setja lög þar að lútandi og Þjóðhagsstofnun ræðir um það að það mætti gera tilraun til þess að afla þessara upplýsinga í eitt skipti. Mér er ekki kunnugt um að Þjóðhagsstofnun hafi unnið mikið að því efni síðan, en sjálfsagt er að afla vitneskju um það hvað gerst hefur á hennar vegum á þeim tíma sem liðinn er frá því að frv. fyrst var flutt. Það eru ekki andmæli neinna út af fyrir sig við að þetta verði lögleitt, að slíkra upplýsinga verði aflað, þó að nefndar stofnanir dragi í efa að það sé með því brýnasta í sambandi við skýrslugerð.
Það kemur einnig fram hjá Seðlabanka Íslands að hann telji vafasamt að fela Þjóðhagsstofnun það verkefni sem henni er ætlað hér varðandi gjaldeyrisöflun og út- og innlán innlánsstofnana. Vissulega skiptir það flm. þessa máls ekki máli hvort það er Þjóðhagsstofnun eða Seðlabankinn sem fengi það hlutverk. Ég hef hins vegar ekki séð ástæðu til þess að breyta tillgr., heldur tel eðlilegt að þingnefnd, hv. fjh.- og viðskn., fari ofan í þetta efni og leggi mat á það hvort eðlilegra sé að slík upplýsingaöflun varðandi þessa þætti færi fram hjá Seðlabankanum og yfirlit um hlutdeild kjördæma í landsframleiðslu færi fram á vegum Þjóðhagsstofnunar. Það er fyrirkomulagsatriði sem ég hef ekki út af fyrir sig lagt neinn endanlegan dóm á þó að málið sé flutt hér í óbreyttu formi.
Ástæðan fyrir því að ég tel nauðsynlegt að upplýsinga sé aflað um þessa þætti svæðisbundið, og þá miðað við kjördæmi landins, er sú að umræða um marga þætti mála, um þróun einstakra svæða, um skipulag og uppbyggingu atvinnulífs og annrra þátta, fer fram innan kjördæma landsins á vettvangi almannasamtaka sem þar starfa og það er að mínu mati þýðingarmikið að þessar upplýsingar liggi fyrir ekki síður en fyrir landið allt.
Þetta mál tengist einnig þeirri umræðu sem fram hefur farið um árabil varðandi héraðsstjórnir í landinu, hugsanlega skiptingu landsins í fylki, þar sem gert væri ráð fyrir verulegri sjálfsstjórn um innri málefni, þar á meðal ráðstöfun fjár, og til þess að það sé hægt með eðlilegum hætti þurfa
upplýsingar að liggja fyrir varðandi þá þætti sem hér er gert ráð fyrir að aflað verði.
Umræðan um héraðastjórnir hefur enn ekki leitt til neinnar niðurstöðu en hún er rædd á vettvangi almannasamtaka og einnig á vettvangi stjórnmálaflokka og það hefur komið fram hjá stjórnmálaflokkunum að þeir hafi ekki lokið umræðu um þau efni. Ég lít svo til að málið sé enn þá til meðferðar í samfélaginu og ég hef mælt með því hér á Alþingi að slík héraðastjórn verði upp tekin og tel reyndar mjög þýðingarmikið að svo verði.
Hvað sem hins vegar verður um það efni hefur það gildi að þær upplýsingar sem hér er gert ráð fyrir að Þjóðhagsstofnun afli liggi fyrir, m.a. í sambandi við margháttaða áætlunargerð, byggðaáætlanir og annað sem lýtur að þróun einstakra svæða.
Ég ætla, virðulegur forseti, ekki að orðlengja þetta mál frekar. Þetta hefur komið hér fyrir þingið áður, en ég vænti þess fastlega að jákvætt verði á málinu tekið og hv. fjh.- og viðskn. sem ég legg til að fái málið til meðferðar skili því aftur að athuguðu máli hér inn í hv. þingdeild.