Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það sem gefur mér tilefni til að fara í ræðustólinn eru orð hæstv. heilbr.- og trmrh. varðandi almannatryggingalögin sem eru utan við verksvið þessa frv. sem hér er til umræðu. Ég vil í tilefni af því segja það að ég tel alrangt og það sé ráðist á grundvallarkenningu almannatryggingalaga með því að afnema með lagaboði elligrunnlífeyrinn sem menn hafa verið að vinna sér inn á langri ævi. Þegar þessi ákvæði voru tekin upp þá var það gert í því augnamiði að hér væri fyrst og fremst verið að breyta yfir í algjört tryggingakerfi þar sem menn væru jafnir til að fá þennan grunnlífeyri án tillits til tekna þeirra á hverjum tíma.
Ef ég man rétt þá voru iðgjöldin til almannatrygginga ákveðin 1 / 3 af heildartekjum þeirra. Sveitarfélögin greiddu annað eins og ríkið greiddi helming á móti. Með öðrum orðum var látið í veðri vaka og því alveg skýrt og skorinort haldið fram að hér væri um iðgjaldagreiðslur að ræða sem menn ættu að njóta þegar þeir væru komnir á tiltekinn aldur eða þeir yrðu fyrir varanlegri örorku. Við þessa grundvallarstefnu á að standa að mínum dómi. Og að tala um það að afnema grunnlífeyrinn á ákveðna einstaklinga ef þeir hafa einhverjar tekjur sem stjórnvöld ætla að meta er alrangt. Það er komið aftan að fólki í þeim efnum.
Og nú spyr ég hæstv. heilbr.- og trmrh.: Ef hann ætlar að beita sér fyrir slíku afnámi á grunnellilífeyrinum á þá ekki að gera neinar breytingar á öllum sjúkragreiðslum þeirra sem eru yngri en 67 ára? Mega menn þar hafa ótakmarkaðar tekjur? Ef þeir fara inn á sjúkrahús eða þurfa að njóta bóta almannatryggingakerfisins, þá eiga þeir að hafa sitt á þurru, en ef þeir eru orðnir 67 ára eða eldri, þá á að skerða rétt þeirra. Og nú spyr ég enn hæstv. heilbr.- og trmrh.: Er þetta réttlætið sem félagshyggjuríkisstjórnin ætlar að framkvæma? Nú fer mér ekki að lítast á blikuna. Nú held ég að þessir herrar séu að fara inn á ákaflega hæpna braut.
Á sínum tíma átti ríkissjóður í erfiðleikum, og Alþingi, að koma saman fjárlögum. Þá datt mér í hug sú ósvífni sem heilbr.- og trmrh. að þeir sem legðust inn á sjúkrahús greiddu svona rúmlega fæðiskostnað í 10 daga. Þá var það kallaður sjúklingaskattur af mörgum þeirra sem nú eiga sæti í ríkisstjórninni og það var fallið frá þessum óréttmæta sjúklingaskatti. Væri nú ekki réttlátara ef ég þyrfti að fara inn á sjúkrahús að ég borgaði svona vel fæði mitt, ef ég fæ jafnframt full laun sem þingmaður þennan tíma og lengur, heldur en það eigi að svipta menn þessum réttindum þegar þeir eru komnir á ákveðinn aldur? Ég held að það sé enginn vafi á því að hitt er mannlegra og miklu betra að verja það, bæði fyrir sjálfum sér og öðrum.
Mér finnst að hæstv. ríkisstjórn hafi reitt hátt til höggs gagnvart fólki ef það er komið á ákveðinn aldur. Af hverju gerir hún þetta? Ekki á þessu eina sviði heldur einnig á öðrum sviðum. Þá á ég við
eignarskattinn. Ég á líka við mismun þegar lagst er til langframa inn á ellistofnanir. Af hverju er reitt þarna hærra til höggs heldur en á öðrum sviðum og það af mönnum sem kenna sig við félagshyggju?
Ég vil í fullri vinsemd vara hæstv. heilbr.- og trmrh. við að bera fram frv. í þessa veru. Ég er viss um það að við sem erum í stjórnarandstöðu skiljum líka mætavel að það þarf einhvers staðar að draga úr. En þá verðum við að finna hvar á að draga úr og hvar sanngjarnt er að draga úr kostnaði þannig að það komi sem réttlátast niður. Ef tala á við okkur í stjórnarandstöðunni á þeim nótum þá erum við opnir fyrir því að ræða þær hugmyndir því ég trúi því ekki að það sé nokkur maður sem vilji ræða þessar hugmyndir á þessum grundvelli.
Þar að auki vil ég líka nefna hér að grunnlífeyrir ellitrygginga hefur ekki hækkað sem skyldi vegna þess að ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur tekið meira tillit til þeirra sem engar eða litlar aðrar tekjur hafa haft og hafa því hækkað tekjutrygginguna mun meira heldur en grunnlífeyri ellitrygginga. Ef það er á einhvern hátt rangt að það hafi verið gert, þá á ég mína sök líka á því því að það var ekki minnst á þeim árum sem ég var heilbr.- og trmrh. sem þetta bil jókst. En því er síður ástæða til að ganga nú lengra í þessum efnum þar sem grunnlífeyri var haldið töluvert niðri. Að vísu má segja að hann var beint hækkaður eftir hækkun á almennu verkamannakaupi eins og menn vita. Þetta allt vil ég vegna orða hæstv. heilbr.- og trmrh. hér áðan að komi fram. Þetta eru varnaðarorð áður en frv. er fullfrágengið og ég vænti þess að hann taki þessi mál til nánari athugunar út frá þessum forsendum sem ég hef nú nefnt.
Iðgjöld einstaklinga til almannatrygginga voru greidd um langan tíma en voru felld niður að mig minnir á árinu 1972 og þá gerðist það ekki með þeim hætti að það væri verið að lækka á þeim sem höfðu hæstar tekjurnar. Þess meira var tekið í gegnum tekjuskattinn þannig að þeir greiddu eftir það enn meira en áður. Einmitt sú breyting réttlætir ekki að framkvæma þetta með þeim hætti sem hér hefur verið tæpt á.